Fréttablaðið - 06.10.2006, Page 82
50 6. október 2006 FÖSTUDAGUR
KÖRFUBOLTI Logi Gunnarsson,
landsliðsmaður í körfubolta frá
Njarðvík, hefur samþykkt að
ganga til liðs við finnska úrvals-
deildarliðið ToPo frá Helsinki.
Hann skrifaði undir samning í
gær sem gildir út tímabilið og
hélt utan í morgun. „Það er leik-
ur hjá liðinu á laugardaginn og ég
þarf að vera mættur á æfingu á
morgun,“ sagði Logi við Frétta-
blaðið í gær. „Ég er mjög ánægður
með þetta, þetta er góður samn-
ingur og finnska deildin er sterk.“
Logi hefur undanfarin fjögur
ár leikið í Þýskalandi, með Bayr-
euth og Giessen, en ákvað að söðla
um og hefur verið í viðræðum við
nokkur önnur lið, til að mynda í
Ungverjalandi og Kýpur. „Ung-
verska liðið bauð mér þriggja
mánaða samning með möguleika á
að framlengja út tímabilið en það
er mikil óvissa sem fylgir því. Í
gær vissi ég ekki alveg í hvorn
fótinn ég ætti að stíga en þá hækk-
uðu Finnarnir sitt tilboð og létu
mig fá allt sem ég þurfti. Ég ákvað
því að taka tilboði þeirra umsvifa-
laust.“
Aðalþjálfari ToPo er einnig
aðstoðarlandsliðsþjálfari Finna og
sá því mikið til Loga í sumar, bæði
á Norðurlandamótinu í Finnlandi
sem og í landsleik Íslands og Finn-
lands í B-deild Evrópumótsins í
körfubolta sem síðarnefnda liðið
vann. „Þeir vita því upp á hár að
hverju þeir ganga þegar þeir fá
mig. Það er einnig til mikils ætlast
af mér en þá vantar bakvörð sem
getur skorað mikið.“
Logi segir að liðið eigi að vera
sterkara nú en það var á síðasta
keppnistímabili. „Þetta er eitt af
toppliðunum í Finnlandi. Í fyrra
duttu þeir út í úrslitakeppninni
fyrir verðandi meisturunum. Það
er líka gott að vita að ég fæ að
spila mikið og spilaði það stórt
hlutverk í þessari ákvörðun
minni.“
ToPo er eina liðið í höfuðborg-
inni Helsinki og er því áhugi fyrir
liðinu mikill. „Það mætir alltaf
mikill fjöldi á leikina og Finnar
eru mikil körfuboltaþjóð. Þeir
hafa alltaf verið A-þjóð en duttu
nú síðast í B-deildina þar sem þeir
lentu í riðli með okkur. Þeir eiga
marga góða körfuboltamenn, bæði
heima og erlendis í sterkum deild-
um. Í ToPo eru einnig tveir finnskir
landsliðsmenn og þrír bandarískir
leikmenn.“
Loga líkaði dvölin vel í Þýska-
landi og hann er spenntur fyrir
því að búa í Finnlandi. „Mér líst
mjög vel á þetta og hlakka mikið
til.“ eirikur.asgeirsson@frettabladid.is
LOGI GUNNARSSON Á leið til ToPo í Helsinki sem leikur í finnsku úrvalsdeildinni. Hér
er hann á fullri ferð í leik Íslands gegn Finnlandí fyrr í haust. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Samdi við ToPo í Finnlandi
Logi Gunnarsson körfuboltakappi er á leið í finnsku úrvalsdeildina í körfubolta.
Hann samdi í gær við liðið ToPo frá Helsinki sem er með betri liðum deildarinnar.
