Tíminn - 27.06.1979, Page 6
6
Miövikudagur 27. júni 1979.
r
tJtgefandi Framsóknarflokkurinn
Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson og Jón Sigurðsson. Auglýsinga-
stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur,
framkvæmdastjórn og auglýsingar Siðumúla 15. Sfmi
86300. — Kvöldsimar blaðamanna: 86562, 86495. Eftir kl.
20.00: 86387. Verð i lausasölu kr. 150.00. Askriftargjald kl.
3.000.00 — á mánuði. Blaöaprent
Samkomulagi
fagnað
Fyrir Framsóknarflokkinn er ástæða til að
fagna þvi, að samkomulag hefur náðst milli Al-
þýðusambands Islands annars vegar og Vinnu-
málasambands samvinnufélaganna og Vinnuveit-
endasambands íslands hins vegar um 3% grunn-
kaupshækkun og óbreytta samninga að öðru leyti
fram til áramóta. Þetta er i fullu samræmi við til-
lögur þær, sem Framsóknarmenn lögðu fram i
rikisstjórninni 15. mai siðastl. og hafa beitt sér
fyrir siðan.
Eftir að opinberir starfsmenn höfðu fengið 3%
grunnkaupshækkun, var það orðið réttlætismál, að
aðrir sætu við sama borð. Jafnframt þvi þurfti svo
að tryggja það, að ekki yrði um frekari grunn-
kaupshækkanir að ræða á árinu, þar sem útilokað
væri að fást við hjöðnun verðbólgunnar að öðrum
kosti.
Sú var afstaða Framsóknarmanna að langæski-
legast væri að aðilar vinnumarkaðarins næðu
samkomulagi um þetta, enda er það i samræmi
við ákvæði nýju efnahagslaganna um samráð
stéttanna og rikisvaldsins. Tækist þetta sam-
komulag ekki, gæti orðið óhjákvæmilegt að gripa
til bráðabirgðalaga. Góðu heilli þarf nú ekki að
fara þá leið, sem jafnan er neyðarúrræði, þótt hún
geti reynzt óhjákvæmileg.
Framangreint samkomulag er tvimælalaust
verulegur áfangi i varnarbaráttunni gegn verð-
bólgunni. Málin standa nú öðruvisi og betur en
fyrir nokkrum vikum, þegar verkföll mjólkur-
fræðinga og farmanna voru i fullum gangi og tak-
markaðar likur á samkomulagi um 3% grunn-
kaupshækkunina og festingu grunnkaupsins að
öðruleyti til áramóta. Þá voru miklar horfur á, að
efnahagsmálin væru alveg að leysast úr böndun-
um. Margir hafa lagt hönd á plóginn til að koma i
veg fyrir slika öfugþróun en engar ýkjur eru að
segja, að þar hafa Framsóknarflokkurinn og ráð-
herrar hans átt drýgstan þátt.
Eins og málum er komið nú, hefur verið sköpuð
aðstaða til að ná aftur tökum á verðbólgunni, en
það verður þó örðugra vegna oliuverðhækkan-
anna. Rikisstjórnin þarf að taka oliumálin traust-
um tökum og það fyrr en seinna.
1 tillögum Framsóknarflokksins frá 15. maí var
lögð á það mikil áherzla að i framhaldi 3% grunn-
kaupshækkunarinnar og bindingu grunnkaupsins
til áramóta, yrði hafizt handa um gerð kjarasamn-
inga, sem giltu til tveggja ára frá næstu áramót-
um. Þetta starf ættu aðilar vinnumarkaðarins að
hefja strax. Hægt er að hugsa áe'r sömu vinnuað-
ferð og i farmannadeilunni, þar sem unnið var
fyrst að samkomulagi um öll önnur atriði en kaup-
gjaldsliðinn. Við gerð kjarasamninga á undan-
förnum árum hefur það oft orðið til mikillar trufl-
unar á lokastigi, að eftir hefur verið að semjá úm
ýms minni háttar atriði. Þetta ætti ekki að þurfa
að gerast nú, ef hafizt yrði nógu timanlega handa
um samningagerðina.
