Fréttablaðið - 31.08.2006, Qupperneq 21
FIMMTUDAGUR 31. ágúst 2006 21
sem fylgir því að framleiða vottað-
ar lífrænar vörur, það verður
markaðurinn að borga.“ Haraldur
segir að þeir sem hafa þraukað í
lífrænni ræktun séu farnir að upp-
skera árangur erfiðis síns og með
bættri afkomu og heilsuvitund
þjóðarinnar þá vaxi slík ræktun.
„En það hefur engin umræða farið
fram innan samtakanna um að
setja sérstakt fjármagn í að efla
lífræna ræktun umfram það sem
nú er gert.“
svavar@frettabladid.is
Stjórnvöld vilja efla lífræna
framleiðslu í sv eitum landsins
Innan landbúnaðarráðuneytisins er vilji til að efla lífræna framleiðslu. Skilyrðið er áhugi bænda og bændasam-
taka. Formaður Bændasamtaka Íslands vill ekki sækja aukakostnað við framleiðslu til ríkisins heldur til neytenda.
HARALDUR BENEDIKTSSON
FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR
DVALARLEYFI Sex konur frá ríkjum
utan EES-svæðisins leituðu til
Alþjóðahúss á dögunum, því útlit
var fyrir að þær yrðu sendar úr
landi í kjölfar skilnaðar við eigin-
menn sína. Sumar kvennanna
höfðu verið beittar heimilisof-
beldi. Dómsmálaráðuneytið og
Útlendingastofnun hafa nú tekið
saman lýsingu á gildandi lögum
um þessi mál.
Þegar útlendingi sem dvelur á
landinu er synjað um dvalarleyfi
er honum gert að yfirgefa landið
innan ákveðins tíma af sjálfsdáð-
um. Ef hann verður ekki við því
kveður Útlendingastofnun á um
brottvísun og útlendingnum er
gefið færi á að koma útskýring-
um sínum á framfæri.
Þegar útlendingur leiðir dval-
arleyfi sitt af hjúskapi, en skilur
við maka sinn vegna heimilisof-
beldis, geta stjórnvöld skoðað
hvort hægt sé að veita honum
dvalarleyfi af mannúðarástæð-
um. Þau leyfi eru einungis veitt
ef rík mannúðarsjónarmið standa
til þess eða ef útlendingurinn á
sérstök tengsl við landið. Dæmi
um það hvenær þetta ákvæði má
nýta er til dæmis ef náinn aðstand-
andi útlendingsins veikist skyndi-
lega eða hann hefur verið búsett-
ur á landinu til lengri tíma.
Hvert mál verður þó að meta
sérstaklega, að sögn dómsmála-
ráðuneytis, og alla málavexti
verður að kynna Útlendingastofn-
un. - sgj
Dómsmálaráðuneytið segir fórnarlömb heimilisofbeldis geta fengið dvalarleyfi:
Mannúðarsjónarmið ráða för
DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ Útlendingar geta
fengið dvalarleyfi ef mannúðarsjónarmið
eða sterk tengsl viðkomandi við landið eru
tekin til greina.
BRETLAND Lagt hefur verið til að
konur sem teljast eiginlegir offitu-
sjúklingar fái ekki að fara í frjó-
semisaðgerðir í Bretlandi, nema
þær fari fyrst í megrun. Hjá
akfeitum konum mun vera mikil
hætta á ýmsum kvillum á með-
göngu.
BBC greinir frá því að frjósemis-
stofnunin hafi einnig lagt til að
konum á fimmtugsaldri verði
neitað um gervifrjóvgun, sem og
konum sem eru langt undir meðal-
þyngd. Lesbíum á hins vegar að
hleypa í frjósemisaðgerðir og
sama gildir um konur sem reykja.
- kóþ
Breska frjósemisstofnunin:
Akfeitar verði
ekki frjóvgaðar
EÐ
A
LD
A
G
A
R
Laugavegur
VW Touareg V8 4,2
skráður 10/05 ek. 10.000
verð 7.190.000 kr.
Laugavegur
MMC Pajero 3,5 GLS
skráður 06/00 ek. 103.000
verð 2.190.000 kr.
Laugavegur
Lexus IS200
skráður 04/04 ek. 35.000
verð 2.600.000 kr.
Laugavegur
VW Passat Highline 2,0 Turbo
skráður 11/05 ek. 7.000
verð 3.650.000 kr.
Laugavegur
Mercedes Benz ML 270 Cdi
skráður 09/05 ek. 26.000
verð 5.640.000 kr.
*M.v. SP-bílasamninga
TÓKÝÓ, AP Rússnesk yfirvöld
slepptu í gær japönsku fiskimönn-
unum tveimur sem handteknir
voru um miðjan mánuðinn fyrir
ólöglegar veiðar í lögsögu Rúss-
lands.
Handtakan olli nokkrum titr-
ingi í samskiptum þjóðanna, en
Rússar skutu þriðja sjómanninn
til bana við handtökuna. Sá fjórði,
skipstjórinn, verður áfram í haldi
rússneskra yfirvalda, en hann seg-
ist bera gjörvalla ábyrgð á atvik-
inu. Einnig var skipinu sjálfu hald-
ið eftir og harmaði talsmaður
japanskra yfirvalda það, en þau
eru síst ánægð með framgöngu
Rússa í málinu. - kóþ
Deila Rússa og Japana:
Sjómönnunum
sleppt úr haldi