Fréttablaðið - 13.01.2007, Blaðsíða 28
Jeppar eru mun hættulegri í
umferðinni en fólksbílar. Þetta
á bæði við í tilfellum útafakst-
urs og árekstra.
Dr. Guðmundur Freyr Úlfarsson
sviðsstjóri við Washington-háskóla
hélt erindi í Háskóla Íslands um
muninn á öryggi jeppa og fólks-
bíla í umferðinni hér á landi.
Margt forvitnilegt kom fram í
erindinu en Guðmundur segir að
jeppar virðist hættulegri farar-
tæki en önnur er kemur að alvar-
legum slysum. Niðurstöður sínar
byggir hann á tölum Umferðar-
stofu á árunum 1991 til 2001.
Ökumönnum jeppa sem lenda
utan vega er hættara við að hljóta
alvarleg meiðsli eða láta lífið en
ökumönnum fólksbíla í sambæri-
legum aðstæðum. Þarna er átt við
ef bifreiðin lendir í árekstri við
harðan hlut, eins og vegg eða
staur. Ekki er átt við veltur.
Svipaðar líkur eru á meiðslum
ef tveir jeppar lenda saman í
árekstri og ef um tvo fólksbíla
væri að ræða. Hins vegar aukast
líkurnar á alvarlegum slysum til
muna á ökumanni fólksbíls lendi
hann í árekstri við jeppa. Að sama
skapi er ökumaður jeppans örugg-
ari.
Árekstrar jeppa og fólksbíla
eru sérstaklega hættulegir öku-
mönnum fólksbíla ef um hliðará-
rekstur er að ræða þar sem jeppi
keyrir inn í hlið fólksbíls. „Svo
virðist sem stuðarar jeppabifreiða
lendi fyrir ofan styrktar hurðir og
fari í gegnum rúður og karma
fólksbifreiðar þar sem vörnin er
lítil,“ sagði Guðmundur meðal
annars í erindinu.
Athygli vekur að sögnin um að
breyttir jeppar séu hættulegri en
óbreyttir virðist ekki eiga við rök
að styðjast. Þeir lenda ekki í fleiri
óhöppum hlutfallslega og meiðslin
sem þeir valda eru ekki alvarlegri
en ef um óbreyttan jeppa væri að
ræða. Hingað til hefur verið talið
að breyttir jeppar væru óstöðugri
og líklegri til að velta og valda slys-
um en Guðmundur segir að við
fyrstu sýn virðist ekki svo vera.
„Það er vitað að þegar stuttir
jeppar eru hækkaðir verða þeir
valtari en flestir þeir bílar sem
eru hækkaðir eru mjög langir og
kemur hækkunin því ekki að sök.
Margir þeirra eru líka breikkaðir
og það gerir bílana jafnvel stöðugri
en áður,“ sagði Guðmundur en
ítrekaði að hann hefði ekki töl-
fræði í höndunum til að sanna eitt
né neitt í þessum efnum.
Breyttir jeppar ekki
hættulegri en óbreyttir
Árið sem er að líða var gott ár
fyrir íslensk bílaumboð. Bíla-
framleiðendur eru hins vegar
ekki allir jafn ánægðir.
Árið var afar misgott hjá bílafram-
leiðendum. Þeim sem gekk hvað
best voru Volkswagen sem átti
metár, Toyota sem stefnir hraðbyri
að því að velta GM úr sessi sem
stærsti bílaframleiðandi heims, KIA
sem á árinu opnaði eina fullkomn-
ustu bílaverksmiðju heims í Slóven-
íu, og Lamborghini sem átti sitt
besta ár hingað til.
Ekki gekk öllum framleiðendum
jafn vel og ofangreindum fyrirtækj-
um. Ford átti afar erfitt ár sem
markaðist af minnkandi sölu, niður-
skurði, fyrirhuguðum uppsögnum
og lokun verksmiðja. Skipt var um
stjórnarformann en allt kom fyrir
ekki. Skipið heldur áfram niður
öldudalinn og virðist ekki skipta
máli hver stendur í brúnni. Fundur
stjórnarformanna Ford og Toyota í
desember síðastliðnum ýtti undir
sögusagnir þess eðlis að fyrirtækin
myndu sameinast en bæði fyrirtæk-
in neita að slíkur samruni sé í burð-
arliðnum.
Annað er uppi á teningnum á
Ísalndi. Ford-umboðinu hérlendis
gekk mjög vel og var síðasta ár
metár hjá Brimborg. Liggur munur-
inn líklegast í þeim tegundum sem
seldar eru. Fyrirtækið hefur veðjað
á stærri jeppa og pallbíla á heima-
markaði en eftirspurnin eftir slík-
um bifreiðum hefur minnkað mjög í
Bandaríkjunum. Hér á landi er það
hins vegar jepplingurinn Escape og
fólksbíllinn Focus sem seljast best.
Sem fyrr ber Toyota höfuð og
herðar yfir aðra framleiðendur í
sölu nýrra bíla á Íslandi. Ford, Skoda
og Volkswagen seljast einnig vel
sem og Honda, Mitsubishi og
Huyndai.
Toyota stækkar en
Ford tapar
OPIÐ LAUGARDAG KL. 12-16 OG SUNNUDAG KL. 13-17.
VERIÐ VELKOMIN!
LMC FENDT KNAUS BÜRSTNER
ÁRGERÐIR 2007
GLÆSILEGT ÚRVAL!
ALLAR GERÐIR AF HJÓLHÝSUM FRÁ: