Tíminn - 10.11.1978, Blaðsíða 13

Tíminn - 10.11.1978, Blaðsíða 13
12 Föstudagur 10. nóvember 1978 Föstudagur 10. nóvember 1978 13 Hraðamælabarkar í flestar gerðir bifreiða Fólksbifreiðar: Verð kr. Austin Mini 2.820.- Benz 200/220/240 3.000.- Benz 200/220/240 Auto 3.200.- Chrysler 160/180 3.500.- Citroen 2CV 2.820.- Citroen 1D/DS19/DS21 3.500.- CoTtina ’67—’70 3.500,- Datsun 1600/1200 > 3.500,- Fiat 124/125/128 2.820.- Fiat 850 3.700,- Hiilman hunter 3.500.- Land Rover Bensin 3.200.- Land Rover Diesel 3.700,- Opel Manta/Ascona 3.200.- Opel Rekord ’70-’71 3.000,- Peugeot 405/504 3.500.- Range Pover~ 3.700,- Renault R16 3.500,- Saab 96 ’66-’78 3.000.- Simca 3.200,- Skoda 110 3.700,- Toyota Crown/Corolla 2.820.- Trabant 3.000,- Willys Jeep 3.500.- Vauxhall Viva 3.700.- Vörubifreiðar: Volvo Verö Kr. 7.600.- Benz 6.600.- Scania 7.600.- M.A.N. 7.600.- Sérsmiöum einnig barka i flestar aðrar bifreiðar en hér eru taldar upp. Vinsamlegast sendið okkur þá gamla barkann. SENDUM í KRÖFU ■Jfctmæla- verkstæðið / S/mmai S^þzeiman Lf. - I.V'U! ..VOSBRAUT 1S 105 REYKJAViK • SÍMI 91-35200 Kaupmenn - Kaupfélög Remington - Remington eigum til takmarkaðar birgðir af rjúpna- skotum, riffilskotum, einhleypum og margskota haglabyssum. Ó. H. Jónsson h/f Laugarveg 178 Símar 83555 og 83518 Innkaupastióror Tajaiavörur Jólavörur Erum að taka upp mikið úrval af leikföngum jóla- og gjafavörum Úrvalið hefur aldrei verið meira Allt verð ó gömlu gengi eða lítið inn Leikstjóri „Pretty Baby” „Kyn: ferðis- lega af- brigði- legur? — A L1 L S1 E K1 K1 [” Brooke Shields i hlutverki Violet. Háskólabió mun taka til sýninga einhvern tima á næsta ári ef til vill i april-mai, hina margum- töluðu amerisku biómynd „Pretty Báby.” Leik- stjórinn er franskur,Louis Malle og aðalleikarinn er Brooke Shields, tólf ára gömul sjónvarps- stjarna. Brooke leikur jafnöldru sina i myndinni, gleðikonu i Nýju-Orléans og er sögð hrifandi. Ekki hafa allir orðið jafn hrifnir, og er „Pretty Baby” t.d. bönnuð i Toronto i Kanada. Louis Malle leikstjóri meö börnum sinum og þýskri leikkonu, vin- konu sinni. Kastaii leikstjórans I baksýn. Fyrirsætan, barnung stúlka ' Louis Malle er undrandi yfir þeim neikvæöu viðbrögðum sém „Pretty Baby” hefur kallað fram og dró sig í hlé strax eftir kvik- myndahátiðina i Cannes, þar sem mynd hans var frumsýnd. Louis býr i kastala i Lot héraöinu i Frakklandi en sá kastali hefur verið byggður á ýmsum timum, 14., 17. og 18. öld. Gestkvæmt er hjá Louis, en hann vill helst hafa i kringum sig, 6 ára son sihn Qote- moc og Justine dóttur sina 4 1/2 árs. Qotemoc fæddist i Mexikó og hlaut nafn eftir eirium af keisurum Asteka. „Kvikmyndina varð að taka i Nýju-Orléans, segir Louis Malle og ihenni vildi ég hafa ameriska leik- ara. Fyrst kveið ég fyrir þessu öllu. Ég tala að visu ágæta ensku en þaö er hættuspil fyrir franskan leik- stjóra að fara inn á ameriska markaðinn og þangað inn varö ég að þröngva mér eins og óboðinn gestur. Sagan um „Pretty Baby” gerist i byrjun þessarar aldar i hóruhúsi i Nýju-Orléans. Nánar tiltekið I Storyville-hverfinu. Þetta er ljúf ástarsaga i fyrstu en siðan harm- söguleg, — milli ljósmyndara og tólf ára gamallar stúlku. Ég fékk hugmyndina úr bók, sem vinkona min sendi mér og bar nafnið „Ljós- myndir frá Storyville”. Ljós- myndirnar eru eftir Bellocq nokkurn, franskan mann að uppruna. Bellocq þessi hafði sér- staklega sérhæft sig i myndum af gleöikonum i Storyville um 1910. Ég rannsakaði gaumgæfilega hverja mynd.las mér til um lif Bellocqs og tók fyrir sögu Nýju-Or- léans á þessum tima. Þegar ég hafði flett bókinni tók ég eftir þvi að mjög oft var fyrirsætan sú sama Louis Malle með Brooke Shields viö töku myndarinnar „Pretty Baby” I Nýju-Orléans. barnung stúlka. Þetta snart mig mjög og „Pretty Baby” varö til. Titil myndarinnar sótti ég i sam- nefnt jasslag eftir pianóleikarann Jerry „Roll” Morton, sem hann samdi i byrjun aldarinnar. I myndinni er lýst þeirri miklu ást sem ljósmyndarinn hefur á Violet gleðikonunni ungu.” Ekki kynlifsmynd En kvikmyndin kemur á óheppi- legum tima þegar menn eru aö vakna upp við það aö barnavændi er stundað i stórum stil i Banda- rikjunum.Malle erásakaður um að vera kynferðislega spilltur. Samt er þetta ekki kynlifsmynd, þvert á móti. Hún er miklu nær „Lisu I Undralandi” og langt frá kynæsandi myr.dum fyrir gamla karla. Malle segir að einnig hafi hann verið ásakaður um aö hafa „eitraö fyrir” hina barnungu leikkonu með þvi aö