Tíminn - 27.06.1979, Side 13

Tíminn - 27.06.1979, Side 13
Miðvikudagur 27. júni 1979. ÍÞRÓTTIR IÞROTTIR „Við fáum aðeins 4 daga sumarfrí” — segir Teitur Þórðarson, en Öster keppir í TOTO bikarkeppninni — Þaö verður ekki mikið sumarfrí,sem við fáum — aöeins fjórir dagar, sagði Teitur Þórðar- son, landsliðsmiöherji, sem leikur með öster i Sviþjóð. Sviar taka alltaf eins mánaðar sumar- fri f „Allsvenskan” yfir há- sumarið, en það timabil notar öster til að taka þátt i TOTO-bikarkeppninni i Evrópu. — Við leikum i riðli með tékk- neska liðinu Banik Ostrava, Darmstad 98 frá V-Þýskalandi og liði frá .Austurriki, sagði Teitur. — Hvernig gekk hjá öster i „Allsvenskan” um helgina? — Við máttum þola tap fyrir Hammerby 0:1 á útivelli, þrátt fyrir að við náðum aö sýna ágæt- an leik. Hammerby skoraði sigurmarkið 15.min. fyrir leiks- lok og sigur þeirra var alls ekki óréttlátur. — Ef við hefðum náð að vinna sigur i Hammerby, hefðum við skotist upp i þriðja sætið. I „All- svenskan” — við erum nii 5 stig- um á eftir toppliðinu. —SOS # Teitur Þórðarson. Pétur Ormslev---geröi varnarmönnum Skagamanna oft llfið leitt. Hér er hann búinn aö leika á Guðjón Þórðarson. Pétur hefur skorað 9 mörk fyrir Fram f sumar — 5 i 1. deildarkeppninni. (Timamynd: Tryggvi) „Ég mun biðja þakkarbæn... fyrir að fá stig gegn Fram”, sagði Hilpert, þjálfari Skagamanna — Ég mun fara I kirkju i fyrramálið og biðja þar þakkarbæn — við vorum svo sannarlega heppnir að fá þetta stig, sagði Klaus-Jörgen HOpert, þjálfari Skagamanna eftir leikinn gegn Fram. — Þetta var mikill baráttu- leikur og hvorugt liðið vildi tapa, þess vegna var engin áhætta tekin. Framarar voru stórhættulegir, eftir aö við höföum jafnaö þeir tóku öll völd á miðjunni og við vorum heppnir aö fá ekki á okkur mörk, sagöi Hilpert. —Kom Fram-liöiö þér á óvart? —Nei, ég veit að Fram-liðið er mjög gott liö og Framarar hafa tvo mjög hættulega framlínumenn, sem gera hvaða vörn sem er erfitt fyrir. —sos Hilpert. min. þegar Sigþór ömarsson, , skaut fram hjá marki Fram i dauðafæri. Aðeins þremur min. siðar náöu Skagamenn áö jafna — Kristján Olgeirsson tók auka- spyrnu fyrir utan vitateig vinstra megin og sendi hann knöttinn vel fyrir mark Framara, þar sem Sigurður Halldórssonstökk hærra en allir aðrir og skallaði knöttinn i netiö — 1:1. Eftir markiö fóru Framarar að láta virkilega að sér kveöa — þeir tóku völdin á miöjunni og sóttu stift að marki Skagamanna, en sóknarþungi þeirra bar ekki árangur — Skagamenn sluppu með „skrekkinn”. Annars byrjuðu Skagamenn leikinn af miklum krafti, en Framarar voru fastir fyrir og vörðust vel — þeir tóku svo smátt og smátt aö ná yfirhöndinni og gera miðvallarspil Skagamanna hættulitið. Framarar fengu eina hættulega tækifæriö i fyrri hálf- • leik — Guömundur Steinsson hitti þá knöttinn illa i dauðafæri á markteigslinu. Fram-liöið lék vel i gærkvöldi — vörnin var traust meö þá Mar- tein og Trausta sem aðalmenn, en Simon átti marga góöa spretti. Rafn Rafnsson, Asgeir Eliasson og Gunnar Bjarnason voru sterkir á miöjunni og sömuleiðis Gunnar