Fréttablaðið - 13.01.2007, Blaðsíða 55

Fréttablaðið - 13.01.2007, Blaðsíða 55
Eskimos Ævintýrasmiðja hefur tekið upp Murder Mistery- þema-partíin á nýjan leik. Eskimos Ævintýrasmiðja hefur lengi boðið upp á skemmtanir og ævintýraferðir fyrir hópa stóra sem smáa. Nú hefur Eskimos tekið upp að nýju það sem kallast Murd- er Mistery kvöldverðir. Um er að ræða þema og hlutverkapartí sem gerist í hringiðu morðmáls. Þessir kvöldverðir hafa þótt skemmtileg leið til að halda góða veislu. Nokkuð fyrir veisluna fá gestir boðskort þar sem þeim er boðið að taka þátt í að leysa morðið. Jafn- framt fá þeir send sín hlutverk og hvað þau eigi að gera í veislunni. Leikurinn fer þannig fram að hópnum er tilkynnt um að framið hafi verið „morð“ og einn úr hópn- um er sá seki. Leikurinn gengur svo út á að finna út hver morðing- inn er. Í upphafi veislunnar eru gest- irnir kynntir, farið yfir hlutverk þeirra og hvernig viðkomandi tengist „fórnarlambinu“. Við for- drykkinn fara gestir af stað og byrja á að „plotta“, bindast samn- ingum og skiptast á upplýsingum og varningi. Þegar líða tekur á kvöldið fara gestir betur í sín hlut- verk og smám saman kemur betur í ljós hvernig gestirnir tengjast fórnarlambinu sem og öðrum. Í lokin er gestunum skipt upp í nokkur lið, liðin eiga síðan að koma með lausn á morðgátunni. Það lið sem er næst lausninni eða finnur út hver morðinginn er vinn- ur en það er lögregluforinginn sem les upp lausnina og útnefnir sigurlið. Hægt er að halda Murder Mist- ery-veislu fyrir allt frá tólf til 42 manns. Einnig er hægt að sérsníða veisluna að hópnum ef óskað er eftir því. Hægt er að halda þessar veislur í Reykjavík en einnig á stöðum eins og að Grímsá, Kríunesi við Elliðavatn og víðar. Nánari upplýsingar má finna á www.eskimos.is Morð í góðra vina hópi Icelandair er með til sölu miða á HM í handbolta sem fram fer í Þýskalandi síðar í mánuðin- um. Eftir nokkra daga hefst heims- meistaramótið í handknattleik í Þýskalandi þar sem Ísland mun keppa í undanriðli ásamt Ástral- íu, Úkraínu og Frakklandi. Leik- irnir fara fram dagana 20. til 22. janúar. Icelandair er með til sölu nokkra miða á leikina sem með flugi kosta 44.410 krónur. Er þetta viðbót við sérstaka ferða- pakka á mótið sem seldust upp um jólin. Leikir í riðli Íslands fara fram í Magdeburg. Icelandair hefur sett upp aukavél sem flýgur til Frankfurt 23. janúar sem mun þá fljúga heim með íslensku hand- boltaaðdáendurna. Einnig geta stuðningsmenn íslenska hand- boltaliðsins nýtt þá vél til að kom- ast út og hvetja strákana okkar áfram í milliriðlum komist þeir upp úr undanriðli. Flogið er til Frankfurt en þaðan eru tíðar lest- arferðir til Magdeburgar, sem og rútuferðir. Finna má hótelgist- ingu í gegnum hótelbókunarvél Icelandair á netinu. Sjá nánari upplýsingar á www. icelandair.is. Ferðir á HM í handbolta – ERU BETRI EN AÐRAR!www.kreditkort.is Mundu eftir MasterCard ferðaávísuninni F ít o n / S ÍA m.v. 2 í herbergi á lúxushótelinu Gran Tacande. Innifalið: Flug, skattar, gisting með morgunverði, námskeið og námskeiðsgögn. Verð: 84.650,- 19.–26. apríl 2007 m.v. 2 í herbergi á lúxushótelinu Gran Tacande. Innifalið: Flug, skattar, gisting með morgunverði, námskeið og námskeiðsgögn. Bjargey Aðalsteinsdóttir Verð: 99.411,- 1.–8. febrúar 2007 Hin geysivinsælu námskeið fyrir konur í umsjón Bjargeyjar Aðalsteinsdóttur í samvinnu við Dale Carnegie á Íslandi. Námskeiðið er haldið á Hotel Gran Tacande á Tenerife. Ný og betri námskeið Sumarferða hafa fengið frábærar viðtökur enda tilvalið að tengja sólríkar utanlandsferðir við gefandi lærdóm. Þaulvanir leiðbein- endur sjá til þess að ferðalangarnir fái sem allra mest út dvölinni. Námskeið fyrir konur sem vilja skemmta sér á yndislegum stað. Sóley Jóhannsdóttir og Bjargey Aðalsteinsdóttir eru með fjölbreytta dagskrá, m.a. ýmsa leikfimi, göngu og fræðandi fyrirlestra. Ef þú vilt læra um holla lifnaðarhætti og léttara líf, þá er þetta námskeið fyrir þig! Nýr og betri lífsstíll! Ný og betri kona 1.–8. febrúar á Tenerife Ný og betri kona í samvinnu við Dale Carnegie á Íslandi www.sumarferdir.is Sími 575 1515 Nýr og betri lífsstíll 19. – 26. apríl – Tenerife Ný og betri á Hotel Gran Tacande Sóley Jóhannsdóttir Spennandi námskeið framundan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.