láta hana i þetta hlutverk. En hann treystir á greind Brooke. „Brooke var i sviðsljósinu fyrir og þar þekkir hún hvern krók og kima. Þriggja ára var hún farin að sýna, leika i sjónvarpsauglýsingum og sjónvarpsleikritum. Hún þekkir áhætturnar. Ég fór með hana sem leikkonu og sem barn,_hvorki meira né minna. Mér er hlýtt til persónunnar, sem hún leikur,en að ég hafi elskað Brooke eða notfært mér hana á annan hátt er lygi. Ég er. ekkert afbrigðilegur kynferöis- Þetta er stúlkumyndin sem varð kveikjan að „Pretty Baby.” Mynd- in er frá 1910. Parið i „Pretty Baby” Brooke og Keith Carradine, sem leikur ljós- myndarann. lega.” Malle og Brooke hafa ekkert sést eftir að töku myndarinnar lauk.en Malle hýsir nú i kastala sinum sjarmerandi leikkonu Susan Sarandon,sem leikurmóður Violet i „Pretty Baby”. Ástir Malle og Sus- an ættu að fá illar tungur til þess að þagna. Þýtt. „Ræflarokkarar” láta ekki deigan síga — þrjár „ræflarokks”hljómsveitir á lista i Lundúnum og allar á uppleið ESE — Hver var aö segja aö ,,pönkið” væri útdautt? A Lundúnalistanum i þessari viku eru þrjú lög meö ekta „pönk” hljómsveitum og þaö þeim alhörðust u I bransanum. Boomtown Rats, The Public Image og Sham 69 eru allar á uppleið með sin lög, og þvi er almennt spáö aö „Rotturnar” komist i fyrsta sæti listans innan skamms, svo fremi John Travolta lætur sæti sitt eftir. Um listann í Lundúnum í þess- ari viku er annars það að segja að skötuhjúin Jón og Ólivla hrapa með „Summer Niets” niður i þriöja sæti erer Travolta sjálfur |. um. í staöinn erTravolta sjálfur kominn á toppinn og Olivia skýst upp f niunda sætið með lagiö „Hopelessly Devoted to You”. 1 New York tókst Donnu Summer að komast á toppinn á kostnað Nick Gilder sem hrapar sem þvi' nemur eöa niður i annað sætið. Exile halda sinu og Foreigner vinna á um eitt sæti. Rolling Stones og Captain and Tennille eiga það sameiginlegt að i þrjár vikur hafa þessir aðilar haldiö sig i sömu sætunum, Stones Iþvi sjöunda og þauhjóna- korn 1 þvi tiunda. Aðeins eitt nýtt lag kemst inn á listann i þessari viku, en þaö er gamli popparinn Barry Mainlow sem á heiðurinn af þvi. London — Music Week 1 aanay......................................j0hn Travolta 2 (5)RatTrap ............................... Boomtown Rats 3 (1) Summer Nights ......John Travolta og Olivia Newton-John 4 (3) MacArthur Park.........................Donna Summer 5 (8) Blame Iton the Boogie .......................Jacksons 6 (4) Rasputin .................................... BoneyM. 7 (7) The Pubiic Image ....................Public Image Ltd. 8(10)Darlin’.................................. Frankie Miller 9(27) Hopelessly Devoted to You ..........Olivia Newton-John 10(14) HurryupHarry ................................. Sham 69 New York — Billboard 1 (2) MacArthur Park......................... Donna Summer 2 (1) Ilot Child in the City .................... Nick Gilder 3 (3) Kiss You All over .............................. Exile 4 (4) You Needed Me ...........................AnneMurray 5 (6) DoubleVision ............................... Foreigner 6 (8) How Much I Feel .............................Ambrosia 7 (7) Beastof Burden...........................Rolling Stones 8 (5) Whenever I Call You „Friend”............ Kenny Loggins 9(11) Ready to Take á Chance again ........... Barry Mainlow 10(10) You never Done it like That ... Captain and Tenuille Gunnar er kominn heim — með sólóplötu I pússi sfnu ESE — Gunnar Þóröarson er nd nýkominn heim frá Bandarikjunum þar sem hann hefur unnið aö tónsmiðum sfnum. Heim er hann kominn með afrakstur erfiðis sins tvöfalda sólóplötu sem gefin veröur út n.k. mánudag af hljómplötufyrirtæki Gunnars Ými h.f. Til kynningar plötunni veröa haldnir hljómleikar með Gunnari 19. nóv. n.k. I Háskólablói og veröa honum til aöstoðar margir af bestu hljómlistarmönnum lands- i ins. Ttyísta sólóplata Lindu Gisladóttur ESE — Út er komin ný plata með Lindu Gisladóttur sem gerði garðinn frægan með Lummunum og er þetta fyrsta sóióplata Lindu. Platan sem heitir einfaldlega „Linda”, hefur aö geyma tiu erlend lög sem vinsæl hafa orðið viða um heim i seinni tið. Undir- leikurinn er i höndum danskra „session” manna og hljóðritaður þar ytra. Allar raddsetningar eru unnar hér heima og var þaö verk I höndum Jóhanns Eiriksson- ar sem einnig syngur I einu laganna en um upptökustjórn sá Garöar Hansen. Útgefandi plötunnar er Steinar h.f.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.