Fréttablaðið - 06.10.2006, Page 70
6. október 2006 FÖSTUDAGUR38
Rithöfundurinn og athafnamaður-
inn Ármann Reynisson sendir frá
sér sína sjöttu vinjettubók um
þessar mundir. Vinjettur eru
örstuttar, myndrænar frásagnir
og spruttu upp sem bókmennta-
form í Frakklandi á 17. öld.
Ármann hefur rutt þessari
gömlu bókmenntagrein braut í
íslenskum bókmenntum og undir-
tektir lesenda hafa verið það
góðar að hann kynnir nú til sög-
unnar vinjettu munaðarvörulínu
sem hann tengir beint við skáld-
verk sín.
„Fólki sem les bækurnar mínar
finnst upplagt að fá sér kaffi og
konfekt í leiðinni og þaðan kom
hugmyndin um þennan munaðar-
varning,“ segir Ármann sem
býður nú áskrifendum bóka sinna
að kaupa handgert konfekt, sér-
blandað kaffi og silfur mokka- og
desertskeiðar.
„Mér finnst allt vera orðið svo
venjulegt og langaði að koma með
eitthvað sérstakt á markaðinn. Ég
leitaði til færustu íslensku fram-
leiðenda á hverju sviði og vann
svo að hugmyndinni í samvinnu
við þá. Hugmyndin er svo að bæta
við vöruflokkinn á hverju ári. Ég
hef þegar fengið góð viðbrögð við
þessu og ef vel gengur gæti verið
gaman að fylgja þessu eftir
erlendis.“
Ármann er þegar farinn að
sækja á erlendan markað og hann
segir tvítyngda vinjettubók sem
hann gaf út í Þýskalandi nýlega
vera farna að spyrjast ágætlega
út. „Ég er bjartsýnismaður og set
hlutina af stað og læt svo lífið um
að ráða því hvað gerist.“
Ármann byggir oftar en ekki
ekki á eigin reynslu í vinjettum
sínum og í nýju bókinni gefur
hann íslensku réttarfari gaum en
hann fékk sjálfur að kynnast því
þegar hann stóð í málaferlum
tengdum fjármálafyrirtækinu
Ávöxtun. „Nokkrar sögurnar
fjalla um þetta en Baugsmálið rak
mig beinlínis út í að skrifa um
fólkið sem starfar í réttarkerfinu.
Embættisfólkið gerir jafnvel mis-
tök eins og við hin en það er aldrei
kallað til ábyrgðar og látið svara
fyrir þau. Ég hvet fólk til að kynna
sér þetta nánar og veita þessu
fólki aðhald enda er ómögulegt að
segja hvar þetta endar ef aðhald-
ið er ekkert. Ég fékk gott tæki-
færi til þess að kryfja þessar per-
sónur í Ávöxtunarmálinu og það
nýtist mér nú. Flestir þeir sem ég
kynntist þá eru enn í fullu fjöri en
þeir kváðu mig ekki í kútinn þar
sem ég lifnaði tvíefldur við og fór
að skrifa um þetta fólk. Ég nýti
reynsluna til þess að opna augu
fólks fyrir umhverfinu og er allt-
af að glíma við fjölbreytileika til-
verunnar.“
Ármann ætlar að fagna útkomu
nýju bókarinnar og vinjettuvarn-
ingnum með vinjettudegi í Iðu
við Lækjargötu á laugardaginn.
„Ég tók upp á því að halda vinj-
ettudag í fyrra en þá fæ ég þekkta
borgara til að koma og lesa upp
vinjettur á hálftíma fresti. Hver
les tvær sögur og er innan við tíu
mínútur að því. Á milli upplestra
gefst fólki kostur á að tala saman
og njóta veitinga. Ég hugsa þetta
sem nútíma sagnaskemmtun og
það það skapast skemmtileg bað-
stofustemning þegar þessi háttur
er hafður á.“
Ármann hefur sjálfur lestur-
inn klukkan 13 en útvarpskonan
Andrea Jónsdóttir tekur við af
honum. Síðan kemur hver upples-
arinn á fætur öðrum fram eftir
degi en Árni Johnsen, fyrrver-
andi alþingismaður, rekur lestina
og les tvær vinjettur þegar degi
fer að halla. - þþ
Deilt á réttarkerfið með
konfekti og kærleika
ÁRMANN REYNISSON Deilir á réttarkerfið í væntanlegri vinjettubók og að hætti
sannra fagurkera býður hann nú lesendum sínum að kaupa handgert vinjettukonfekt
og sérblandað kaffi með bókunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Brynjólfsmessa, sem er tónverk
eftir Gunnar Þórðarson, verður
tekið upp í Grafarvogskirkju dag-
ana 17. og 18. október og síðan
gefin út á plötu í nóvember.
