Tíminn - 08.09.1978, Blaðsíða 11
Föstudagur 8. september 1978
n
Hjálparstofnun
kirkjunnar:
Höndin
komin út
HR — Höndin, fréttabréf Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar 1-2 tölublaö
1978 er komin út. Meðal efnis i
blaðinu er grein eftir Benedikt
Jasonarson kristniboða er nefnist
„Skyldur við náungann,” grein
um nýtt langtimaverkefni Islend-
inga i Súdan, og einnig er sagt frá
væntanlegri landssöfnun er verð-
ur i desember n.k. Verður hún i
likingu við landsöfnunina i fyrra,
en þá söfnuðust 36 millj. kr.
1 leiðara Handarinnar er spurt
hvort hjálparstarf sem þetta sé
ekki vonlaust. Menn spyrja hvort
hjálp okkar Islendinga sé ekki
bara dropi i hafið, og hvort tryggt
sé að hjálpin berist rétta boöleið.
Sem svar við þessum spurningum
er bent á árangur söfnunarinnar i
fyrra, og að sú hjálp hafi komið
að raunhæfum notum i ákveðnu
landi, þ.e.a.s. Súdan. Þar var
fénu veitt i byggingarstarf,
vatnsboranir og kennslu i neta-
gerð.
Þá eru i blaðinu upplýsingar
um það hvernig menn geta styrkt
hjálparstarf kirkjunnar með þvi
að gerast styrktarmenn, og segja
þeir þá til um hvað oft á ári þeir
vilja láta eitthvaö af hendi rakna
og hve mikið. Einnig er i blaðinu
seðill, sem klippa má út og senda
til Hjálparstofnunarinnar.
Girónúmer Hjálparstofnunar
kirkjunnar er 20005, en gjöfum er
einnig veitt móttaka á skrifstof-
unni, Klapparstig 27 5. hæð svo og
hjá sóknarprestum um land allt.
f 6YLFI ÆGISSON MEÐ NÝJA HLJÓMPLÖTU
Gylfi Ægisson hefur sent frá
sér nýja hljómplötu og ber hún
nafnið BLINDHÆÐ, UPP 1
MÓTI.
eftir Gylfa Ægisson sem
semur einnig textanaÆögin
eru öll ný af nálinni að undan-
skyldu laginu MINNING UM
MANN sem var hvað vinsæl-
ast hérna um árið, sem er hér i
nýrri og hljómbetri útgáfu.
Gylfa til aðstoðar við undir-
leik og útsetningar er hljóm-
sveitin Geimsteinn/ einnig
syngur Barnakór Keflavikur
eitt lag svo og Maria Baldurs-
dóttir.
Hljómplötuútgáfan GEIM-
STEINN gefur plötuna út,
J
Keith
Keith Moon, trommu-
leikari bresku rokkhljóm-
sveitarinnar Who, lést i
ibúð sinni i Mayfair í
London í gær, aðeins 31 árs
að aldri.
Dauða hans bar mjög óvænt að
höndum þvi ekki var vitað til þess
að Moon ætti við veikindi að
striða. Lögreglan telur að engar
óeðlilegar ástæður liggi að baki
dauða hans.
Moon opinberaði trúlofun sina
og unnustu sinnar, Anette Walter-
Lex, i veislu mikilli sem fyrrum
Bitill.Paul McCartney efndi til á
þriðjudagskvöld. Þegar unnustu
hans tókst ekki að vekja hann i
gærmorgun hringdi hún óttasleg-
inn i lögreglu, en Moon var látinn
þegar sjúkrabifreið kom á stað-
Moon lést í gær
inn.
Hljómsveitin Who var ein
þekktasta rokkhljómsveit heims
og þeir sömdu poppóperuna
Tommy, sem fræg er orðin um
allan heim. Moon var jafnan mest
i sviðsljósinu af þeim félögum, en
hann var rómaður fyrir furðuleg
uppátæki og ruddaskap. Fyrstu
ár hans i poppinu mölbraut hann
venjuleg trommusett sitt eftir
hverja tónleika og hlaut nafnið
„Loon” eða Moon hinn brjálaöi.
Moon er talinn hafa borgað
u.þ.b. 120 milljónir islenskra
króna i skaðabætur á ferli sinum,
sem poppari, en hann lagði jafnan
hótelherbergi sitt og stundum
heilu hæðirnar i rúst eftir tón-
leika.
—SSV.
Hljómsveitin Who á hátindi frægðar sinnar, Keith Moon er annar frá
hægri.
Stærri - Kraftmeiri - Betri 1978
Aðeins örfáir bílar eftir
FRAMHJÓLADRIFSBÍ LAR/ sem veröa — FJÓRHJÓLADRIFS-
BlLAR
með einu handtaki inni í bílnum, sem þýðir, að þú kemst hvért sem
er á hvaða leið sem er.
SUBARU — með f jórhjóladrifi klifrar eins og geit, vinnur
eins og hestur, en er þurftarlítiII eins og fugl.
SUBARU
bílar með langa reynslu.
SUBARU -1 IMBODID
I V NGVAR H \'X\ fonarlandi v/Sogaveg — ELGAS1 - Símar 845 tt) c ÖN >g 8451 1