Fréttablaðið - 06.10.2006, Blaðsíða 52
HANN SAGÐI,
HÚN HEYRÐI
Þegar ég var lítil stúlka var ég
send með það veganesti út í lífið
að vera ávallt hreinskilin. Í stráka-
málum komst ég fljótt að því að
það gekk lítið því strákarnir sem
voru skotnir í mér stálu húfunni
minni og hentu í mig brennóbolt-
um í frímínútum. Ég reyndi nokkr-
um sinnum að tjá þeim ást mína,
en þeir hlógu bara að mér og
híuðu.
Ég ákvað því að grafa hreinskiln-
ina í bili og geyma en ekki
gleyma.
Hreinskilni er enn þann dag í dag
ekki algeng í samskiptum kynj-
anna. Stelpur eru mjög gjarnar á
að túlka hvert einasta orð sem
strákarnir sem þær eru að hitta
segja. Það er eins og við höldum
að hvert orð hafi dulda merkingu
sem við verðum að komast að
hvað þýðir. Þegar strákur kastar á
okkur einfaldri kveðju líkt og ,,við
heyrumst þá bara“ vakna upp
ýmsar spurningar líkt og hvenær?
Hvað þýðir ,,heyrumst“ nákvæm-
lega....
Á sunnudögum hittumst
við og túlkum mökunar-
valsa helgarinnar. Í einum
slíkum hittingi var mér nóg
boðið og barði í borð; ,,af hverju
þýðir, við sjáumst seinna eitthvað
annað en nákvæmlega það?“
Það sló algjöra þögn á mávabjarg-
ið. Framúrstefnulega hugmyndin
um hreinskilni og einföldun flók-
inna samskipta var felld með
hreinum meirihluta. ,,Kommon,
þetta er ekki svona einfalt“.
Í minni barnslegu trú, held ég í
það að fólk, hvort sem það er frá
Mars eða Venus, segi það sem
það meini og meini það sem það
segi.
Einu sinni var ég að hitta strák og
var eins og mér bar, hreinskilin í
okkar samskiptum. Ég trúði því
sem hann sagði og spurði ef ég
skildi ekki. Allt gekk glimrandi vel
og misskilningur var lítill sem eng-
inn. Athugasemdum mínum um
snyrtingu kynfærahára og stækk-
andi líkamsummál var þó ekki vel
tekið. Þrátt fyrir þetta, var ég aldrei
óörugg með stöðu mína gagnvart
honum og sparaði þar að auki
heilmikið á því að þurfa ekki að
leita á náðir vinkvenna á kaffihús-
um til að fá hjálp við að skilja sam-
bandið sem ég var í.
Það veit jú enginn hvað
ykkur fer á milli nema þið
tvö. Þegar öllu er á botn-
inn hvolft, þá hefur þessi
túlkunarfræði skemmtanagildi fyrir
okkur stúlkurnar. Það er engin
dulin merking í ,,sjáumst seinna“
því miklar líkur eru á því að þið
munuð sjást, á morgun eða eftir
hálft ár, hvort heldur sem er, par
eða kunningjar. Það er heldur
engin dulin merking í ,,ég er bara
svo upptekinn núna, ég hef engan
tíma“, sama hvað við reynum að
snúa út úr, þá er hann einfaldlega
ekki skotinn í þér....
StelpuBögg meðiggu Dögg
Bragi dúnparka
vatnsheld dúnúlpa
Litur: Rauður, blár, grár
13.440 kr.
Bragi dúnúlpa
Litur: Blár, rauður
11.340 kr.
Veðurhorfur í október
nóvember, desember...
REYKJAVÍK:
Kringlan
Bankastræti 5
Faxafen 12
GARÐABÆR:
Miðhraun 11
AKUREYRI:
Glerárgata 32
www.66north.is
Þórsmörk parka
vatnsheld dúnúlpa
Litur: Ryðrauður, grár
beinhvítur, brúnn
20.790 kr.
Laugavegur dúnúlpa
Litur: Hvítur, brúnn,
grár, svartur
19.740 kr.
Þórsmörk parka
vatnsheld dúnúlpa
Litur: Brúnn, hvítur,
grár, svartur
30.240 kr.
Tindur dúnúlpa
Litur: Grár, svartur,
26.240 kr.
Fyrir börnin
Valhöll ullarnærföt
100% merinóull
Litur: Grár
Buxur 3.680 kr.
Bolur 4.100 kr.