Tíminn - 21.10.1978, Page 13

Tíminn - 21.10.1978, Page 13
Laugardagur 21. október 1978 13 Gerard Souzay og Dalton Baldwin á tónleikum hjá Tónlistarfélagi Reykjavikur i dag i gær komu til landsins hinir heimsfrægu tónlistarmenn Gér- ard Souzay og Dalton Baldwin. Þeir munu leika á tónleikum hjá Tónlistarfélagi Reykjavikur i dag kl. 14.30 I Háskólabiói. A efnisskrá tónleikanna er „Winterreise” eftir Franz Schu- bert. Gérard Souzay er einn viökunnasti ljóðasöngvari sem nú er uppi. Hann fæddist áriö 1918 I Angers á Frakklandi og stundaöi heimspekinám áöur en hann sneri sér aö sönglistinni - fyrir tilstilli kennara síns Pierre Bernac’s, og lét innrita sig I Tónlistarháskólann I Paris þar sem han:i lauk námi áriö 1944 viö mikinn oröstlr fyrir frábæra hæfileika og námsafrek. Hann hefir síöar, eöa I þrjá áratugi, feröast uir. heiminn sem ljóöa- söngvari og áunniö sér frægö og frama hvar 'etna. Dalton Baldwin er Bandarikjamaður, fæddur i New Jersey. Hann stundaöi fyrst tónlistarnám I Juilliard School of Music i New York, siöar I Oberlin tónlistarskólan- um og aö lokum framhaldsnám hjá Nadiu Boulanger i Paris og Madelieine Lipatti. Dalton Baldwin ætlaði sér aö veröa söngvari en hvarf frá þeirri fyrirætlun sinni og geröist söng- ljóðatúlkandi á flygilinn og samstarfsmaöur Gérard Souzays, sem hann hefir veitt Gérard Souzay og Dalton fulltingi sem frábær undirleik- ari á tónleikaferöum um allar álfur siöustu tvo áratugi. Bald- win þykir afbragös kennari I sinni grein og hefir unniö aö þvi aö setja á stofn alþjóðaskóla fyrir túlkendur ljóöasöngsins. Souzay og Baldwin heimsóttu Island 1961 og siðast i mai 1975. Baldwin Heimsfrægir tónlist- armenn í Reykjavík Souzay með söngnámskeið — á vegum Tónlistarskólans I Reykjavík Franski ljóöasöngvarinn Gérard Souzay heldur söngnámskeiö á vegum Tónlistarskólans i Reykjavlk dagana 22.-24. október. Souzay er einn frægasti ljóöasöngvari, sem nú er uppi, og hefur hvar- vetna hlotiö mikiö lof enda þykir hann einn gagnmenntaöasti og fágaöasti söngvari, sem um get- ur. Þaö er mikiil fengur fyrir Tónlistarskólann I Reykjavik aö geta gefiö islenskum söngvur- um og söngnemendum kost á aö njóta tilsagnar þessa mikla listamanns. 21 söngvari mun koma fram og syngja á námskeiöi Souzay en um 80 manns munu veröa áheyrnarnemendur. Námskeiö- iö veröur haldiö i hátföasal Menntaskólans viö Hamrahliö þessa 3 daga kl. 2-5 e.h. Enn er möguleiki fyrir söngnemendur og aðra tónlistarunnendur aö sækja um þátttöku i námskeið- inu sem áheyrnarnemendur. Sambandsstjóm LÍS: Heildarsamníngur við Vinnumálasambandið mjög athyglisverð Samvinnustarfsmenn vinni að bættum kjörum sinum innan verkalýðshreyfingarinnar SS —„Fundurinn t'elur þá hugmynd mjög athyglisveröa, sem fram kom á þessari ráöstefnu, aö geröur veröi heildarsamningur fyrir hönd samvinnustarfsmanna viöVinnu- málasamband samvinnufélag- anna, bæöi um laun og eins um hin ýmsu sérmál samvinnu- starfsmanna, og þessi samningur yröi aö forminu til i likingu viö þá samninga.sem stéttarfélögin hafa gert viö isal og rfkisverk- smiöjurnar” segir I ályktun sambandsst jórnar Lands- sambands isl. samvinnustarfs- manna 14. okt. s.I. Ráöstefnan sem vitnaö er til var haldin aö Bifröst fyrir skömmu og fjallaöi m.a. um stööu samvinnustarfs- manna I stettarfélögum. Ennfremur segir I ályktuninni: „Ef slikur samninguryröi geröur væri eðlilegast aö hin einstöku landssambönd innan ASÍ skipuöu fulltrfia i samninganefnd i hlut- falli við fjölda samvinnustarfs- manna innan hvers lands- sambands, og þessir fulltrúar yröu fyrst og fremst úr röðum samvinnustarfsmanna. Þá kæmi til greina aö önnur launþegasamtök en ASl ættu fulltrúa i þessari samninganefnd, ef hópar samvinnustarfsmanna eru innan þeirra. Sambandsstjórn LIS er ein- dregiö þeirrar skoöunar aö sam- vinnustarfsmenn eigi ekki aö kljúfa sig úr stéttarfélögunum og samvinnustarfsmenn eigi aö vinna að bættum kjörum sinum innan verkalýöshreyfingarinnar. Fundurinn ítrekar fyrri samþykktir LIS um stofnun sérstaks orlofeheimilasjóös innan samvinnuhreyfingarinnar og telur þaö mjög óréttlátt, að sam- vinnufélögin haldi áfram aö greiða i' orlof sheimilasjóöi stéttarfélaganna á sama tima og samvinnustarfsmenn hafa byggt og annast rekstur tuga orlofshúsa um landallt án nokkursstuönings frá stéttarfélögunum. Þá telurfundurinn aö ekki megi dragast öllu lengur aö samvinnu hreyfingin stofni sérstakan fræöslusjóö, ekki sist meö tilliti til stóraukins námskeiöahalds á vegum Samvinnuskólans fyrir samvinnustarfsmenn. Varöandi þessi mál og fleiri er nauösynlegt að þær hugmyndir, sem komið hafa fram um skipan þessara mála, veröi kynntar meöal allra samvinnustarfs- manna og þær skýröar sem best. Jafnframt verði gerð skoöana- könnun meðal allra samvinnu- starfsmanna i landinu, þar sem leitaö veröi eftir áliti þeirra og niöurstööur liggi fyrir voriö 1979, þannig að næsta landsþing LÍS geti tekið ákvaröanir um næstu skref samvinnustarfsmanna i þessuthálum. Samvinnustarfsmenn eru nU langfjölmennasti starfshópur I landinu aö rlkisstarfsmönnum frátöldum, og hafa um margt verulegasérstööu, ekkisist vegna þess að samvinnufyrirtækin eru I eðli sinu gjöróllk fyrirtækjum I einkarekstri. Leiöir samvinnuhreyfingar- innar og verklýðshreyfingarinnar liggja hins vegar saman i fjöl- mörgum málum. Um leið og sam- vinnustarfsmenn eiga aö láta mun meira til sln taka I stéttar- félögunum, en þeir hafa gert til þessa, eiga þeir um leið aö stuðla að sem bestu samstarfi þessara tveggja voldugu fjöldahreyf- inga.” Að lokum má geta þess aö LIS er fimm ára á þessu ári, en aöildarfélögin eru nU 37 talsins og hefur meirihluti þeirra veriö stofnaður á þessu fimm ára tima bili. opnar í dag, að Vagnhöföa '11. Opnum kl. 7.30 á morgnana. Framreiöum rétti dagsins í hádeginu og á kvöldin, ásamt öllum tegundum grillrétta, allan daginn. Útbúum mat fyrlr mötuneyti, einnig heitan og kaldan veislumat, brauö og snittur. Sendum heim ef óskað er. Pantið (síma 86880. UAGMHÖFOA11 REYKJAVlK SlUI 80800 ^rOiMEiQ VEITINGAHÚ8 TM sölu Fiögur 4. vetra hross undan Tvifara, frá Hesti. Upplýsingar gefur Arni Kristinsson, Hrisey. Simi: 61754. Þakjárn Notað þakjárn til sölu Upplýsingar i simum 1142 og 1393 Kefla- vik. Sunnlendingar - bændur og byggingamenn Höfum fyrirliggjandi töluvert magn af timbri i ýmsum stærðum á hagstæðu verði. Heflum og sögum timbrið samkvæmt óskum yðar, yður að kostn- aðarlausu. Komið eða hringið og við veitum allar nánari upplýsingar. Byggingafélagiö Dynjandi s.f. Gagnheiði 11 Selfossi Simi 99-1826 og 99-1349 Orðsending til bænda Ath. að veturinn er rétti timinn til að láta yfirfara búvélarnar. Siminn okkar er 99-4166. Bila & búvélaverkstæði A. Michelsen Hveragerði Nýr umboðsmaður Timans á Rifi er Snædís Kristinsdóttir Háarifi 49 — Simi 6629

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.