Fréttablaðið - 06.10.2006, Blaðsíða 73
Í BÚNINGSHERBERGINU BLOODHOUND GANG
FÖSTUDAGUR 6. október 2006 41
TOGGI
Puppy
„Puppy er óvenju vönduð og vel
unnin frumsmíð. Toggi er greinilega
mjög hæfileikaríkur tónlistarmaður
þó að hann eigi enn eftir að skapa
sér sérstöðu.“ TJ
SPANK ROCK
Yoyoyoyoyo...
„Ein frumlegasta hiphop-plata sem
komið hefur út í langan tíma, þótt
hún sé langt frá því að vera sú
besta.“ SHA
BEYONCÉ
B‘Day
„Fyrir þremur árum hefði Beyoncé
getað unnið forsetakosningarnar í
Bandaríkjunum. Með þessu áfram-
haldi kæmist hún ekki einu sinni í
ritarastöðu í Hvíta húsinu. Önnur
breiðskífa hennar er arfaslöpp.“ BÖS
BASEMENT JAXX
Crazy Itch Radio
„Crazy Itch Radio er ólík fyrri plöt-
um Basement Jaxx. Ágæt plata sem
sýnir að þeir Simon Ratcliffe og Felix
Buxton eru ekkert að verða uppis-
kroppa með hugmyndir.“ TJ
BONNIE „PRINCE“ BILLY
The Letting Go
„Oldham (Bonnie) hefur sjaldan
verið eins bjartur og notalegur þar
sem hann leikur sér við að framkalla
hinar ýmsu tilfinningar. Án efa ein af
plötum ársins.“ SHA
REGINA SPEKTOR
Begin to Hope
„Með Begin to Hope hefur Reginu
Spektor tekist að búa til plötu sem
er poppuð og léttleikandi, en líka
sérviskuleg og áhugaverð.“ TJ
JUSTIN TIMBERLAKE
FuturSex/LoveSounds
„Justin Timberlake festir sig hér í
sessi sem helsti popptónlistarmað-
ur fyrsta áratugarins. Skilar af sér
betri plötu en síðast og mun bráð-
um taka yfir heiminn.“ BÖS
THE ROOTS
Game Theory
„Game Theory er kraftmikil og sann-
færandi plata frá einni af forystu-
sveitum hiphop-heimsins.“ TJ
NEW YORK DOLLS
One Day It Will Please us To
Remember Even This
„Endurkomuplata þessarar goð-
sagnakenndu sukksveitar verður að
teljast ágætlega heppnuð. Það fara
fáar sveitir betur með skítugt pönk-
skotið Stones-rokk en New York
Dolls.“ TJ
NÝJAR PLÖTUR
> Lög vikunnar
Bonnie „Prince“ Billy - Strange Form
of Life Frábært lag af frábærri plötu
meistarans.
The Killers
- Sam‘s Town
Upphafslag nýju
plötunnar sem
vinnur vel á við
frekari hlustun.
Razorlight
- America Ný
smáskífa frá
einu vinsælasta
breska bandinu.
Jens Lekman - Pocketful
of Money Með því betra
sem komið hefur frá
Svíþjóð síðustu árin.
Beck - Nausea Það er ekki
hægt að kvarta yfir
fyrsta laginu af nýju
plötunni.
Rokkhljómsveitin Sign fær góða
dóma fyrir tónleika sína í Birm-
ingham í nýjasta tölublaði tónlist-
artímaritsins virta Kerrang!
Blaðamaður telur Sign vera á
hraðferð upp frægðarstigann í
rokkheiminum og telur líklegt að
hljómsveitin muni sjálf fylla
stærri tónleikastaði á næstunni.
Líkir hann Sign við hljómsveitina
Vain en segir hljóminn vera
nútímalegri og þyngri. „Sign virð-
ast hafa allt á tæru með söngvar-
ann Zolberg með sírenuröddina í
fararbroddi, sem er stjarna tilbú-
in að feta í fótspor Valos,“ segir
blaðamaðurinn og á þar við söngv-
ara hljómsveitarinnar Him.
Sign lýkur þriggja vikna tón-
leikaferð sinni um Evrópu á Mean
Fiddler í London á fimmtudags-
kvöld. Sveitin hefur verið að hita
upp fyrir Wednesday 13 sem er
hljómsveit fyrrverandi söngvara
Muderdolls.
Sign spilar á Íslandi á fimm
tónleikum í næstu viku. Þeir
fyrstu hefjast á Akranesi 13. okt-
óber og þeir síðustu verða á NASA
á Kerrang!-kvöldi Iceland Airwa-
ves 20. október.
Sign fær góða dóma
SIGN Hljómsveitin Sign er að gera góða
hluti um þessar mundir.
Sykur
Tíu jógúrtdósir
Hnetusmjör
Brauðrist
Bakki með kjötáleggi
Sinnep, majónes og smjör
Kartöfluflögur
6 Frankfurter-pylsur
Kassi af kók
Kassi af Dr. Pepper
6 Gatorade
Þrír kassar af bjór
1 lítri af Absolut vodka
1 lítri af Jägermeister
1 flaska af púrtvíni, flaska af góðu rauðvíni
Stór poki af Skittles, vinsamlegast flokkið molana eftir lit
Þrír vindlar
Beinagrind af apa (eini hluturinn á listanum sem er
grín!)
Fjórir sígarettupakkar
Eitt segulstál til að festa á ísskáp
INNKAUPAKORT VISA
Nýr dagur – ný tækifæri
Bjarni reddar öllu.
• Innkaupakort VISA er ókeypis kreditkort.
• Ekkert stofngjald, árgjald eða seðilgjald.
• Kortið er ætlað í rekstrarinnkaup og kemur
í stað beiðna- og reikningsviðskipta.
• Lengri greiðslufrestur.
Hægt er að sækja um Innkaupakort VISA á www.visa.is og hjá öllum bönkum og sparisjóðum.
Nánari upplýsingar í síma 525-2280
Úttektartímabil Innkaupakorts er almanaksmánuður og
gjalddagi reiknings 25. næsta mánaðar.