Tíminn - 29.12.1978, Blaðsíða 6

Tíminn - 29.12.1978, Blaðsíða 6
6 Föstudagur 29. desember 1978 r Útgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þóararinsson og Jón Sigurftsson. Auglýsinga- stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og auglýsingar Sibumúla 15. Slmi 86300. — Kvöldsimar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verö i lausasölu kr. 125.00. Askriftargjald kr. 2.500.00 á mánuöi. Blaöaprent J Erlent yfirlit Starf shættir CIA í íran valda deilum Brzezinski vildi ekki móðga keisarann Óvænt þroskamerki? Reynsla þess árs sem nú er að renna skeið sitt á enda hlýtur að verða lengi minnisstæð. Á þessu ári risu pólitiskir úfar hærra en oftast hefur verið sið- asta mannsaldurinn, meira var lagt undir i hinu pólitiska valdatafli en lengst af hefur verið gert, og meiri umskipti urðu á stjórnmálavettvangi en menn muna siðan i siðari heimsstyrjöld. Þegar hér er komið sögu er of snemmt að spá um það hvort hér hafa orðið varanleg kaflaskil eða hvort aðeins er um að ræða hávært öldugjálfur sem siðan hjaðnar. Hvað sem þvi liður virðist það þó greinilegt að helstu sigurvegarar kosninganna i sumar eð leið, Alþýðuflokksmenn, sýnast tæpast færir um að standa svo i istaðinu að likur séu á þvi að þeir haldi fyllilega velli til frambúðar. Kemur slikt sumum á óvart, en öðrum ekki. Gott og afskaplega greinilegt dæmi þessa er furðuleg ritsmið Vilmundar Gylfasonar i málgagni hans, Dagblaðinu, nú rétt fyrir hátiðarnar. Eftir lýsingu Vilmundar að dæma virðist ástæða til að draga úthald Alþýðuflokksins mjög i efa, og verður þó að vona að hann endist til þeirra mikilsverðu efnahagsaðgerða sem fram undan eru með nýju ári og til þeirrar mótunar gerbreyttrar efnahagsstefnu sem ráðin er. Samkvæmt málflutningi Vilmundar Gylfasonar er ekkert það Alþýðuflokknum að kenna sem miður hefur farið, og ekkert öðrum að þakka sem vel hefur til tekist. Þessi alþingismaður leyfir sér á opinber- um vettvangi að hafna ábyrgð á þvi sem honum sjálfum sýnist, enda þótt hann hafi ásamt samherj- um og flokksbræðrum átt fullan þátt að ákvörðun- um. Jafnvel atkvæði hans á Alþingi á þannig að vera á ábyrgð annarra manna og flokka, og er þetta a.m.k. óneitanleg nýlunda og undarleg og ber nýstárlegu pólitisku stolti vitni. VERULEG deila hefur hafizt milli stjórnarstofnana I Banda- ríkjunum vegna atburöanna, sem nú eru aö gerast i íran. Deila þessi hefur vakiö meiri at- hygli en ella sökum þess, aö hún snýst um starfsemi njósna- stofnunarinnar, sem gengur venjulega undir skammstöfun- inni CIA (Central Intelligence Agency), en hlutverk hennar er aö afla upplýsinga fyrir stjórn- ina um stjórnmálaástand og efnahagsþróun I öörum löndum. Upplýsingar þær, sem stofnunin aflar sér, byggjast jöfnum höndum á opinberum gögnum og njósnum. Starfshættir henn- ar hafaoftverið umdeildir ogþó ^.einkum, þegar hún hefur fariö inn á þaö sviö aö reyna aö hafa áhrif á stjórnmál annarra rikja eftir ýmsum krókaleiöum. Þannig var þaö hún, sem undir- bjó hina misheppnuöu innrás viö Svinaflóa á KUbu. Framangreind deila hófst á þann hátt, aö Carter forseti lét ótvirætt i' ljós, aö hann væri óá- nægöur yfir þvi, aö atburöirnir i tran heföu komiö honum og stjórninni á óvart, þar sem upp- lýsingar frá CIA heföu reynzt ó- fullnægjandi. Forsetinn og stjórnin heföu ekki fengiö næga vitneskju um, hvernig stjórn- málaástandiö var I raun og veru og hún heföi þvl metiö stjórn keisarans fastari I sessi en nú virtist komiö á daginn. Carter lét þessa óánægjusina I ljós oft- ar ai einu sinni. Hann fylgdi þessari gagnrýni svo óbeint eft- ir meö þvi' aö senda George Ball, fyrrum utanrikisráöherra, sem persónulegan fulltrúa sinn til trans I þeim erindum aöafla þar upplýsinga og byggja svo á þeim tillögur um afstööu Bandarikjanna. HVORKI CIA né utanrikis- ráöuneytiö, en tengsl eru milli þessara aöila, töldu sig geta unaö viö þessa gagnrýni for- setans. Opinberlega gátu þessir aöilar ekki svaraö honum og var því farin sú venjulega leiö, þeg- ar þannig stendur á, aö láta upplýsingar „leka” til eins af bandarisku stórblööunum. Aö þessusinni, eins og oft áö- ur, varö New York Times