Fréttablaðið - 06.10.2006, Blaðsíða 88
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
����������
���������������
���������������
Ný og sjóðandi heit tíska ku nú vera orðin ríkjandi meðal
ungra kvenna í Bandaríkjunum.
Svo stór er bólan orðin að spjall-
þáttadrottningin Oprah sá ástæðu
til að fjalla um æðið í sjónvarps-
þætti fyrir skömmu til að greina
út á hvað málið gengur.
TÍSKAN er einföld og aðgengileg,
sem út af fyrir sig er kostur. Konur
spila sig vitlausar til að virðast
fyrir vikið kynþokkafyllri í augum
karlmanna. Því það ku vera sexí
að vera stjúpid. Í sjálfu sér er
fagnaðarefni að nú sé komið trend
sem allar konur geta tekið þátt í,
ólíkt því þegar minipilsin, lífs-
hættulegir háir hælar, lítil brjóst
eða stór brjóst eða aðrir óhag-
stæðir dyntir voru ríkjandi.
EINHVERJIR hafa að vísu talið
ástæðu til að hafa áhyggjur af því
að þessi tíska sé niðrandi fyrir
konur. En nýja æðið gerir ekki
síður lítið úr karlpeningnum – sér-
staklega ef þeir elta tískuna og
vilja konur sem þykjast vita og
skilja minna en þær raunverulega
gera. Á sama tíma eru svo einhver
tískuhús að boða þá stefnu að
tískufyrirsætur eigi að líta út eins
og venjulegar konur. Og vilja ekki
sjá annað en konur sem vega 55
kíló.
SENNILEGA eru það bara hörð-
ustu tískulöggur sem leggja það á
sig að skipta út makanum til að fá
sér nýjan og vitlausari. Mæta svo
stoltir á sýningar og opnanir með
nýju fylgihlutina, konur sem sitja
gapandi af þokka samkvæmt
ströngustu reglum tískunnar. Og
kannski munu einhverjir ólánsam-
ir menn líta tilbaka eftir nokkur
ár, súrir og svekktir þegar þeir
átta sig á því að heimskuhjal er
leiðinlegt til lengdar – eða skyldu
einhverjir verða fyrir vonbrigð-
um þegar konurnar, sem þeir
kvæntust í góðri trú um að væru
æðislega vitlausar, nenna þessu
ekki lengur og fara að svara fyrir
sig?
HEIMSKUTRENDIÐ er allsráð-
andi hjá Kananum ef marka má
Oprah. Tískan virðist að vísu ekki
bara höfða til ungra kvenna, æðstu
menn þar hafa tileinkað sér æðið.
Kannski er það draumsýn að
normal fólk verði einhvern tím-
ann sérlega móðins. En það væri
hins vegar tvímælalaust breyting
til batnaðar ef það yrði bara álitið
normal að konur séu vaxnar eins
og konur og hagi sér eins og konur,
eins byltingarkennt og það kann
nú að hljóma.
Vitlausar og
horaðar
BESTI VINURINNEINN LÉTTUR, ÍSKALDUR
Í DAG ER
FÖSTUDAGUR!
AUGL†SINGASÍMI
550 5000