Tíminn - 05.01.1979, Blaðsíða 17

Tíminn - 05.01.1979, Blaðsíða 17
Föstudagur 5. janúar 1979 17 © Samkomulag og er þess vænst að á þeim tima verði gengið frá samningum um kaup áhafnar, en niðurstaða i þvl efni náðist ekki nú. Þá sagði Baldur að samkomu- lag hefði fengist um starfsaðferð- ir við gerð starfstimalista flug- manna Flugleiða, en hefði verið búið að ganga frá slikum lista áður en varð af sameiningu félag- anna, heföi átt að vera hægt aö komast hjá þessari langvinnu deilu. Við gerð sliks lista kvaö Baldur nauðsynlegt að höfð væri I huga lengd starfstima manna hjá sama félagi núverandi staða, hvaða vélum þeir hefðu flogið og loks á hvaða leiðum, en krafa fé- lags Loftleiðaflugmanna um aö þeir sætu einir að flugstjórn DC- 10 þotunnar er einmitt byggð á þvi að henni er ætlaö að fljúga vestur um haf, eða á-sérleyfisleiö Loftleiða frá fornu fari. Þá koma og til, sagði Baldur, skýlaus ákvæði i kjarasamningum Loft- leiöaflugmanna sem gilda munu til 1. febrúar 1980, og kveöa á um meðferö allra stöðuhækkana. Er þvi öll þræta um tvær stöður flug- manna frá Flugféslagi Islands úr sögunni nú. „Þótt Flugleiöir muni yfirtaka sérleyfi Loftleiða á þessari leið, er sjálfsagt aö þeir sem lengst hafa verið I Banda- rikjaflugi, haldi þvi áfram”, sagði Baldur. Baldur sagði enn að mjög góöur samkomulagsvilji hefði ríkt I þessum viðræðum og öll stjórn Flugleiða veriö kölluö til og menn lagt sig fram um að knýja fram lausn. „Viö höfðum gefið undir fótinn með að veita undanþágu handa útlendingunum, ef sam- komulag næðist um annað og svo fór að lokum,” sagði Baldur. DC-10 þotunni munu fljúga tveir flugmenn og einn flugvél- stjóri og verða þeir fyrst um sinn bandariskir, frá ONA, eða „Overseas National Airways”, en það flugfélag mun hafa átt í mikl- um kröggum að undanförnu. Mun i ráði að islenskir flugstjórar verði þeim erlendu til leiöbein- ingar fyrstu ferðirnar til Islands, þar sem Bandarikjamennirnir hafa ekki nægan kunnugleika, „route-check”, á þessari leiö. Flugfreyjur munu hins vegar verða islenskar frá byrjun, en hópur islenskra flugfreyja frá Loftleiðum fór til Luxemborg i fyrradag , tíl þjálfunar. o Ár barnsins aöa börnum og unglingúm. Sýningar verða á fimleikum, glimu og dansi. Skák verður þreytt og ýmislegt fleira er i athugun. Dagana 7. — 11- mai verður haldið I Reykjavlk 12. þing norrænna sálfræðinga. Þingþetta er helgað málefnum barna i tengslum við barnaár S.Þ. og er gert ráð fyrir að um 300 fulltrúar sæki þetta þing. Félag skólastjóra og yfirkennara ágrunnskólastigi munhaldaráð- stefnu I júni um barniö i islenska þjóöfélaginu. í Arbæjarsafni verður i ágúst haldin sýning á gömlum leikföng- um. Safniö beinir þeim tilmælum tilfólksaö þaðláni safninugömul leikföng og gamlar myndir af börnum að leik, sem það kann að eiga I fórum sinum fyrir þessa sýningu. Þeir sem geta lagt safninu lið við að koma þessari sýningu upp eru beðnir að hafa samband við safnið. Allir þessir atburðir verða kynntir nánar I auglýsingum og fréttum siðar. Sveitarfélög og ár barnsins 1979. Framkvæmdanefnd barnaárs- ins hefur skrifaö öllum sveita- stjórnum á landinu og hvatt þær til að hlega einn sveitastjórnar- fund á fýrsta ársfjórðungi 1979 málefnum barna i byggðarlaginu ein vtröungu. í ýmsum sveitafélögum hafa verið stofnaðar barnaársnefndir. IKópavogihefur t.d. þegar verið lagður grundvöllur að allviötæku starfi i tilefiii barnaársins. Innan barnaheimila og skóla veröa m.a. sýningar og fúndir. Stefnt er aö þvi að á vegum bæjaryfirvalda verði málefnum barna á ýmsan hátt sinnt sérstaklega. Þá veröa skipulagðar þar umræöur og fræðsla um einstök málefni sem varða börn og sérstakar skemmt- anir fyrir