Tíminn - 21.10.1978, Qupperneq 9
Laugardagur 21. október 1978
ii'i'll'Hll
9
Stúdentakjallarinn að lifna við....
Öllum boðið á menn-
ingarkvöld
— hvert
föstudagskvöld
FI—Stúdentaráð Háskóla
lslands hyggst ganga fyrir
menningarlegum samkomum i
vetur i Stúdentakjallaranum og
var sú fyrsta sl. föstudag kl. 20.
Gylfi Gislason myndlistar-
maður opnaði þá sýningu á
Reykjavikurmyndum og Pétur
Gunnarsson rithöfundur las úr
óútkominni bók sinni, sem
væntanleger á markaðinn fyrir
jói, ,,Ég um mig frá mér til
min”. Þar segir frá Reykja-
vikurstráknum Andra við
upphaf bitlaæðis. Sagan er
framhald af Punktur punktur
komma strik og fylgst er meö
Andra ,,frá aumingja og upp I
töff” eins og höfundurinn orðaði
það á fundi með blaðamönnum
Það kom fram á fundinum,
sem Stúdentaráö boöaði til, að
menningarkvöldin verða fram-
vegis á föstudagskvöldum i
vetur og er aðgangur ókeypis og
þau öllum opin.
Listsýningar munu verða
stöðugt fyrir augum gesta og er
Stúdentakjallarinn opinn frá kl.
10 á morgnana og fram á kvöld.
Allstór hópur myndlistar-
manna og hljómlistarmanna,
auk annarra listamanna, hefur
lýst sig fúsan til að koma fram I
Stúdentaheimilinu, kjall-
aranum eða matsal i vetur, og
verður það nánar auglýst er nær
dregur atburðunum, bæði á
veggspjöldum I Háskólanum og
i dagbókum blaðanna.
Þursaflokkurinn og Alþýðu-
leikhúsið munu t.d. koma fram
meö sameiginlega dagskrá
siðar i þessum mánuði og
nokkrir listamenn eins og Guð-
bergur Auðunsson, Magnús
Kjartansson, Jóhanna Boga-
Þeir riðu á vaðiö með menningarstarfsemi I Stúdentakjall-
aranum I vetur. T.f.v. Gylfi Gislason myndlistarmaður og Pétur
Gunnarsson rithöfundur. TImamynd:Tryggvi
dóttir og Magnús Tómasson
hafa sýnt áhuga sinn á að taka
þátt i menningarstarfseminni.
Tekið var fram, að Stúdenta-
kjallarinn er ekki enn sem
komið er neitt afbragö til
sýningahalds, en úr þvi á aö
bæta með nýju ljósakerfi.
Einnig stendur til að endurnýja
umsókn um leyfi fyrir veitingu
léttvins, og eru menn bjartsýnir
i þvi sambandi.
Formaður Stúdentaráðs er
BoDi Héðinssson.
Enn eykur Oliufélagið þjónustu sína.
Nú vestur við «
BENSÍNSTÖÐ OG BÚÐ.
Oltufélagið h.f. hefur nú reist nýja bensínstöð
vestur við Ægistðu. Þar er gasolía og bensín afgreitt
úr hraðvirkum rafeindadcelum.
Verslunin er rúmgóð og býður fjölbreytt vöruúrval.
Þ VOTTAAÐSTAÐA.
Góð þvottaaðstaða verður fyrir hendi (einnig
afnot af ryksugu).
HJÓLBARÐA VERKSTÆÐI.
Eftir 2-3 mánuði verður opnað hjólbarða-
verkstceði á sama stað, vel búið tcekjumafnýjustugerð.
Öll þjónusta innan dyra. ,
VELKOMIN TIL VIÐSKIPTA VESTUR VIÐ
ÆGISÍÐU.
Olíufélagið hf
1
1
f