Tíminn - 21.10.1978, Page 1

Tíminn - 21.10.1978, Page 1
Laugardagur 21. október 1978 234. tölublað — 62. árgangur WMWW Sigurjón Ólafsson, myndr höggvari, er sjötugur I dag. Sjá bls. 10-11 LSiöumúla 15 • PósthólT 370 • Reykjavík • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðala og áskrift 86300 • Kvöldsimar 86387 & 8639S Tómas Árnason, fjármálaráðberra: Beinir skattar eina leiðin til tekju- öflunar — vegna óheillaáhrifa vísitölukerfisins SS — „Með setningu bráðabirgða- laganna um kjaramál er stigið fyrsta skrefiö i þá átt að rjáfa þann vitahring vixlhækkana verðlags og launa, sem valdiö hefur gifurlegum usla og erfiöleikum undirstöðuatvinnu- veganna svo við liggur rekstrar- stöðvun og atvinnuleysi”, sagöi Tómas Arnason fjármálaráð- herra við umræður á Alþingi s.l. fimmtudag um stefnuræðu forsætisráðherra. Almennt bann við aftur- virkni laga ekki til 1 upphafi máls sins ræddi ráð- herra um hinar afturvirku skattaálögur, sem fólust i bráða- birgðalögum stjórnarinnar um kjaramál og mjög hafa verið til umræðu aðundanförnu. Gat hann þess, að i islenskum stjórnlögum væri ekki að finna almennt bann við afturvirkni laga. í eðli sinu væri álagning tekju- og eignar- skatts afturvirk, þar eö hún mið- ast viö tekjur næstliðins árs. „1 annan stað hafa skattalög, sem verkaö hafa aftur fyrir sig til Iþyngingar gjaldendum, verið setta.m.k. 30 sinnum siðan ^932”, bætti ráðherra við. Fjármálaráðherra fór nú nokkrum orðum um afturvirkni skattalaga í öðrum löndum. Kom það m.a. fram i máli hans, að i Bandarikjunum og Noregi, þar sem stjórnarskrár þessara landa bannaði afturvirkni laga, heföi slik skattalagasetning veriö tiðk- uð. tvið meiri skattþungi i nágrannalöndunum Þessu næst fjallaði ráöherra um skattþunga beinu skattanna á einstaklinga. Hámark gjalda af tekjum hér á landi með meðtöld- um þeim 6% er fólust i bráða- birgðalögunum er 59%. Þó yrði hámarksskattprósentan 42% af tekjum greiðsluársins ef tillit væri tekið til 40% verðbólgu milli ára og þeirri staðreynd, aö gjöld- in eru greidd árið eftir að tekn- anna er aflað. I Danmörku, þar sem skattar eru staðgreiddir, er hliðstæö prósenta 69,8%, i Noregi 79,2% i Sviþjóð 80% og i Finnlandi 74,75%. „Meðaltalshámark gjalda af tekjum á Norurlöndunum er þvi 76% á móti 42% á tslandi miðað við 40% varðbólgu. Skyldusparn- aöurinn, sem nú er 10%, verður ekki talinn með sköttum, þar sem hann er endurgreiddur meö verð- bótum”, sagði fjármááráöherra um samanburð skattþunga ein- staklinga á Norðurlöndum. Framhald á bls. 17. Samráðsnefndin á fundi i gær: Rætt um nánari tilhögun samstarfsins — á sviði kjara- og efnahagsmála Kás — 1 gær var haidinn fundur I fjármálaráðuneytinu með full- trúum launafólks, atvinnu- rekenda og rlkisvaldsins til samráðs I kjara- og efnahags- málum. Var hér raunverulega um að ræða framhald þeirra viðræðna sem áttu sér stað milli sömu aðila við stjórnarmyndun- arviðræðurnar siðustu. Á fundinn voru mættir fulltrú- ar frá ASt, BSRB, Vinnuveit- endasambandi tsiands og Vinnumálasambandi sam-, vinnufélaganna. En af hálfu rikisstjórnarinnar mættu á fundinn Tómas Arnason, fjár- málaráðherra, Svavar Gests- son, viöskiptaráöherra, og Kjartan Jóhannsson, sjávarút- vegsráðherra. A fundinum ræddu aðilar sin á milli um hvernig best bæri að hátta þessu samstarfi næstu vikurnar. Til fundarins var boö- að I samræmi við samstarfs- yfirlýsingu rikisstjórnarinnar, þar sem lögö er rik áhersla á að traust samstarf takist á milli þessara aöila, þ.e. launþega, vinnuveitenda og rikisvaldsins, m.a. til að treysta kaupmátt Frá fundi samráðsnefndarinnar f gærdag. Timamynd Tryggvi. launatekna, jafna lifskjör, og tryggja vinnufrið. Þá segir I samstarfsyfirlýs- ingu rikisstjórnarinnar: „Unniö veröi að gerö þjóöhags- og framkvæmdaáætlunar, sem marki m.a. stefnu i atvinnuþró- un, fjárfestingu, tekjuskiptingu og kjaramálum. Jafnframt verði mörkuð stefna um hjöön- un verðbólgu I áföngum og ráö- stafanir ákveönar, sem nauö- synlegar eru I þvi skyni, m.a. endurskoðun visitölukerfisins, aðgeröir I skattamálum og ný stefna i fjárfestingar- og lána- málum”. Deilur um verðlagsmál: Ríkisstj órnin samþykkir eitt — meðan verðlagsnefnd vill annað Kás—Nú hefur risið upp ágrein- ingur milli rikisstjórnarinnar annars vegar og verðlags- nefndar og verðlagsstjóra hins vegar um túlkun laga um ákvörðun á