Fréttablaðið - 22.12.2006, Side 8
Lestrarsal-
ur Þjóðskjalasafns
Íslands er gömul
ísbúð. Árið 1999 var
ætlunin að nýta lestr-
arsalinn í 18 mánuði
en þá lét safnið af
hendi lestraraðstöðu í
Þjóðmenningarhús-
inu. Eins og fjallað
var um í Fréttablað-
inu í gær getur Þjóð-
skjalasafnið ekki
sinnt lögboðnum
skyldum sínum vegna
aðstöðuleysis. Rúm-
lega 130 stofnanir geta ekki skilað
skilaskyldum skjölum. Ein þeirra
er menntamálaráðuneytið sem
Þjóðskjalasafnið heyrir undir sem
menningarstofnun.
Ólafur Ásgeirsson þjóðskjala-
vörður segir að 60 til 70 prósent af
húsnæðinu hafi verið löguð að
utanverðu en innan við 30 prósent
af húsnæðinu hafi verið endur-
bætt að innan. „Það eru tuttugu ár
síðan við fluttum hér inn og það
hefði þurft að taka á
húsnæðismálunum
allt frá byrjun. Við
erum þeirrar skoðun-
ar að best væri að
byggja nýtt safna-
hús. Lestrarsalurinn
er til dæmis gömul
ísbúð sem ekkert
hefur verið gert
fyrir.“
Ólafur segir að
útilokað sé að taka á
móti skjölum stofn-
ana við svo búið.
„Meira segja mennta-
málaráðuneytið hefur bæst við
langan lista stofnana sem vilja
skila af sér. En einna verst er að
þurfa að flytja skjöl utandyra. Það
er mjög slæmt.“
Að sögn Ólafs eru starfsmenn
safnsins of fáir og að skjöl hafi
eyðilagst vegna aðstöðuleysis.
Elstu og viðkvæmustu skjölin eru
þó geymd þar sem ekki þarf að
ferja þau utandyra, og slík verð-
mæti hafa ekki tapast.
Hvenær tekur reykbann á
veitinga- og skemmtistöðum
gildi?
Hvað heitir forsætisráðherra
Póllands?
Hvað heitir skipið sem
strandaði í Hvalsnesfjöru?
Áætluð þörf fyrir nýtt
varðveisluhúsnæði fyrir menn-
ingararf þjóðarinnar er tæplega
15.450 fermetrar auk 1.550 fer-
metra til geymslu á leikmyndum
og búnaði. Að auki er brýn þörf
fyrir endurbætur á núverandi
húsnæði Þjóðskjalasafns Íslands
(ÞÍ). Nokkrar núverandi geymsl-
ur upp á 3.800 fermetra eru ófull-
nægjandi og munu leggjast af
þegar búið er að byggja eða leigja
nýjar geymslur. Listasafn Íslands
(LÍ) er eitt þeirra safna sem
þurfa nýtt geymslurými án tafar.
Þetta er meðal niðurstaðna
starfshóps um varðveislu- og
geymslumál þrettán menningar-
stofnana sem Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir menntamálaráð-
herra hefur látið vinna. Helstu
niðurstöður starfshópsins eru að
brýnustu varðveisluverkefni
Listasafns Íslands og Þjóðskjala-
safns Íslands verði leyst nú
þegar. Einnig að sameiginlegt
þjónustu- og varðveisluhús fyrir
höfuðsöfnin tvö sem starfa eftir
safnalögum, Þjóðminjasafn og
Listasafn Íslands, verði byggt á
lóð Þjóðminjasafnsins við Vest-
urvör. Þá er mælt með að byggð
verði, eða leigð, allt að 5.400 fer-
metra varðveislubygging fyrir
fjargeymslur Þjóðskjalasafnsins
og Landsbókasafns Íslands.
Nauðsynlegt þykir einnig að
ákvörðun verði tekin um framtíð-
araðsetur Þjóðskjalasafnsins við
Laugaveg og endurbótum þar
innandyra lokið á næstu fimm
árum.
Byggja þarf geymslu-
húsnæði fyrir söfn
Starfshópur á vegum menntamálaráðuneytisins komst að þeirri niðurstöðu að
varðveislu menningararfsins væri ábótavant. Geymslur standast ekki kröfur. Brýn-
ustu varðveisluverkefni Listasafns Íslands og Þjóðskjalasafns þarf að leysa strax.
