Tíminn - 05.08.1978, Blaðsíða 6

Tíminn - 05.08.1978, Blaðsíða 6
6 Laugardagur 5. ágúst 1978 Úlgefandi Framsúknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Kitstjórar: Þórarinn Þórarinsson og Jón Sigurösson. Auglýsinga- stjóri: Steingrimur Gislason. Kitstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og auglýsingar Siöumúla 15. Sími 86300. Kvöldsimar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Vcrö i lausasölu kr. 100.00. Askriftargjald kr. 2.000 á mánuöi. . . , c Blaðaprent h.f. Að skera hrúta Það er óhætt að segja að yfir þjóðina rigni lausnarorðum um þessar mundir. Fyrir kosningar varð engu tauti komið við fjölda manna vegna hrifningar á hástemmdum loforðum Alþýðuflokks og Alþýðubandalags. Eftir kosningarnar héldu kratar um stund áfram að veifa óskadraumi sinum um svo kallaðan „kjarasáttmála”, og halda ýmsir enn i hann þrátt fyrir þá fyrirlitningu sem forráða- menn i verkalýðsfélögunum hafa sýnt hugmynd- inni. Fyrir nokkru slöngvaði Alþýðubandalagið siðan fram lokleysu sinni, undanfærsluleiðinni, til þess að koma efnahagslifi og viðskiptum þjóðarinnar ger- samlega i uppnám og hindra að vinstra samstarf geti tekist um stjórn landsins. Meðan á þessum undrum hefur gengið hafa al- vörugefnir stjórnmálamenn farið sér hægar. Fram- sóknarmenn hafa gert itrekaðar tilraunir til að koma sigurvegurum kosninganna niður á jörðina, en ekki tekist til fulls.Alþýðuflokkurinn er að visu kominn i gott sjónmál við raunveruleikann nú, en Alþýðubandalagið flögrar enn um i þykkum skýjum austursins. Úr herbúðum Sjálfstæðismanna hefur fátt heyrst annað en innbyrðis skætingur, gagnkvæmar ásakanir og heitar umræður um málgögn þau sem hafa verið tengd flokknum. Nú i vikunni stóðst þó einn af prelátum hægri stefnunnar á íslandi, Eyjólfur Konráð Jónsson þingmaður og fyrrum ritstjóri, ekki lengur mátið. Eyjólfur leggur nú til að öllu trausti á sjálfstæðan islenskan gjaldmiðil verði synjað, en inneignir ís- lendinga i islenskum bönkum verði reiknaðar i er- lendum gjaldeyri. öllu hrapallegri uppgjöf i islenskum efnahags- og peningamálum er tæpast hugsanleg. öllu meiri fyrirlitning á viðleitni manna til að koma málum þjóðarinnar i lag er varla möguleg. Það er ekki nóg með það fyrir Eyjólf Konráð Jónsson að þeir, sem hlunninda njóta, geti átt meiri og minni stórfjár- hæðir geymdar i erlendum bönkum fram hjá is- lensku eftirliti og skattheimtu. Nú vill hann kasta öllu islensku þeningakerfi endanlega fyrir róða. Það er hægt að fyrirgefa Eyjólfi Konráð Jónssyni tiltektir eins og þær að þykjast ætla að skjóta eða skera hrúta upp á grin,sem að visu er illa til fundið en getur þó vakið nokkra kátinu. En þessi siðasti hrútaskurður Eyjólfs Konráðs er alvarlegt mál og ekki til þess fallið að auka það traust og þá tiltrú sem þjóðinni er allri nauðsynleg til farsældar. Tillaga Eyjólfs Konráðs er sjúkdóms- einkenni og uppgjafarmerki. Við höfum þegar feng- ið nóg af sliku. Hrútaskurður Eyjólfs Konráðs Jónssonar á sviði efnahags- og peningamála getur þvi aðeins orðið til góðs, að tillagan veki menn til alvarlegrar um- hugsunar og viðnáms,sem siðan verði grundvöllur þeirrar sóknar sem við verðum að hefja fyrir efna- hagslegt sjálfstæði þjóðarinnar og viðskiptalega til- trú. ERLENT YFIRLIT Hússar skjóta hörðum skotum á Brzezinski Eiga orðið heilt safn ummæla um hann w Í3 éÉfc Brzezinski á skrifstofu sinni I Hvfta húsinu HÉR í blaöinu var nýlega skýrt frá því, að Rússar deildu nú meira á Brzezinski en nokkurn annan bandarískan stjórnmálamann. Rússneskir fjölmiðlar kenna honum um flest það, sem þeir telja miður fara i bandariskum stjórnmálum. Nýlega helur Timanum borizt sýnishorn af þessum áróðri rússneskra fjölmiðla, en þar er um að ræða grein eftir rússneskan blaðamann, Gennadi Gerasimow, sem oft hefur dvalizt i Bandarikjunum og haft nokkur kynni af Brzez- inski áður fyrr. Rétt þykir að birta hér nokkur sýnishorn úr grein hans, til að sýna hvernig þessum áróðri gegn Brzez- inski er háttað: „Ég hitti hann fyrst i New York 1972, þegar hann hafði meira en eitt tækifæri til að tala um heimsmálin á fundi hins virðulega ráðs um erlend samskipti. Brzezinski naut þess að tala og hafði gott vald á hinni sérstöku framsetningu sem notuð er af bandariskum félagsfræðingum og stjórn- málafræðingum, þeim sem i Bandarikjunum eru nefndir „næmir frasaframleiðendur.” Brzezinski lék sér að orðum og hugtökum, eins og barn leikur sér að kubbum, raðaði þeim i samstæður hugtaka- legra