Guðmundsson, sem var alltaf á feröinni. Pétur Ormslev var mjög góður i framlinunni og gerði varnarmönnum Skaga- manna lifiö leitt. Bestu menn Skagaliðsins voru þeir Jóhannes Guðjónsson, Jón Þorbjörnsson, markvörður. Sigurður Lárusson, sem lék nú sem bakv. og Arni Sveinsson. Arnór Öskarsson dæmdi leikinn og slapp hann vel frá honum, nema hvað hann dæmdi of mikið á ýmis smábrot. Linuverðirnir voru ekki beint með á nótunum i leiknum — voru oft alltof fljótir að dæma rangstööur — sérstaklega þegar enginn leikmaður var rangstæður. MAÐUR LEIKSINS: Rafn Rafnsson, Fram, sem lék mjög vel. — SOS STAÐAN Staðan er nú þessi i 1. deildar- keppninni i knattspyrnu, eftir ieikinn i gærkvöidi: Fram — Akranes.............1:1 Keflavlk .... 6 3 3 0 11:2 9 Fram 2 4 0 10:5 8 Akranes 3 2 1 11:8 8 KR 3 1 1 6:4 7 Vestm.ey .... 6 3 1 2 8:3 7 Valur 6 1 3 2 7:7 5 Vikingur 6 2 1 3 7:9 5 KA 6 2 0 4 7:12 4 Þróttur 1 I 3 4:9 3 Haukar 6 1 0 5 3:16 2 Markhæstu menn: Pétur Ormslev, Fram........5 Sveinbjörn Hákonars ., Akran .. 5 Næsti leikur: KR og Þróttur leika i Laugardalnum í kvöld ki. 8. Man. Gity keypti óþekktan strák... — á 750 þús. pund Manchester City festi kaup á óþekktum knattspyrnu- manni frá Preston — Michael Robinson. City borgaði Preston 750 þús. pund fyrir Robinson, sem er nú orðinn næst dýrasti knattspyrnumaö- ur Englands — aðeins Trevor Francis hjá Nottingham Forest er dýrari — ein milljón pund. Þá keypti Newcastle Ian Davies á 175 þús. pund i gær- kvöldi. Grímur í leikbann Grímur Sæmundsen, bak- vörður Valsliðsins, var dæmdur I eins leiks keppnisbann i gær- kvöldi, þar sem hann hafði hlot- ið meira en 10 refsistig. Adolf Guðmundsson, Hugni fékk einn- ig eins leiks bann svo og Ar- menningurinn Smári Jósafats- son, sem var visað af leikvelli fyrir stuttu. — SOS Framarar þurftu að sætta sig við jafntefli 1:1 gegn Skagamönnum: ■ Ska^amfinn voru mjög heppnir.... að ná stigi af okkur”, sagði Hólm- bert Friðjónsson, þjálfari Framara — Ég er ekki ánægður með að hafa þurft að sjá á eftir öðru stiginu til Skaga- manna — með smá heppni höfðum við átt að gera út um leikinn i seinni hálf- leiknum, en þá léku strák- arnir mjög vel/ sagði Hólmbert Friðjónsson, þjálfari Framara, sem urðu að sætta sig við jafn- tefli 1:1 gegn Skaga- mönnum á Laugardals- vellinum í gærkvöldi í f jör- ugum leik. Framarar léku mjög vel gegn Skagamönnum og náöu foryst- unni á 52. min. þegar Trausti Haraldsson átti frábæra sendingu fram völlinn, þar sem Pétur Ormslev tók viö knettinum og sendi hann fram hjá Jóni Þor- björnssyni, markverði Skaga- manna, sem kom á móti Pétri. Eftir markið geröi Pétur mikinn usla i vörn Skagamanna á 56.min. lék hann skemmtilega á tvo varnarleikmenn Skagamanna og skaut þrumu skoti að marki, en Jón Þorbjörnsson náöi aö verja á siðustu stundu. Stuttu siðar komst Pétur einn inn fyrir vörn Skagamanna, en þá brást honum bogalistin. — Ég sá markið galopið, en ég hitti knöttinn mjög illa, sagði Pétur eftir leikinn. Skagamenn fengu sitt hættu- legasta tækifæri i leiknum á 22.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.