verði, vöru og þjónustu. Telur verölagsstjóri sér óheimilt að gefa út verðskrá til framleiðenda gosdrykkja og smjörlikis um veröhækkun á framieiðslu þeirra, samkvæmt ákvörðun rikisstjórnarfundar á fimmtudaginn var. Telur verð- lagsstjóri sig bundinn ákvörðun „Erum ekki að skera niður hækkunarbeiðni” — „heldur staðfesta fyrri samþykkt verðlagsnefndar”, segir Svavar Gestsson Nú hafa allir framleiðendur gosdrykkja og smjörlikis lokað afgreiðslum sinum, • fc _ • ( verðlagsnefndar frá deginum áður, þar sem ákveðið var að mæla með enn meiri hækkunum en rikisstjórnin endanlega samþykkti. Málið er það, að samkvæmt bráöarbirgðalögunum um kjaramál frá 8. september sl. verður rikisstjórnin að sam- þykkja allar hækkanabeiðnir sem verðlagsráö hefur iagt blessun sina yfir. Um tveggja mánaöa skeið hafa legiö fyrir rikisstjórn til samþykktar hækkunarbeiðnir sem verðlags- nefnd hafði gengið frá. Þessar hækkunarbeiðnir voru teknar fyrir á rikisstjórnarfundi á þriðjudag. Þar urðu mál þó ekki endanlega útrædd, en á rikis- stjórnarfundi á fimmtudag var endanlega gengiö frá hækk- ununum. A miðvikudag gerðist þaö hins vegar að fundur var haldinn í verðlagsnefnd, þar sem samþykktar voru umræddar hækkunarbeiönir, enda langt um liöiö siöan þær siöast voru samþykktar, og bæði launahækkanir og gengis- felling orðið siðan. Varö algjör samstaða innan verðlags- nefndarað leggja þetta til. For- maður, fulltrúi viðskiptaráð- herra, sat hins vegar hjá. Telja verðlagsnefndarmenn, að meö hinni nýju ákvöröun á miövikudagsfundinum hafi fyrri samþykkt nefndarinnar um sama mál veriö úr gildi fallnar. Um þaö stendur þvi deilan. Hvort rikisstjórnin hafi yfirleitt getað samykkt eldri hækkunar- beiöni frá verðlagsnefnd, þegar hún hefur gert nýja samþykkt um sama efni. Ef hún hefur það ekki, þá hefur hún lækkaö til- lögur verðlagsnefndar, en það hefúr ekki hingaö til samræmst lagatúlkun, að rikisstjórnir geti breytt ákvöröun verðlags- nefndar. Taliö hefur veriö að annað hvort verði rikisstjórnin að samþykkja tiilögur nefndar- innar óbreyttar eða hafna þeim. Kás—„Afgreiðsla þessa máls var með nákvæmlega sama hættiog áður hefur tiðkast. Hins vegar er þvi ekki að neita, að verulegur dráttur hefur orðið á þvi að afgreiða þetta mál, og eru tvær þessara hækkunar- beiönafrá tið fyrrverandi rikis- stjórnar. Mcginatriði er aftur á móti það, að við erum nú búnir aö samþykkja fyrri hækkunar- beiðnina. Við erum þvi ekki að skera niöur hækkunarbeiönir, heldur staðfesta fyrri samþykkt verðlagsnefndar,” sagöi Svavar Gestsson, viðskiptaráðherra, þegar hann var spurður álits á siðustu afgreiöslu rikisstjórnar- innar á hækkunum til gos- drykkja og smjörlikisfram- leiðenda, svo og á flugfar- gjöldum. ,,Mér var kunnugt um það”, sagði Svavar, „að verölags- nefnd haföi fjallað um málið að nýju á miövikudag, og skýrði rikisstjórninni frá þeim fundi. Engu að siöur varö það sam- hljóða niðurstaða rikis- stjórnar fundarins, að afgreiba strax fyrri tillögur verðlags- nefndar.Siðanveröur þaösiðari tima mál, að taka afstöðu til seinni samþykktar verðlags- nefodar.” „Svona deilu einsog nú er upp komin, má alltaf búast við, þegar reynt er að halda niðri verðlagi, eins og hér á landi”, sagði Svavar. „Þýöingarlaust að halda fund í verðlagsnefnd — meðan hún hefur ekki breytt um afstöðu”, segir Björgvin Guðmundsson Kás — ,,Ég hef kannað það laus- lega hvort afstaða verðlags- nefndarmanna hefur breytst eitthvað eftir fundinn á mið- vikudag, en mér virðist I fljótu bragði aö svo hafi ekki veriö. Ég tel þvi þýðingarlaust að halda fund i verölagsnefnd, meban mál standa svo”, sagði Björgvin Guðmundsson, formaður verð- iagsnefndar, I samtali viö Tim- ann, þegar hann var spurður aö þvi hvort haldinn bráðlega verði haldinn fundur I verölagsnefnd, eins og Georg ólafsson, verð- lagsstjóri, hefur fariö fram á, en hann hefur eins og kunnugt, er ekki talið sér heimilt að gefa ut verðskrá um gosdrykki og smjöriiki samkvæmt samþykkt rikisstjórnarfundar á fimmtu- dag, vegna nýrrar samþykktar um sama efni i verðlagsnefnd. Ég hef rætt við nokkra verö- lagsnefndarmenn, og ég tel úti- lokað að þessir menn muni breyta sinni afstöðu. Og ég tel að málib sé enn i höndum rikis- stjórnarinnar, meban vcrölags- nefnd hefur ekki breytt afstöðu BBatB—aBMTWMHffaWMBMBBBM

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.