börn haldnar. Framkvæmdanefndin hvetur öll sveitarfélögtil að vinna skipu- lega aö málefnum barna á ári barnsins 1979. Lokaorð. „Það er skoðun okkar, að i til- efni barnaársins eigi að leggja megináherslu á grundvallaratriði i upþeldi “bárna almennt með framtiðarverkefni I huga. í rauninni eru öll ár ár barns- ms. Hitt er jafnvist, aö i krafti - alþjóðaársins geta komiö fram hugmyndir, sem kunna aö valda straumhvörfum i Ufi barna um viða veröld. Þaö er þvi mikilvægt aönota þetta tækifæri sem best.” Með sklrskotun til framan- greindrar tilvitnunar, sem tekin er úr bréfi frá fræðslustjóra Austurlandsumdæmis, vill fram- kvæmdanefiidin ítreka hvatningu Sameínuðu þjóöanna um aö i öll- um aöildarrikjum þeirra verði á alþjóðaári barnsins 1979 unniö að varanlegum umbótum á kjörum barna um heim allan. Alþjóðaár barnsins 1979 er hafið. Stjórn Verkalýðsfélags Borgamess sjálfkjðrin HEI —Nýlega er útrunninn fram- boðsfrestur til stjórnarkjörs i Verkalýðsfélagi Borgarness fyrir árið 1979. Aðeins kom fram einn listi, sem verður því s jálfkjörinn, og er hann þannig skipaður: For- maður Jón Agnar Eggertsson, ritariKarl A. ólafsson, gjaldkeri Ingibjörg Magnúsdóttir, fjár- málaritari Berghildur Reynis- dóttir, varaform. Baldur Jónsson, meðstjórendur Þuriður Bergs- dóttir og Agnar Ólafsson. 1 vara- stjórn Sigrún Eiiasdótúr, Svava Kristjánsdóttir, Sigurður Eiðs- son, Anna María Guðbjörnsdóttir og Egill Pálsson. © BSRB undirnefnd athugaði tillögur rikisstjórnarinnar um aukinn samningsrétt BSRB til handa gegn þvf aö fallið yröi frá 3% grunniaunahækkun 1. aprii n.k. „Viö leggjum áherslu á tvö meginatriöi, annarsvegar—að lögbundið 2ja ára samningstima bil verði afnumið, en það er verulegt atriöi fyrir samtökin, og hins vegar að Kjaranefnd verði lögö niöur eins og raunar er gert ráð fyrir i yfirlýsingu rlkisstjórnarinnar. Viö höfum gert tilboð sem felur i sér ákveðna valkosti og fleiri atriði, sem við höfum i þessu sambandi gert tillögur um. Sú krafa var gerð strax við myndum rfkis- stjórnarinnar, að á móti þeirri lagfæringu, er við höfum laet áherslu á, þá komi á móti til niðurfellingar 3% grunnlauna- hækkunar.” Núverandi ingu. En ég á ekki von á þvi að slikt geti orðið grundvöllur sam- komulags. — Fundurinn I morgun, lofar hann góðu? — Viö fórum yfir vandamálin og áttuðum okkur á þvi hvað þyrfti að láta útbúa af gögnum. Ég get ekki annað sagt en að þessi fundur hafi gengið með ágætum. © ÍR-ingar sigruöu sinn besta leik i vetur. Ekki má gleyma þætti Erlendar og Sigur- bergs, en Sigurbergur reyndist drjúgur I lokin. KR náði einfaldlega ekki að sýna sitt besta. Jón Sig. var I af- leitu formi og þrátt fyrir aö Hud- son skoraöi grimmt vantaði mikið upp á að sigur næöist. Innáskipt- ingar komu nokkuö spánskt fyrir sjónir oft á tiöum og kunna þær aö hafa átt einhvern hlut að máli. Stig IR: Stewart 27, Kristinn 20, Jón 19, Kolbeinn 9, Stefán 8, Sigurbergur 4, Erlendur 2. Stig KR:Hudson 39, Einar 14, Jón 9, Gunnar 6, Arni 4, Garðar 3, Ei- rikur 2. Maöur leiksins: Kristinn Jör- undsson, IR. —SSv— Jólahappdrætti SUF Vinningar fyrir dag- ana 1-24 desember eru: 1. des. 1957. 2. des. 03098 3. des. 00312 4. des. 00173 5. des. 03869 6. des, 4292 7. des. 01312 8. des. 4557 9. des. 00713 10. des. 01854 1. aukavinningur nr. 04623. 11. des. 1331 12. des. 00005 13. des. 4744 14. des. 3916 15. des. 2251 16. des. 1300 17. des. 4004 2. aukavinningur nr. 3633. 18. des. 4369 19. des. 3417 20. des. 01798 21. des. 350 22. des. 2483 23. des. 4673 24. des. 3546 3. aukavinningur nr. 4812 Vinningar eru afhentir á skrifstofu SÚF Rauðarár- stig 18. Simi 24480. D R E K I

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.