fyrir Það verður alveg látið vera þótt Vilmundur Gylfason telji sig i þessari fáheyrðu grein — og er þá mikið sagt — þurfa að sletta illindum i sam- starfsmenn sina i rikisstjórn og stjórnarflokkum. Þá sibylju hafa menn heyrt svo lengi að hún er sem jöfn suða fyrir eyrum. Hún er að visu óþægileg, einkum svona til lengdar, en stundum svolitið kitl- andi i barnaskapnum eða grátbrosleg i ósvifninni. En meðan blessaður maðurinn geldur atkvæði sitt, eins og hingað til, þegar á þarf að halda verður ekki gert mikið veður af þvi þótt hann vilji gera aðra á- byrga fyrir þvi sem hann þó gerir vel! Hitt er innanflokksmál Alþýðuflokksins að Vilmundur skuli telja sig þurfa að óvirða ráðherra og leiðtoga Alþýðuflokksins sjálfs i þessari kostu- legu blaðagrein sinni. Á þvi sviði hefur hann greini- lega nægilegt úthald enn, og myndu þó ýmsir — jafnvel i öðrum flokkum — telja að þar væri nóg starfað að sinni. Undarleg er sú reynsla þessa árs að þvi hærra sem bylur i einum samstarfsfiokknum i rikisstjórn- inni, Alþýðuflokknum, þeim mun spakari verður flokkurinn þegar til úrslita dregur i ákvörðunum, og verður þetta vist að teljast óvænt þroskamerki þótt áleiðis megi heyra tómahljóð úr þessari átt. JS' valinu. I slöustu viku birti blaöiö itarlega fréttagrein, þar sem þaö var upplýst I fyrsta lagi, aö keisarastjórnin heföi óskaö eftir þvi fyrir meira en áratug, aö hvorki CIA né bandariska utan- rikisþjónustan heföu samband viö stjórnarandstæöinga I Iran, heldur létu sér nægja aö fá um þá upplýsingar frá leyniþjón- ustu keisarans, sem haföi aö verulegu leyti veriö skipulögö af CIA. Akveöiö var af æöri banda- riskum stjórnarvöldum aö taka þessar óskir til greina. Bæöi CIA og utanrlkisþjónustan létu sér þvi nægja þær upplýsingar, sem Iranska leyniþjónustan veitti þeim um stjórnarandstöö- Gcorge Ball Brzezinski ogátti þaðsinnþátt I þvl, aö for- setinn og stjórnin voru jafn ó- viöbúin þeim atburöum, sem undanfarið hafa veriö aö gerast I Iran, og raun ber vitni. FÁTT eöa ekkert er nú meira ^hýggjuefni Bandarlkjastjórn- ar en atburöirnir, sem nú eru aö gerast I íran, og hvernig bregöast skuli viö þeim. Rich- ard Helms, fyrrum yfirmaöur CIA og fyrrv. sendiherra I Iran, telur Bandaríkjastjórn ekki eiga annars kost en aö styöja keisarann I lengstu lög. George Ball, sem áöur er nefndur, mun hins vegar telja stuöning viö keisarann vonlaust mál úr þessu og Bandarikin eigi aö reyna aö stuöla aö borgaralegri stjórn, sem veröi hliöholl Vest- urveldunum. Þaö mun hins veg- ar auöveldara sagt en gert aö koma því i framkvæmd. Það gæti haft hinar alvar- legustu afleiðingar fyrir vest- ræn rlki, ef til valda kæmi I Iran rikisstjórn, sem væri óvinveitt þeim, þótt hún væri ekki frekar á bandi Rússa en þeirra. Stjórnin I Iran ræöur ekki aðeins yfir olluframleiöslunni þar, heldur getur haft mikil áhrif I öðrum olluframleiöslulöndum viö Persaflóa.- Ef Bandarlkjastjórn heföi fengiö réttar upplýsingar um stjómmálaástandiö i Iran, heföi framvindan þar getaö oröiö meö allt öörum hætti. A grundvelli þeirraupplýsinga, sem stjórnin fékk, hvatti Carter keisarann til aö auka frjálsræöi, sem siöar gaf stjórnarandstööunni byr I seglin. Vafalaust heföi Carter hvatt keisarann aö fara gæti- legar i' sakirnar, ef hann heföi vitað hið rétta. Þ.Þ. una 1 tran. Þær upplýsingar, sem CIA aflaöi sér til viöbótar, beindust aöallega aö þvi aö fylgjast meö starfsháttum og undirróöri Rússa I íran. Þrátt fyrir þaö, þótt íranska leyniþjónustan gæfi til kynna, aö aUt væri meö felldu I Iran, fóru CIA og utanrlkisþjónustan aö hafa áhyggjur af því snemma á þessu ári, aö keisarastjórnin nyti ekki þess trausts þjóðar- innar, sem skyldi. Þetta kom m.a. fram I sambandi viö viö- ræöur um aukna vopnasölu Bandarlkjanna til lrans. CIA og utanrikisráöuneytiö fóru þvi fram á aö mega kynna sér þessi mál betur. Sérstakur ráöunaut- ur forsetans I öryggis- og al- þjóöamálum, Zbigniew Brzezinski, kippti þá i spottann. Hann taldi slikt geta móögaö keisarann, en Bandaríkin þyrftu á vináttu hans aö halda. Ekkert varö þvl úr umræddri athugun Richard Hetms

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.