stórbygginga. Trú- veröugra við fyrsta tillit, en oft vafasamara við nánari athugun. Grundvallarkenning hans „afrek” var útskýring hans á þvi, að heimurinn hefði náð vissu „tæknilegu þróunar- stigi,” sem nánar var skil- greint i bók hans: „Milli tveggja alda” sem sá dagsins ljós fyrir átta árum. Annars var erfitt að greina á milli hvar var að finna mismuninn á milli þessara timabila og hvað tilheyrði einhverju miklu ■ eldra. Þessi bók fékk hins vegar ekkert sérstaklega góða dóma i bandariskum timarit- um. Bandarískt visindatima- rit sagði nýlega að hún væri ekki sérlega upplýsandi og að minnsta kosti væri framsetn- ing hennar ekki markviss. Ég hugsa að þessi bók væri löngu fallin i gleymskunnar djúp, ef höfundur hennar gegndi ekki þeirri stöðu sem hann gegnir i Bandarikjunum i dag.” t GREIN Gerasimov segir enn fremur: „1 allri hugmyndafræði Brzezinskis leynist aldrei vottur af efasemdum, segir i blaði sem gefið er út i Boston. t sama blaði segir, að það sé vegna striðsæsinga sinna gegn Sovétrikjunum, að Brzezinski hafi komizt svo vel áfram I bandariskum stjórnmálum sem raun er á. Blaðið vitnar i orð prófessors, sem fylgzt hefur með honum á frama- brautinni og lýsir honum sem gömlum kaldastriðsmanni. Vestur-þýzka blaðið „Spiegel” lýsir honum sem „svörnum óvini Sovétrikjanna, o.s.frv. Allir sem ljúka upp munni um alþjóðlega stöðu Brzezinskis lýsa honum sem óvini Sovét- rikjanna, fyrst og fremst. Fyrr lét hann að visu i ljósi aðrar skoðanir, og árið 1975 leyfði hann mér að hafa það eftir sér i „Literary Gazetta” að hann heföi sagt, að „slök- unarstefnan væri raunveru- leiki og yrði að hafa sinn gang.” Til þess að fá full- komna mynd af Brzezinski, verður maður að bæta Rússa- hatri við sovét- og kommún- ista hatur hans. I grein sem hann skrifaði um tengsl milli fortiðar, nú- tiðar og framtiðar i stjórn- málum heimsins, lét hann sig ekki muna um að staðhæfa að utanrikisstefna Sovétrikjanna væri i framhaldi af utanríkis- stefnu Rússlands keisaranna. Greinin birtist bæði i Bret- landi og Bandarikjunum eftir að Brzezinski hafði fengið hina núverandi stöðu sina. Greinin var skrifuö með hinu vel- þekkta andsovézka og and- rússneska hugarfari, þar moraði af orðum eins og „russkaya mysl” „novoya russkoya slovo” o.s.frv. Hvort sem heldur er, að Sovéthatur Brzezinskis fylgi i kjölfar Rússahaturs hans, eða þvi er öfugt farið er e.t.v. ekki svo þýðingarmikið, en þes§i teg- und af þjóðernisstefnu og si- felldar ofsóknir gegn Rúss- landi fyrir það eitt að vera til, setur stórt spurningarmerki við hæfni Brzezinskis til að gegna alþjóðamálum. ÞA VITNAR höfundur i fyrrverandi bandariskan öld- ungadeildarþingmann og segir: „Þekktur maður i banda- risku lifi, Eugene McCarty býst við hinu versta af þeim fyrirætlunum Brzezinskis, að koma á nýrri „heimsskipan” á þessari plánetu. „Verið viðbúin,” segir þessi fyrrverandi öldungadeildar- þingmaður, „það er sú heims- skipan sem boðuð var af nasistunum.” Prófessor Stanley Hoffmann segir að ef Brzezinski væri yfirmaður CIA þá myndi hann persónulega fara að litast um eftir loftvarnarbyrgi. Annar prófessor Noam Chomsky segir um Brzezinski: „Þetta er algerlega ábyrgðarlaus maður.” Allir þessir aðilar, sem þekkja Brzezinski náið, óttast tilhneigingu hans til fljótfærni. Einstaklingur, sem er fljótfær og þar að auki hrokafullur, getur orðiö hættulegur ef hann situr uppi með þau völd sem Brzezinski hefur nú. Fyrrverandi félagi Brzez- inskis frá akademiunni sagði um hann: „Hann er áráttu húrrahrópari, sem gefur sér ekki tima til að meta að- stæður. Hann tekur skyndi- ákvarðanir, án tillits til hvernig þær lita út i samhengi við heildaráætlanir.” Brezki blaðamaðurinn, Jónatan Power, sagði i blaða- viðtali að „ef þú lest yfir það sem Brzezinski hefur skrifað, þá tekur þú eftir þvi, að hann hefur sérstaka hæfileika til að hafa rangt fyrir sér.” En mis- tök i bókum er eitt, og það kemur aðeins höfundi þeirra við. Stjórnmálamistök er annað, þau geta ráðið um framtið mannkynsins”. Vance, Carter og Brzezinski. ÞAÐ verður ekki dregin sú ályktun af þessum tilvitn- unum greinarhöfundar, að Brzezinski sé réttur maður á réttum stað. En sinum augum litur hver á silfrið og hæglega getur farið svo, ef sambúð So- vétrikjanna og Bandarikjanna batnar á ný, að rússneskir fjölmiðlar dragi fram aðrar og betri lýsingar á Brzezinski. Þeir eiga bersýnilega orðið mikið safn af ummælum um hann. þ.Þ. JS

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.