Það er vissulega fagnaðarefni, hve greiðlega
það gekk hjá aðilum vinnumarkaðarins nú að ná
samkomulagi. Eftir þetta rikir annað andrúmsloft
og betra en meðan verkbannshótun vofði yfir
fjölda verkafólks, sem enga sök átti i sambandi við
farmannaverkfallið. Nú ætti þvi að vera tækifæri
til að hefjast handa um ný og bætt vinnubrögð. Það
er mikilvægt, að stéttasamtökin láti þetta tækifæri
sér ekkiúr greipumganga. Þ.Þ.
Erlent yfirlit
Flóttafólkið er illa
séð í Suðaustur-Asíu
Vandamál þess þvi torleystari en ella
EF EINNI milljón Gyöinga
vaeri skyndilega vísað frá Sovét-
rlkjunum, myndu Bandarikja-
menn óðara koma á loftbrú og
flytja þá til Bandarikjanna, þar
sem þeim yrði tekið opnum
örmum.
Fréttaritari Christian Science
Monitor á vettvangi Sameinuðu
þjóðanna, Louis Wiznitzer,
hefur þessi ummæli eftir
embættismanni, sem starfandi
er i' utanrikisþjónustu vestræns
rikis, en nafngreinir hann ekki
að sjálfsögðu. Ummælin eru
sögð i tilefni af flóttamanna-
straumnum frá Vietnam og gefa
óbeint til kynna, að i sambandi
við hann haldi Bandarikin að
sér höndum, enda þótt þeim sé
málið skylt. Meginþorri flótta-
mannanna frá Vietnam er kin-
verskt miðstéttarfólk, en meðal
þess áttu Bandarikjamenn
traust fylgi meðan á Vietnam-
styrjöldinni stóð. Þess hefur það
ortiið að gjalda hjá hinum nýju
valdhöfum ogþað ekki dregið úr
andúðinnigegn Kinverjum, sem
var rik fyrir hjá Vietnömum.
Valdhöfum þarer þvi ósártum,
þótt Kinverjar fari úr landi.
Vafalaust stuðla stjórnarvöld
þar að brottflutningunum. Það
ýtir svo undir þá, að margir
Kinverjanna telja sig eiga vin-
um að fágna, þar sem séu
Bandarik jamenn og fleiri
vestrænar þjóðir, sökum stuðn-
ings þeirra við Bandarikin i
Vietnamstyrjöldinni.
Tæplega er hægt að segja, að
þeim hafi tíl þessa orðið að von
sinni. Bandarikin hafa lofað að
taka á móti 7000 flóttamönnum
frá Vietnam á mánuði, en hafa
tæplega efnt það. Sameinuðu
þjóðirnar hafa nú farið þess &
leit, að þau taki á móti 14000 á
mánuði.en ekki er búizt við,
aö Bandarikjastjórn hækki
þessa tölu meira en upp i 10000.
Vestur-Þjóðverjar hafa lofaö að
taka á móti 5000 á ári, en hafa
nýlega gefið i skyn, að þeir
kunni að lækka þessa tölu.
Frakkar hafa lofað að taka á
móti 1000 á ári, en ræða nú um
að lækka þessa tölu um helm-
ing. Kanadamenn hafa nýlega
hækkað sina tölu úr 9000 i 12000 á
ári. Astraliumenn hafa lofaö að
taka á móti 9000 á ári.
VANDI flóttamannanna frá
Vietnam er enn meiri sökum
þess, að ekkert nágrannarikj-
t anna vill taka á móti þeim, ekki
einu sinni til bráöabirgða. Eitt
þeirra, Malasia, hefurhótað að
hrekja þá burtu með valdi, en
hefur þó frestað enn að gera
alvöru úr þvi. Ástæðan fyrir
þessu er ekki sizt nú, að háð er
hörð valdabarátta i Malasfu
milli Malaja annars vegar og
Kinverja hins vegar. Malajar
telja um 45% ibúanna, en Ki'n-
verjar 35%. Malajar hafa yfir-
leitt haft betur á stjórnmála-
sviðinu, en Kinverjar á sviði
viöskipta og f jármála. Malajar
vilja ekkert siöur en að Kinverj-
um fjölgi i Malasiu og skýrir
það afstöðu valdhafanna til
flóttamannanna.