Gunnar segist vera spenntur
fyrir verkefninu en vill sérstak-
lega taka fram að Jóhannes í
Bónus hafi gert þessar upptökur
mögulegar. „Ástæðan fyrir því að
þetta er tekið upp er út af Jóhann-
esi í Bónus. Hann styrkir þetta og
ég er honum ævinlega þakklátur
fyrir,“ segir Gunnar. „Það er dýrt
að taka þetta upp þannig að ég
hringdi bara í hann. Hann brást
vel við og gerði þetta mögulegt.“
Brynjólfsmessa er helguð
minningu Brynjólfs biskups
Sveinssonar, en í fyrra voru liðin
400 ár frá fæðingu hans. Um er að
ræða latneska messu fyrir ein-
söngvara, kór, barnakór og hljóm-
sveit. Að flutningi verksins hafa
komið rúmlega hundrað manns úr
kórum Keflavíkur-, Skálholts- og
Grafarvogskirkna, auk barnakóra
kirknanna og einsöngvara úr
fremstu röð, þeirra Sigrúnar
Hjálmtýsdóttur sópransöngkonu
og Jóhanns Friðgeirs Valdimars-
sonar tenórs. Kammersveitin Jón
Leifs Cammerata annast undir-
leik. - fb
Tekur upp Brynjólfsmessu
GUNNAR ÞÓRÐARSON Tónlistarmaður-
inn Gunnar Þórðarson tekur á næstunni
upp verk sitt Brynjólfsmessu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Thomas Bangalter úr frönsku
hljómsveitinni Daft Punk kemur
fram á Nasa á laugardagskvöld,
ásamt Jack Schidt og DJ Lazer.
Guy-Manuel de Homem Chris-
to, hinn helmingur hljómsveitar-
innar, kemur einnig til landsins og
svarar spurningum áhorfenda á
frumsýningu kvikmyndarinnar
Electroma í kvöld. „Þetta er ein-
stakur viðburður. Hann hefur ekki
komið fram sem plötusnúður í um
tíu ár og Daft Punk er náttúrulega
frábært band,“ segir Atli Bollason
hjá Alþjóðlegu kvikmyndahátíð-
inni í Reykjavík, sem stendur fyrir
tónleikunum. Hann segir ekki úti-
lokað að Guy-Manuel, hinn með-
limur Daft Punk, troði upp með
honum. „Hann hefur ekki komið
fram með Thomasi sem plötusnúð-
ur en við lokum ekki á það að hann
grípi í plötuspilarann.“
Daft Punk hefur verið ein vin-
sælasta danshljómsveit í heimi um
nokkurra ára skeið. Nægir að nefna
smelli á borð við Around the World,
Da Funk, One More Time, Harder,
Better, Faster, Stronger, Digital
Love, Technologic, og Robot Rock.
Myndbönd þeirra hafa líka vakið
mikla athygli, en leikstjórar á borð
við Spike Jonze og Michel Gondry
hafa gert myndbönd við lög þeirra.
Þá mynduðu myndböndin af Dis-
covery, annarri plötu sveitarinnar,
samfellda teiknimynd í anime-stíl.
Thomas Bangalter hefur einnig
gert tónlist einn síns liðs og lagið
Music Sounds Better With You
undir nafninu Stardust er líklega
þekktast þeirra.
Miðasala á tónleikana á Nasa er
hafin á www.midi.is, www.filmfest.
is og á Thorvaldsen bar. Miðaverð
í forsölu er 1000 krónur.
Meðlimur Daft Punk þeytir skífum
DAFT PUNK Dúettinn Daft Punk sló ræki-
lega í gegn með laginu Around the World.
8. sýning föstudaginn 6. okt.
9. sýning laugardaginn 14. okt.
10. sýning sunnudaginn 15. okt MÁLÞING
SÝNT ER ÚT OKTÓBER
��������������������������������� ���������������������������������������������������
�� ����������������������������������������� ���������� ��������������������������
����������� �� �������������������� �� �� �����
������������������������������� �������������������������������������������������������������������������������
������������������������������������������������������������������������������������������������������������������������
�������������������������������������������������������������������������������������������
������������ �������������� �� �����������
����� ��������������������
����������������������������������������
����������������������������������
��������������������������������� ����� ��������������������