Lesrými safnsins er
gömul ísbúðarhola
Stjórn Félags íslenskra
safna og safnamanna hefur sent
frá sér ályktun þar sem miklum
áhyggjum er lýst vegna þeirrar
aðstöðu sem íslensk stjórnvöld
hafa búið Náttúrugripasafni
Íslands. Félagið skorar á stjórn-
völd að tryggja NÍ framtíðarhús-
næði hið fyrsta og gera því kleift
að vinna samkvæmt lögbundnum
skyldum sínum sem höfuðsafn á
sínu sviði hvað varðar söfnun,
varðveislu, skráningu, rannsóknir
og miðlun.
Félagið leggur áherslu á að
tryggt sé að sérfræðingar Náttúru-
gripasafns séu hafðir með í ráðum
frá upphafi um uppbyggingu fram-
tíðarstarfsemi safnsins, og að hags-
munir þess og faglegt starf, ásamt
aðgengi almennings að safninu,
verði ávallt haft að leiðarljósi.
Húsnæðisvanda
verður að leysa
Landlæknisemb-
ættið segir frásögn tímaritsins
Ísafoldar um konu sem beinbrotn-
aði á dvalar- og elliheimilinu Grund
augljóslega ranga. Embættið hefur
lokið athugun á Grund en sér ekki
ástæðu til aðgerða.
Greinina skrifaði blaðamaður
sem starfaði á Grund í fimm daga
til að afla heimilda og í henni er
dregin upp mjög dökk mynd af
aðbúnaði á dvalarheimilinu.
Í greininni er sagt frá því þegar
kona beinbrotnaði og var látin
liggja í yfir sólarhring áður en
henni var komið til meðferðar. Í
skýrslu Landlæknis segir að miðað
við öll skrifleg gögn sem fyrir
liggja sé sú frásögn röng. Enginn
vistmaður hafi beinbrotnað á
meðan blaðamaðurinn var við
störf. Kona hafi mjaðmagrindar-
brotnað áður en blaðamaðurinn
hóf störf, en eðlilega hafi verið
staðið að því máli.
Þá segir í skýrslunni að sam-
skipti við erlenda starfsmenn
væru engum erfiðleikum háð ólíkt
því sem fullyrt er í greininni. Þá
hafi verið rætt einslega við nokkra
vistmenn og væru margir reiðir
blaðamanninum fyrir skrifin.
Embættið telur ekki ástæðu til
aðgerða í kjölfar greinarinnar en
tekur þó fram að láðst hafi að láta
viðkomandi starfsmann undirrita
trúnaðaryfirlýsingu og verði það
gert í framtíðinni.
Umfjöllun um beinbrot röng
Reynir Traustason og
Jón Trausti Reynisson, ritstjórar
tímaritsins Ísafoldar, sendu frá
sér yfirlýsingu í gær þar sem
þeir höfnuðu því sem fram kemur
í skýrslu landlæknis.
Í yfirlýsingunni segja þeir að
landlæknir fari með rangt mál,
tímaritið hafi aldrei fullyrt það
sem landlæknir segir rangt í
umfjölluninni. Það séu einnig
óverjandi vinnubrögð að ekki hafi
verið leitast við að heyra sjónar-
mið blaðamanns Ísafoldar við
gerð skýrslunnar. Ásakanir
landlæknis séu alvarlegar og
Ísafold muni kanna lagalega
stöðu sína vegna þessa.
Ritstjórar segja
skýrsluna ranga
Hlíðasmára1 • 201 Kópavogur • 534 7777 • www.modern.is
fegurðin býr
í smáatriðunum
Maglite vasaljós
Verð frá kr. 990.-
Bílabúð Benna - Vagnhöfða 23 - 110 Reykjavík - Sími 590 2000 - Fax 590 2099 - Opið þorláksmessu frá kl. 10.00-16.00
DÓTABÚÐ BÍLAÁHUGAMANNSINS
Mikið úrval af dráttarspilum
Verð frá kr. 29.490.-
Höfuðljós
Verð frá kr. 1.995.-
Crosshjálmar
Verð frá kr. 9.900.-
Loftdælur mikið úrval
Verð frá kr. 4.990.-
www.benni.is