Fréttablaðið - 06.10.2006, Blaðsíða 23
FÖSTUDAGUR 6. október 2006 23
Jarðboranir, dótturfélag Atorku,
hefur keypt verktakafyrirtækið
Sæþór ehf. sem starfar einkum á
sviði hafnardýpkunar auk hafnar-
gerðar, vega- og brúargerðar, við-
haldsframkvæmda á mannvirkj-
um og framkvæmda við
orkuveitur. Sæþór mun heyra
undir starfsemi Björgunar, dótt-
urfélags Jarðborana.
Ekki er gert ráð fyrir neinum
grundvallarbreytingum hjá
Sæþóri, sem fellur vel að starf-
semi Björgunar og samstæðu
Jarðborana í heild. Um samlegð-
aráhrif mun vera að ræða þar sem
aukin hagkvæmni næst meðal
annars með samnýtingu vinnuafls,
fasteigna og tækja.
Kaupverðið fyrir Sæþór er 310
milljónir króna. Áætluð velta
félagsins árið 2006 er 240 milljónir
króna og áætluð EBITDA framlegð
um hundrað milljónir króna. - hhs
EINN AF BORUM JARÐBORANA
Jarðboranir hafa keypt verktakafyrirtæk-
ið Sæþór fyrir 310 milljónir króna.
Kaupa keppinaut
Fjárfestingarfélagið Grettir hefur
aftur aukið við hlut sínn í Avion
Group og fer nú með 8,25 prósenta
hlutafjár. Fyrir helgi keypti Grettir
um sex prósenta hlut og jók hlut sinn
um rúmt prósent í vikunni.
Hlutur Grettis í Avion er um 4,6
milljarðar króna að markaðsvirði.
Eigendur Grettis eru Sund,
Landsbankinn og Ópera Fjárfesting-
ar sem eru í eigu Björgólfsfeðga.
Avion hefur verið að rétta úr
kútnum eftir slakt hálfs árs uppgjör;
bréf félagsins hafa hækkað um sex
prósent á einni viku. - eþa
Grettir eykur
við sig í Avion
BJÖRGÓLFUR THOR BJÖRGÓLFSSON
Meðal hluthafa í Gretti sem hefur verið að
kaupa í Avion Group.
John H. Robertson hefur verið ráð-
inn framkvæmdastjóri lággjalda-
flugfélagsins Sterling sem er í eigu
FL Group. Mun hann einnig gegna
starfi aðstoðarforstjóra.
Robertson hefur verið
framkvæmdastjóri hjá
Virgin-Express í Brussel
og gegndi þar á undan
stöðu framkvæmda-
stjóra hjá British
Midland, sem er
næststærsta hefð-
bundna flugfélag-
ið í Bretlandi.
Í fréttatilkynningu frá Sterling
er haft eftir Almari Hilmarssyni,
forstjóra Sterling, að það sé ómetan-
legt að fá mann á borð við John, sem
hefur umfangasmikla reynslu af
störfum innan bæði hefðbundinna
og lággjalda flugfélaga, til liðs við
fyrirtækið. Eftir heilt ár sem hefur
farið í samþættingu á rekstri sé nú
stefnan sett á vöxt og þar muni
alþjóðlegur bakgrunnur nýja fram-
kvæmdastjórans verða fyrirtækinu
mikill styrkur. - hhs
Nýr stjóri ráð-
inn hjá Sterling
JOHN H.
ROBERTSON
Greiningardeild Landsbankans
væntir fjórtán prósenta ávöxtun-
ar hlutabréfa í Kauphöll á næstu
tólf mánuðum og telur að kaup-
tækifæri séu til staðar á innlend-
um hlutabréfamarkaði þrátt fyrir
miklar hækkanir í ágúst og sept-
ember.
Bankinn spáir því að hagnaður
þeirra sextán fyrirtækja, sem
horft er til, verði samanlagður
74,6 milljarðar króna á þriðja árs-
fjórðungi sem er 70 prósenta
hagnaðaraukning á milli ára. Ef
Existu er bætt við nemur aukning-
in 130 prósentum.
Af einstökum félögum hagnast
Kaupþing á fjórðungnum, um 31
milljarð króna en næst koma
Exista (19,7 milljarðar), Glitnir
(7,7) og Straumur-Burðarás (5,1).
Landsbankinn reiknar með að
Kaupþing, Mosaic og Össur skili
mestri hagnaðaraukningu milli
ára en hagnaður af sölu bréfa í
Existu setur svip sinn á uppgjör
Kaupþings.
Tvö félög skiluðu tapi á þriðja
ársfjórðungi, gangi spáin eftir, en
það eru Dagsbrún, með 2,6 millj-
arða króna tap og Marel. Tap
beggja félaga skýrist að stórum
hluta af kostnaði sem fellur til í
eitt skipti.
Fyrir árið 2007 reiknar Lands-
bankinn með því að hagnaður
fimmtán félaga, sem eru saman-
burðarhæf milli 2006 og 2007,
nemi 145 milljörðum króna sam-
anborið við 221 milljarð í ár. - eþa
GREININGARDEILD LANDSBANKANS
Spáir fjórtán prósenta hækkun í Kaup-
höll næsta árið.
LÍ spáir 70% hagnaðaraukningu
Horfir fram á fjórtán prósenta hækkun hlutabréfa.
Ársreikningaskrá sendi í gær frá
sér yfirlýsingu þar sem fram
kemur að fullyrðing Atorku Group
um að Ársreikningaskrá hafi „sent
þriggja mánaða uppgjör félagsins
til skoðunar hjá sérfræðingum í
Bretlandi og fengið þau svör að
uppgjörið væri í alla staði til
fyrirmyndar og jafnvel of
ítarlegt,“ sé röng.
Yfirlýsingin kemur í kjölfar
opinbers bréfs sem Atorka sendi
Kauphöll Íslands vegna fyrirhug-
aðrar málshöfðunar gegn henni.
Vill Ársreikningaskrá ítreka að
hún sé á engan hátt aðili að deilum
Atorku og Kauphallar Íslands,
enda snúist þær einvörðungu um
upplýsingagjöf Atorku Group hf.
samkvæmt fréttatilkynningum til
kauphallarinnar en ekki um
reikningsskil félagsins. - hhs
Fullyrðing
Atorku röng