Fréttablaðið - 31.08.2006, Síða 39
FIMMTUDAGUR 31. ágúst 2006 9
Haustvörurnar streyma inn hjá
Lauru Ashley í Faxafeni 14.
„Við fáum nýjar vörur hálfsmán-
aðarlega,“ segir Rósa Björg Óla-
dóttir, verslunarstjóri í Lauru
Ashley, sem er til húsa inni í Z-
brautum og gluggatjöldum. Rósa
segir haustlistann einnig kominn
með mörgum fögrum hlutum sem
auðvelt sé að panta. Spurð um
helstu nýjungar nefnir hún sem
dæmi glös, glasamottur og körfur
og segir líka aukna áherslu lagða á
húsgögn þetta haustið. „Svo er að
koma ljósatími og við mætum
honum með úrvali af yndislegum
kertum og lömpum.“
Körfur, glös
og kerti
Körfur undir dagblöð og hannyrðir koma
sér alltaf vel.
Kertatíminn er að renna upp.
Ný glös og glasabakkar eru meðal þess
sem haustlisti Lauru Ashley býður.
„Multi-chair“ stóllinn var hannaður
af Joe Colombo árið 1970 og fór í
framleiðslu sama ár. Stóllinn sam-
anstendur í raun af tveimur pullum
eða sessum sem hægt
er að nota saman eða
hvora í sínu
lagi. Hægt er
að sveigja
þær til og
frá til að
móta stólinn
allt eftir því
hvað maður
kýs á hverjum
tíma.
Stóllinn
Endalausir
möguleikar
Vinsældir loftkælingar í sumar-
húsum hafa aukist nokkuð upp
á síðkastið, íslensk veðrátta
býður þó ekki endilega upp á
loftkælingin sjálf sé mikið not-
uð heldur þykir tæknin nýtast
mjög vel við að hita upp húsin.
Loftkælikerfi þykja mjög hentug
til þess að halda hita á öllum gerð-
um sumarhúsa allt árið um kring.
Þykja kerfin orkusparneytin og
með notkun þeirra getur
rafmagnsreikningurinn lækkað
umtalsvert miðað við hefðbundna
rafmagnsofnakyndingu.
Artel fyrirtækið sem framleið-
ir loftkælikerfi hefur lagt mikið
upp úr hönnun og útliti tækjanna. Í
stað stórra klunnalegra tækja líkt
og þau sem hanga uppi á vegg í
flestum hótelherbergjum erlendis,
hefur fyrirtækið hannað nýtísku-
leg tæki með það að leiðarljósi að
passa vel inn á nútímaleg heimili.
Þannig minnir Artel Vita loftkæl-
ingin fremur á plasmaskjá en
nokkuð annað. Með tækinu kemur
fjarstýring þar sem hægt er að
stilla hitastigið í húsinu. Alkul
Celsius er söluaðili þessara fallegu
tækja hérlendis. - vör
Nýtískuleg hönnun
Artel Vita loftkælikerfin minna helst á
plasmasjónvörp.
Þarfasta þjóninn í eldhúsinu
þarf líka að þrífa.
Loksins keyptir þú uppþvottavél-
ina sem þig hefur langað að eignast
í mörg ár. Nú þarftu aldrei aftur að
þrífa neitt í eldhúsinu. Nema auð-
vitað uppþvottavélina sjálfa.
Uppþvottavélar safna í sig
miklum óhreinindum og það er
ekki heiglum hent að þrífa þær, þó
að heita vatnið og sápan séu vissu-
lega til staðar. En skánin sem
myndast þegar matarolíur og
sápan sameinast er næstum því
óávinnanleg. Ef þú setur reglu-
lega einn bolla af hvítu ediki í vél-
ina og lætur hana ganga heilan
þvott án leirtaus kemur þú í veg
fyrir að skánin byggist upp.
Annar möguleiki er að nota
sítrussýruduft. Þá er sápuhólfið
í vélinni fyllt með því og hún svo
látin ganga heilan hring án leir-
taus.
Að þrífa uppþvottavél
Uppþvottavélar geta orðið óttalega sóða-
legar að innan.