1 Indónesiu rikir mikil andúð i
garö Kinverja, sem þar eru bú-
settir og virðist afstaöa
stjórnarvalda þar ekki ólik af-
stöðu stjórnarvaldanna i Mala-
siu. t Singaporeeru Kinverjar I
miklum meirihluta og rlkir þvi
annað andrúmsloft þar, en tak-
markaðir möguleikar eru þar til
að taka á móti flóttafólki. 1
Thailandi eru Kinverjar fá-
mennastír I þessum löndum, en
þangað sækja mest flóttamenn
frá Kambódiu og Laos.
Þaðnábúariki Vietnams, sem
fúsast ætti að vera til aö taka á
móti flóttamönnunum, er að
sjálfsögðu Kina. En Kinverjar
halda mjög að sér höndum
Flóttamannabátur I höfninni I Hong Kong.
þessum efnum og hindra flótta-
menn i þvi að komast yfir
landamærin. Flóttamenn, sem
þangað hafa komizt, hafa orðið
að fara sjóleiðina. Vegna lok-
unar kinversku landamæra.nna
hafa f ló11amennirnir
orðiö að fara frá Vietnam á
skipum og bátum, sem oftast
má kalla hreinar manndráps-
fleytur, enda margir farizt á
leiðinni.
Japanirhafa veriðmjög ófús-
ir til að taka á móti flóttamönn-
um frá Vietnam. Að sögn New
York Times hafa þeir aðeins
veitt þremur flóttamönnum frá
Vietnam varanlegt landvistar-
leyfi, en hafa lofað aö hækka þá
tölu eitthvað.
EN þótt flóttamennirnir frá
Vietnam sæti ekki betri móttök-
um hjá vestrænum þjóðum en
að framan greinir, er þeim öllu
meiri áhugi sýndur af alþjóðleg-
um stofnunum en öðru fólki,
sem svipað er ástatt um. Þess
vegna hefur af hálfu Sameinuðu
þjóðanna verið boðað til sér-
stakrar alþjóðlegrar ráðstefnu
um mál þeirra. Búizt er við, að
ekki mæti þar fulltrúar frá
nema þriðjungi þeirra þjóða,
sem eru aðilar að Sameinuðu
þjóðunum. Þannig er ekki
reiknað með þátttöku Afriku-
þjóða, sem telja flóttamanna-
vandamálið enn stærra i Afriku
en Asiu, en þvi sé minna sinnt
þar.Þá er búizt við litílli þátttöku
frá rómönsku Amerlku. óvister
um þátttöku kommúnistarikj-
anna. Vestrænu rikin munu taka
þátt i ráðstefnunni.
Þátttaka Vietnams er óráðin.
Valdhafar þar hafa látið I ljós,
að þeir séu ófúsir til þátttöku, ef
ráðstefnan á að verða karp um
hverjum sé að kenna um flótt-
ann frá Vietnam, en margir
óttast, að svo getí farið. Þá hafa
vietnömsk stjórnarvöld boðizt
til að taka við flóttamönnunum
aftur, en þó gegn vissum skil-
yrðum. Sennilega er þetta boðið
i traustí þess, að fáir kjósi að
snúa heim aftur.
I Vietnam eru taldir um 1,3
millj. Kínverjar. Kinverjar eru
taldir um 70-80% af flóttamönn-
um I Suðaustur-Asiu, en áætlað
er að þeir séu orðnir um 300 þús-
und. Talsverður hluti þeirra er
frá Kambódiu og Laos, en
meðal þeirra munu Kinverjar i
meirihluta.
Eins og er, mun mest þörf á
þvi, að Flóttamannahjálp Sam-
einuðu þjóðannafái fjármagn til
að sjá flóttamönnunum fyrir
vistum ogskýli til bráðabirgða,
meðan unnið er að þvi að
tryggja þeim bólfestu til fram-
búðar. Annars munu hungur og
sjúkdómar sækja þá heim i rik-
um mæli.
Þ.Þ.
[ Hrisgrjónum skipt milli flóttamannaDuöa t Malasiu.