Fréttablaðið - 31.08.2006, Síða 44
■■■■ { eldhús og bað } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■4
„Ég var gripin svaðalegri hreiður-
gerð þegar ég var barnshafandi af
Friðrik Helga, syni okkar Eyva, eins
og algengt er hjá verðandi mæðr-
um. Ég vildi meðal annars færa
eldhúsið í nútímalegra horf en inn-
réttingin og fleira voru í gamaldags
stíl,“ segir Rósa um tilurð róttækra
breytinga sem gerðar voru á eldhúsi
hjónanna.
„Tilgangurinn var meðal annars að
fjölga hirslum og hressa upp á eldhús-
ið með allsherjar yfirhalningu,“ heldur
Rósa áfram. „Innréttingin hafði marg-
sinnis verið máluð í gegnum tíðina í
óteljandi litum; bláu, bleiku og gulu,
þannig að komið var þykkt málning-
arlag á hana. Okkur þótti því tímabært
að skipta henni út.“
Rósa og Eyjólfur völdu sér
fallega eikareldhúsinnréttingu frá
HTH og gráar gólfflísar frá Agli
Árnasyni þar sem þau vildu hafa
bjart umhorfs í eldhúsinu og skapa
tilfinningu fyrir góðu rými. Þar sem
eldhúsið er tiltölulega stórt fannst
þeim tilvalið að sameina eldhús og
borðstofu í eitt og komu því fallegu
gömlu borðstofusetti fyrir í eldhús-
inu, þar sem fjölskyldan snæðir nú
saman kvölds og morgna auk þess
sem gestum er boðið í mat.
Nýr ofn, háfur, ísskápur og upp-
þvottavél voru einnig keypt en sú
gamla endaði uppi í sumarbústað
hjá foreldrum Eyjólfs, ásamt eik-
arplötunni af upprunalegu eldhús-
innréttingunni.
Að sögn Rósu var verkið tíma-
frekt og hún þakkar sínum sæla fyrir
að þeim skyldi hafa lokið tveimur
vikum áður en Friðrik Helgi fæddist
þar sem ekki hefði verið heilsusam-
legt fyrir nýfætt barnið að vera í
öllu rykinu. Eyjólfur flísalagði með
aðstoð vinar síns en starfsmaður
HTH setti upp innréttinguna og er
útkoman afar glæsileg. - rve
Eldhús og borðstofa á
einum og sama stað
Svanhildur Rósa Friðriksdóttir viðskiptafræðingur hjá Símanum og Eyjólfur Þór Jónas-
son tölvunarfræðingur hjá Landsbankanum endurnýjuðu eldhúsið sitt þegar fjölgaði í
fjölskyldunni.
Rósa, Eyjólfur og sonurinn Friðrik Helgi hafa það náðugt í stofunni heima, en foreldrarnir
vörpuðu öndinni léttar þegar ljóst var að eldhúsið yrði tilbúið áður en nýfæddur sonurinn
kæmi heim. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
Þessi myndarlegi háfur fæst í Bræðrunum
Ormsson, þar sem flest nýju eldhústækin
voru keypt. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
Ísskápur frá Bræðrunum Ormsson er
krómaður og ljær eldhúsinu ákveðinn
nýtískulegan blæ. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
Eldavélin úr Bræðrunum Ormsson, en sú
gamla fékk að fjúka ásamt uppþvottavél
sem var ofan í innréttingunni en ekki
framan á eins og tíðkast. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
Við þetta fallega borðstofuborð snæðir
fjölskyldan saman, en þar sem eldhúsið er
15 fermetra stórt ákváðu þau að sameina
eldhús og borðstofu í eitt. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
Stór gluggi gerir það að verkum að ávallt er bjart inni í eldhúsinu en hjónin máluðu allt í
ljósu til að ýta enn frekar undir áhrifin. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
Hér sést Eyjólfur að störfum í eldhúsinu.
Það tók nokkra mánuði að koma því í
núverandi mynd enda var nánast öllu skipt
út. MYND/SVAHILDUR RÓSA FRIÐRIKSDÓTTIR
Fyrir breytingarnar. Gamla innréttingin var gerð í kringum 1960 og hafði verið máluð marg-
sinnis í gegnum tíðina þannig að þykkt málningarlag var á henni. Hjónin sáu ekki annað í
stöðunni en að losa sig við hana. MYND/SVANHILDUR RÓSA FRIÐRIKSDÓTTIR
Handklæði eru ómissandi á öll bað-
herbergi hvort sem þau eru einung-
is notuð til þess að þurrka sér með
eða höfð til skrauts. Handklæði geta
verið í öllum stærðum, gerðum og
litum allt eftir því hvað hver og
einn vill en þó að þessi hvítu venju-
legu komi alltaf að góðum notum
er oft skemmtilegra að hafa þau í
einhverjum líflegum lit eða með
fallegu mynstri ef að þau eru hugs-
uð sem punt.
Lífgað upp á bað-
herbergið
Handklæði geta verið til margra hluta nytsamleg.
Habitat, 2.700 kr.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Habitat, 2.550 kr.
Tekk-Company,
1.800 kr.
Tekk-Company, 1.750 kr.
Debenhams, 1.490 kr.
Debenhams, 799 kr.
Tekk-Company, 2.900 kr.
FYRIR
... OG EFTIR
kr. 8.038.-
Viðbótareining kr. 5.781.-