FÓTBOLTI Otto Baric, landsliðs-
þjálfari Albaníu, hefur verið
sektaður fyrir niðrandi ummæli
sem hann lét falla um samkyn-
hneigða fyrir tveimur árum
síðan. „Ég myndi aldrei nota
samkynhneigðan leikmann í mínu
liði né hafa samkynhneigðan
mann í mínu þjálfarateymi,“
sagði Baric og hann var ekki
hættur. „Ég get ekki treyst á
samkynhneigða menn vegna þess
að þeir eru veikburða og sjúkir.“
- dsd
Landsliðsþjálfari Albaníu:
Sektaður fyrir
ummæli
OTTO BARIC Er ekki fyrir samkynhneigða
og hefur nú verið sektaður fyrir ummæli
sín. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FORMÚLA 1 Fernando Alonso er allt
annað en sáttur við félaga sinn hjá
Renault, Giancarlo Fisichella, og
einnig starfsmenn liðsins. Félag-
arnir háðu mikla keppni um síð-
ustu helgi sem endaði með því að
Alonso náði öðru sætinu á eftir
Schumacher sem sigraði. Fisi-
chella tók fram úr Alonso og það
virðist hafa farið í taugarnar á
Alonso.
„Þessi samkeppni okkar á milli
er mjög áhættusöm nú þegar þrjár
keppnir eru eftir. Fisichella tók
fram úr mér og það var engin sam-
vinna í liðinu. Ég lenti líka í vand-
ræðum með bílinn og mér fannst
ég vera einn, fékk enga aðstoð. Ég
átti mjög erfitt með að skilja
þetta,“ sagði Alonso sem mun
keppa fyrir hönd McLaren á næsta
tímabili.
Alonso segir samt sem áður að
Renault liðið sé samstíga í barátt-
unni um titilinn. „Liðið er að gera
allt sem það getur til að vinna.
Bíllinn er frábær og sigurinn í
fyrra er gott merki um samstöð-
una í liðinu,“ sagði Alonso, ríkj-
andi heimsmeistari.
Næsta keppni er í Japan um
næstu helgi og ljóst er þar verður
hart barist en Schumacher og
Alonso eru jafnir að stigum þegar
tvær keppnir eru eftir. - dsd
Fernando Alonso:
Ekki sáttur við
Fisichella
RENAULT-FÉLAGARNIR Alonso mun
keppa fyrir McLaren á næsta ári en
Fisichella verður áfram hjá Renault.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn:
NÝ HUGSUN Í
GEÐHEILBRIGÐISMÁLUM
Ráðstefna 10. október 2006 kl. 8-16 á Grand hóteli Reykjavík
Lýðheilsustöð í samvinnu við Landlæknisembættið, Landspítala – háskólasjúkrahús,
Heilsugæsluna í Reykjavík og Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra í Reykjavík, stendur
fyrir ráðstefnu á alþjóða geðheilbrigðisdeginum sem í ár ber yfirskriftina:
Vaxandi vitund – aukin von. Saman eflum við geðheilsu og drögum úr sjálfsvígum.
Á undanförnum árum hefur gagnrýni á hefðbundna meðferð geðröskunar aukist. Þessi
gagnrýni beinist annars vegar að of mikilli áherslu á lyfjagjöf í meðferð og hins vegar að
of lítilli áherslu á þætti, sem auðvelda fólki með geðröskun að lifa svokölluðu eðlilegu lífi
í samfélaginu. Tímabært er að opna þessar umræður og leiða fram gagnstæð sjónarmið,
vega þau og meta.
Þátttakendur skrái sig á ráðstefnuna fyrir 8. október 2006 á vef Lýðheilsustöðvar,
www.lydheilsustod.is, eða í síma 5 800 900. Einnig verður skráning við innganginn.
Ráðstefnugjald 3000 kr. og 1500 kr. fyrir námsmenn og öryrkja.
Opnun ráðstefnu: Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra.
Ávarp: Eydís K. Sveinbjarnardóttir, svíðsstjóri á geðsviði LSH,
Fyrirlesarar: Héðinn Unnsteinsson, sérfræðingur WHO EURO, Halldóra Ólafsdóttir,
geðlæknir, Halldór Júlíusson, sálfræðingur, Elín Ebba Ásmundsdóttir, iðjuþjálfi, Ellý
Þorsteinsdóttir, félagsráðgjafi, Guðný Anna Arnþórsdóttir, geðhjúkrunarfræðingur,
Elísabet Jökulsdóttir, fulltrúi notenda, Erna Indriðadóttir, fulltrúi aðstandenda,
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir,
alþingismaður, Jón Kristjánsson, alþingismaður og fyrrverandi ráðherra.
