Tíminn - 05.08.1978, Blaðsíða 3

Tíminn - 05.08.1978, Blaðsíða 3
Laugardagur 5. ágiíst 1978 3 Hvers konar ferða menn- koma til Nýlega var gefin út af ráö- herranefnd Norðurlandaráös bók um ferðamál á Noröurlöndum. í bókinni er fjallað um Island sem og önnur Norðurlönd og er þar á einum stað rætt um af hverju ferðamenn koma til íslands. Seg- ir þar orðrétt: „Það er einkenn- andi fyrir flesta þá ferðamenn sem koma til íslands, að þeir eru áhugamenn um útilif og láta það ekki á sig fá þótt þeim mæti alls konar erfiðleikar. Þeir eru i og með ánægðir með slikt og lita á þá íslands? sem óvænt ævintýr. Margir eru einnig áhugamenn um landafræði og jarðfræði, alls konar náttúru- fræði sögu íslands og siðast en ekkisiát hina óspilltu náttúru. Þá er einnig rætt um af hvers konar hvötum norrænir ferða- menn komi til landsins, og segir þar að flestir Norðurlandabúar komi til tslands, annað hvort i embættis- eða viðskiptaerindum. Aðeins minnihluti komi sem venjulegir ferðamenn. Arnarflug: Flugu fyrir Breta Vegna hægagangs á franska flugumferðarsvæðinu nú að und- anförnu hafa áætlanir hinna ýmsu flugfélaga frá Mið-Evrópu til Miðjarðarhafslanda raskast verulega. I rúman sólarhring frá 3. til 4. ágúst flaug Arnarflug 3 ferðir fyrir breska flugfélagið Britannia Airways með farþega sem lengi höfðu beðið flugs til Aþenu, Telaviv og Rimini á ttaliu. Arnarflug sem flýgur með ts- lendinga til sólarlanda fyrir Ferðaskrifstofuna Sunnu, Sam- vinnuferðir, Landsýn og Feröa- miðstöðina, hefur hingað til ekki orðið fyrir verulegum töfum vegna áöurnefndra aðgerða og tekist að halda áætlun sinni að mestu leyti. Valdar hafa verið flugleiðir framhjá franska flug- umferðarsvæðinu, sem kostað hefur lengri flugtima i flestum til- vikurn. Nýlega hafa verið sett mjög fullkomin siglingartæki i flugvél- ar Arnarflugs sem auðveldar að mun aðgeröir sem þessar. , 'Hlunkur er þetta” — ESE — í vikunni héldu hijómsveitin Brimkló og þeir kumpánar Halli og Laddi blaðamannafund á svinabúinu að Þórustöðum I ölfusi, þar sem Árni Möller, fyrrverandi poppari býr 'ásamt fjölskyldu sinni. Tilefni fundarins var a6 kynna landsreisuna ,.A faraldsfæti 78”, auk þess sem viðstöddum gafst kostur á að hlýða á nýjar plötur með Brimkló og Halla og Ladda. Brimklóarplatan kemur út núna eftir helgina og hefur hún að geyma „country-lög” eins og þau gerast best, en plata Haila og Ladda kom út nú fyrir helgina og ber heitið „Hlunkur er þetta”. A meðfyigjandi mynd sjást þeir Halli og Laddi hlunkast um stofugólfið á Þórustöðum með veitingar handa viðstöddum. Hef ekki trú á að leikarar ráði sig hingað norður meðan þessi deila stendur, segir Saga Jónsdóttir SJ — Það virðist vera biðstaða i málinu eins og er, sagði Saga Jónsdóttir leikari á Akureyri, er Timinn ræddi við hana vegna deilna þeirra, sem uppi eru nú I Leikféiagi Akureyrar. — Nýja stjórnin i leikfélaginu hefur ekki náö samningum við Félag islenskra leikara, sem leggur áherslu á að ráðnir verði fimm fastráðnir leikarar til félagsins, eins og verið hefur, en það telj- um við lágmark til að hægt sé að leysa af hendi þá vinnu, sem þarf I leikhúsinu. Nýja stjórnin vill hins vegar fastráða þrjá leikara. — Ég hef ekki trú á þvi að fólk úr FélagHslenskra leik- ara ráði sig hingað til starfa meðan þessi deila stendur. Saga Jónsdóttir sagði að litið fréttist af fundum stjórnar Leikfélags Akureyrar og Odds Björnssonar, sem tekur við leikhússtjórastarfinu af Brynju Benediktsdóttur 1. september. Fólk i leikfélaginu fengi tæpast fréttir. en hún sjálf, Þórir, Steingrimsson og Aðalsteinn Bergdal, sem öll voru fastráðnir leikarar