Fréttablaðið - 06.10.2006, Side 81
FÖSTUDAGUR 6. október 2006 49
FÓTBOLTI Lawrie Sanchez,
landsliðsþjálfari Norður-Íra,
hefur sett liðinu markmið úr
næstu tveimur leikjum liðsins en
liðið mætir Dönum í Kaupmanna-
höfn á morgun og svo Lettum í
næstu viku. Íslendingar mæta
Lettum á morgun. Segir Sanchez
að viðunandi árangur úr þessum
leikjum sé fjögur stig.
„Ef við náum jafntefli gegn
Dönum getum við unnið Letta í
næstu viku. Það gera fjögur stig í
viðbót,“ sagði Sanchez en hans
menn töpuðu sínum fyrsta leik
gegn Íslandi en unnu svo Spán-
verja heldur óvænt. „Við vorum
úr leik eftir fyrsta leikinn, svo
eftir annan leikinn vorum við
aftur með. Hvar verðum við eftir
þriðja leikinn?“
Fyrir Spánarleikinn var
orðrómur á kreiki um að hann
myndi segja af sér en hann segist
sannarlega klár í slaginn nú.
„Fólk er aftur orðið stolt af
landsliðinu,“ sagði hann. - esá
Lawrie Sanchez:
Fjögur stig í
næstu leikjum
SANCHEZ Átti erfitt eftir tapið gegn
Íslandi. NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Gunnar Guðmundsson
skrifaði í fyrradag undir nýjan
tveggja ára samning við knatt-
spyrnudeild HK. Hann hefur
þjálfað meistaraflokk liðsins
undanfarin þrjú ár með góðum
árangri en í haust tryggði liðið
sér þátttökurétt í Landsbanka-
deild karla að ári.
Gunnar er 37 ára og skrifaði
undir tveggja ára samning. - esá
Þjálfaramál HK skýrast:
Gunnar áfram í
Kópavoginum
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
OKTÓBER
3 4 5 6 7 8 9
Fimmtudagur
■ ■ LEIKIR
19.00 Haukar-ÍS í undanúrslitum
Powerade-bikarsins í körfubolta kv.
19.00 Keflavík-Grindavík í undan-
úrslitum Powerade-bikarsins í körfu-
bolta kvenna.
FÓTBOLTI Svo gæti farið að sænski
þjálfarinn Sven-Göran Eriksson
væri á leið til Benfica í Portúgal
og þá í þriðja skiptið á sínum
ferli. Viðskiptamaður að nafni
Carlos Alberto Quaresma er í
framboði til forseta félagsins og
hefur lofað því að verði hann
kjörinn muni Eriksson taka við
þjálfun liðsins.
Svíinn tók fyrst við Benfica
árið 1982 og vann portúgalska
titilinn á sínu fyrsta ári og fór
með liðið í úrslit UEFA-bikar-
keppninnar. Hann hætti árið 1984,
tók aftur við 1989 og stýrði liðinu
í þrjú ár. - esá
Sven-Göran Eriksson:
Gæti tekið við
Benfica á ný
SVEN-GÖRAN Á leið til Portúgals á ný?
NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Víkingurinn Viktor Bjarki
Arnarsson hefur undanfarna viku
verið til reynslu hjá norska úrvals-
deildarliðinu Lilleström. Liðið
kom hingað til lands í sumar og
lék gegn Keflavík í Intertoto-
keppninni. Með honum í för eru
Stjörnumennirnir Guðjón Bald-
vinsson og Andrés Logason.
Allir eiga þeir að leika æfinga-
leik sem liðið leikur gegn Våler-
enga á þriðjudaginn kemur en eins
og annars staðar í Evrópu er
norska deildin í landsleikjahléi. Af
þeim sökum hafa þeir félagar ekki
æft eins mikið með liðinu og þeir
annars myndu gera.
„Ég hef svo sem lítil viðbrögð
fengið önnur en þau að ég var
beðinn um að vera hér í viku í við-
bót og spila þennan leik,“ sagði
Viktor við Fréttablaðið í gær. Við
komum hingað á sunnudag og
höfum aðeins æft tvisvar með lið-
inu.“
Lilleström er í toppbaráttunni
í norsku deildinni og hafa margir
Íslendingar leikið með því í gegn-
um tíðina, nú síðast Gylfi Einars-
son sem er nú á mála hjá Leeds í
Englandi. „Þetta er stórt og flott
félag og mér líst líka afar vel á
þjálfarann, hann er austur-þýsk-
ur hörkunagli,“ sagði Viktor um
Uwe Rösler, þjálfara Lilleström.
Viktor hefur verið í atvinnu-
mennsku erlendis en hann lék þá í
Hollandi sem unglingur. „Ég hef
svo sem ekki verið að sækjast í
það að komast aftur út en mér
gekk vel í sumar og þá vill oft
kallið koma. En ég er spenntur
fyrir þessu.“
Forráðamenn Lyn hafa einnig
hug á að skoða Viktor og segir
hann ekki útilokað að hann fari á
æfingar með því liði síðar í mán-
uðinu. „Þeir munu þó sjálfsagt
fylgjast með þessum leik á þriðju-
dag.“
Guðjón hefur verið fastamað-
ur í U-21 landsliði Íslands og með
markahæstu mönnum Stjörnunn-
ar undanfarin ár. - esá
VIKTOR BJARKI Hér í leik gegn KR og er
í baráttu við Viktor Jósepsson, leikmann
KR. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Viktor Bjarki Arnarsson og tveir leikmenn Stjörnunnar hjá Lilleström:
Dvölin í Noregi framlengd um eina viku
MESTA ÚRVALIÐ ER Í SKÍFUNNI
Toggi - Puppy kominn í Skífuna
Skífan Laugavegi 26 opið alla daga til 22 · Skífan Smáralind · Skífan Kringlunni · Póstkröfusími 591-5310 · www.skifan.is
skemmtir þér ;)
Ný tónlist!
EINRÓMA LOF GAGNRÝNENDA!
"Óvenju vönduð og vel unnin frumsmíð. Toggi er
greinilega mjög hæfileikaríkur tónlistarmaður..."
T.J. Fréttablaðið
"Puppy er góð popp plata sem verður örugglega ein af
vinsælli jólagjöfum ársins. Frábær frumraun"
Á.B. Reykjavik Mag
"Puppy er áhugaverð plata sem kemur þægilega
á óvart, nánast við hverja hlustun."
XFM Plata vikunnar
Plata vikunnar Rás 2
Toggi kemur fram á Airwaves í Þjóðleikhúskjallaranum
laugardaginn 21. október kl. 22:00
"Platan alger snilld. 8 stjörnur af 5 mögulegum."
Siffi Dagskrárstjóri KissFM
1.999 kr.