Pallborðsumræður: Stjórnandi Sigursteinn Másson, formaður Geðhjálpar og ÖBÍ.
Lokaorð: Kristófer Þorleifsson, formaður Geðlæknafélags Íslands.
Ráðstefnuslit: Anna Elísabet Ólafsdóttir, forstjóri Lýðheilsustöðvar.
Ráðstefnustjóri: Egill Helgason
HANDBOLTI Í gær var dregið í 32
liða úrslit hjá körlum og 16 liða
úrslit hjá konum í SS-bikarkeppn-
inni í handbolta. Framarar sitja
hjá í fyrstu umferðinni hjá körlun-
um en Haukar, Valur, ÍBV og
Stjarnan 2 sitja hjá í fyrstu
umferðinni hjá konunum. Stór-
leikur umferðarinnar hjá körlun-
um er án efa leikur HK og Stjörn-
unnar en þessi lið mættust í
deildinni á miðvikudaginn og þar
valtaði HK yfir Stjörnuna. Þessi
félög mætast einnig í kvenna-
flokki en sá leikur er á heima-
velli Stjörnunnar. Leikirnir fara
fram 17. og 18. október hjá körlun-
um en 24. og 25. hjá konunum.
Leikur Stjörnunnar og HK á
miðvikudaginn í DHL-deild karla
náði aldrei að verða spennandi og
Stjörnumenn vilja eflaust koma
fram hefndum í bikarleiknum.
Patrekur Jóhannesson lét m.a.
stór orð falla eftir leikinn.
Aðrar athyglisverðar viður-
eignir í karlaflokki má nefna leik
Hauka gegn Haukum 2 en það er
ekki á hverjum degi sem aðallið
félags mætir varaliðinu. Hjá
konunum verður stórleikur á
Seltjarnarnesi þar sem Grótta
tekur á móti Fram. Grótta hefur
unnið alla sína leiki til þessa í
deildinni og Fram hefur komið
skemmtilega á óvart og sigraði
m.a. Hauka í síðustu umferð. - dsd
Dregið í SS-bikar karla og kvenna í handbolta:
HK og Stjarnan mætast
bæði hjá konum og körlum
HART BARIST HK rúllaði yfir Stjörnuna á miðvikudaginn en þessi lið mætast í bikarn-
um síðar í þessum mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
32. liða úrslit karla
ÍBV - GRÓTTA
FH 2 - NJARÐVÍK
ÍR 2 - VÍKINGUR/FJÖLNIR
HAUKAR 2 - HAUKAR
AFTURELDING - FYLKIR
ÞRÓTTUR VOGUM - LEIKNIR
SELFOSS - AKUREYRI
HK 2 - VALUR
LEIKNIR 2 - VALUR 2
KR - HAUKAR U
FYLKIR 2 - ÍR
SELFOSS 2 - STJARNAN 2
AFTURELDING 2 - HÖTTUR
KV - FH
HK - STJARNAN
* Fram situr hjá í þessari umferð.
16. liða úrslit kvenna
STJARNAN - HK
HAUKAR 2 - FJÖLNIR
GRÓTTA - FRAM
FH - AKUREYRI
* Haukar, Valur, ÍBV og Stjarnan 2 sitja hjá í
þessari umferð.
SS-BIKARINN
HANDBOLTI Gummersbach vann
sinn annan sigur í Meistaradeild-
inni í handbolta í gær með því að
leggja norsku meistarana í
Sandefjord að velli, 36-25. Tveir
íslenskir leikmenn komust á blað
í leiknum, Guðjón Valur Sigurðs-
son skoraði 7 mörk í 12 skotum og
Róbert Gunnarsson sem skoraði 4
mörk í 5 skotum. Sverre Jakobs-
son lék ekki með Gummersbach
vegna meiðsla. Bæði þessi lið eru
í riðli með Fram. - dsd
Meistaradeildin í handbolta:
Annar sigur
Gummersbach