hjá LA á siðasta leikári, hafa sagt sig úr félag- inu. Ekkert þeirra hefur sótt um starf áfram og ekki heldur hinir fastráðnu leikararnir tveir, Sigurveig Jónsdóttir og Gestur E Jónasson. Saga leiðrétti rang- hermi i grein i Akureyrarblað- inu tslendingi um þetta mál 1. ágúst sl. en þar stóð að atvinnu- leikararnir hefðu fengið þvi áorkað að uppsögn þeirra hefði verið frestað til 1. september. Rétt er að leikurunum var sagt upp 1. desember sl. frá 1. september næstkomandi, en þá rennur samningstimi þeirra út, og ekki var um neina frestun að ræða. Einnig vildi Saga leið- rétta ummæli i sama tbl. tslend- ings um að kosning Guðmundar Magnússonar sem formanns LA hafi hleypt illu blóði i fastráðna leikara félagsins. Þetta er eng- an veginn rétt, sagði Saga. — Við vorum búin að nauða i hon- um að taka að sér formanns- starfið, en hann hafnaði þvi. Siðan hefur sú stefna sennilega orðið ofan á hjá honum og fleiri að draga saman seglin og þaö orðið úr að hann var i kjöri. Það hefur verið rætt um sparnað i sambandi við verk- efnaval, en þær hugmyndir nýju stjórnarinnar, sem heyrst hefur talað um, Meyjaskemman og Sjálfstætt fólk, benda ekki til sérstakrar sparnaðarstefnu. Ef Brynja Benediktsdóttir, fráfar- andi leikhússtjóri, heföi stungiö upp á þessum verkefnum, hefðu þau ekki verið samþykkt til flutnings og þótt of dýr. Atvinnuleikararnir vildu fá fulltrúa i stjórn LA á aðalfund- inum, en það tókst ekki. — Okkur var óbeint sagt það á fundinum að starfskrafta okkar væri ekki óskað og eitthvað minnst á að við þættum ekki nógu góð söluvara, sagði Saga ennfremur. Guðmundur Magnússon, nýkjörinn formaður Leikfélags Akureyrar, var á fundi i Sam- komuhúsinu þar sem félagiö hefur sýningar sinar og fundi, þegar við náðum tali af honum i gær. Hann vildi ekki gefa upp hvaða leikara stjórnin hefði ráðið til starfa á Akureyri, en Mbl. hafði eftir honum i gær að þegarheföu leikarar verið ráön- ir. Guðmundur varðist allra frétta, en sagði að fjölmiðlar myndu heyra frá stjórn Leikfélags Akureyrar upp úr helginni. Fjórir nýlega útskrifaðir leik- arar úr Leiklistarskóla rikisins munuhafasótt um stöðu viöLA i vetur, en enginn fastráðnu leik- aranna frá i fyrra og heldur ekki Kristin ólafsdóttir ieikkona, sem búsett er á Akureyri. Starfsemi LA efldist á siðasta leikári Formaður nýrrar stjórnar LA hefur lagt áherslu á það i viðtöl- um við blöð að litil aðsókn hafi verið að leiksýningum félagsins á siðaata leikári. Hann lætur þess hins vegar ógetið að þá voru i fyrsta skipti farnar leik- ferðir á vegum LA sjálfs út frá Akureyri, þannig aö leikhúsið þjónaði öllu Norðurlandi. A sið- asta leikári voru einnig farnar leikferðir til Reykjavikur og settar upp þrjár sýningar i Þjóðleikhúsinu og á Listahátið. t tið fráfarandi stjórnar LA og Brynju Benediktsdóttur leikhússtjóra náðist þaö fram að ganga að styrkur rikisins til LA var hækkaður um 120% í 11 milljónir og styrkur Akureyrar- bæjar um 146% i 16 milljónir. Þessi árangur náðist ekki sist fram vegna þess að nú væri orð- ið til atvinnuleikhús á Akureyri og þeim sem við það hafa starf- að finnst þvi sárt aö horfa upp á það sem þeir telja vera aftur- hvarf frá atvinnuleikhússtefnu. Atvinnuleikhús með starfandi leikhússtjóra sé alls ekki hægt að reka með þrem fastráðnum leikurum, fimm séu algjört lágmark,enda hafi starfssraftar þeirra verið fullnýttir á siðasta leikári. Fjárhagslega er þvi útlitið gott hjá félaginu miöað við það sem hefur verið. Nýi formaður LA vill ekki gefa upp hvaða leikarar hafa verið ráðnir og verst allra frétta

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.