Fréttablaðið - 13.01.2007, Blaðsíða 82
Ræddi við Eyjólf Sverrisson um skiptin
6
Stuðningsmannasam-
tökin Í blíðu og stríðu voru stofn-
uð í Laugardalshöllinni með pompi
og prakt. Félagið er hugsað sem
vettvangur þar sem hver sem er
getur gerst meðlimur og stutt
dyggilega við bakið á „strákunum
okkar“ í handboltalandsliði karla.
Tekið er við skráningum á vefsíðu
félagsins, ibliduogstridu.is, og
geta þeir sem skrá sig átt kost á
því að fá frímiða á landsleik
Íslands og Tékklands í Laugar-
dalshöllinni um helgina.
Valinkunnir einstaklingar eru í
heiðursstjórn samtakanna en þeir
eru Geir H. Haarde forsætisráð-
herra, Jón Karl Ólafsson forstjóri
Icelandair, Magnús Skúlason geð-
læknir, Jakob Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri, Halla Tómasdóttir
hjá Viðskiptaráði, Árni Pétur
Jónsson forstjóri Teymis, Elva
Ósk Ólafsdóttir leikkona og Sig-
urður Valur Sveinsson handbolta-
þjálfari.
Landsliðið sjálft var einnig
statt á stofnfundi samtakanna og
var tilkynnt að leikmennirnir
yrðu í sambandi við stuðnings-
menn á heimasíðunni, bæði með
því að skrifa á bloggsíðunnar og
svara spurningum lesenda.
Félagar verða að fara eftir
„stuðningsboðorðunum“ tíu til að
gerast gjaldgengir í samtökin sem
snúast um að styðja landsliðið á
jákvæðan máta í gegnum þykkt
og þunnt.
Guðjón Valur Sigurðsson þekk-
ir vel hvernig það er að standa í
ströngu með landsliðinu og hann
segir að það sé lítill tilgangur að
halda úti landsliði ef stuðningur-
inn er enginn.
„Eftir því sem árin líða og
reynslan safnast lærir maður að
meta þennan stuðning,“ sagði
Guðjón Valur. „Það er afar gott að
vita af þessum stuðningi og hann
er okkur mikilvægur. Þegar við
spilum á stórmótum erlendis
fáum við fréttir af stemningunni
heima en annars reynum við að
halda okkur til hliðar og einbeita
okkur fyllilega að verkefninu
hverju sinni.“
Þegar íslenska landsliðið spilar
á stórmóti fylgist meginþorri
þjóðarinnar með og virðist sem
flestir hafi sína skoðun á liðinu og
gengi þess. „Við fögnum allri
gagnrýni svo lengi sem hún á rétt
á sér og er á málefnalegum nótum.
Við vitum að handboltalandsliðið
er sameiningartákn þjóðarinnar
þegar mikið ber við og við gerum
ávallt okkar besta.“
Íslenska landsliðið mætir því
tékkneska tvívegis um helgina,
klukkan 16.15 í Laugardalshöll í
dag og á sama tíma á morgun.
Hægt er að nálgast miða á fyrr-
nefndri síðu og eru handboltaunn-
endur hvattir til að mæta í Höllina
og sýna stuðninginn í verki áður
en alvaran byrjar í Þýskalandi
eftir slétta viku.
Stofnfundur stuðningsmannasamtakanna Í blíðu og stríðu var haldinn við hátíðlega viðhöfn í Laugardals-
höll í gær. Í þeim fylkja stuðningsmenn handboltalandsliðsins sér um „strákana okkar“ sama hvað á dynur.
Svo gæti vel farið að Ólaf-
ur Ingi Skúlason, leikmaður enska
2. deildarfélagsins Brentford,
verði samherji hins sænska
Henriks Larsson næsta sumar.
Ólafur Ingi heldur á morgun til
Svíþjóðar þar sem hann mun
dvelja í þrjá daga við æfingar hjá
úrvalsdeildarliðinu Helsingborg.
Henrik Larsson er samningsbund-
inn liðinu en var fyrir áramót lán-
aður til Manchester United eins
og kunnugt er.
„Hann gat valið um nokkur lið
til að heimsækja en valdi að fara
til Helsinborg,“ sagði Ólafur Garð-
arsson, umboðsmaður Ólafs Inga.
„Stuart Baxter er þjálfari liðsins
og hef ég góða reynslu af honum
frá því að hann þjálfaði Lyn en þá
var Jóhann B. Guðmundsson
samningsbundinn liðinu. Baxter
hringdi í Arsene Wenger sem gaf
Ólafi Inga sín bestu meðmæli.“
Wenger stóð fyrir því að Ólafur
Ingi kom til Arsenal á sínum tíma
en þar lék hann með varaliði
félagsins þar til hann gekk til liðs
við Brentford. Ólafur Ingi hefur
átt við erfið meiðsli að stríða und-
anfarin tvö ár en hann er nýbúinn
að jafna sig á krossbandaslitum í
hné.
Ólafur til reynslu hjá Helsingborg
Evrópumeistarar
Frakka unnu öruggan sjö
marka sigur á Dönum, 30-23, í
seinni æfingaleik þjóðanna
fyrir HM í handbolta. Danir
unnu fyrri leikinn 28-25 en áttu
nú aldrei möguleika gegn
sterku frönsku liðið sem hafði
sex marka forystu í hálfleik.
Líkt og í fyrri leiknum var
íslensk ættaði hornamaður
Dana, Hans Lindberg, marka-
hæstur með fimm mörk eins
og Lasse Boesen. Hjá Frökkum
skoraði Daniel Narcisse níu
mörk og Bertrand Gille var
með sex. Frakkland er eins og
kunnugt er með íslenska
landsliðinu í riðli.
„Ég var að prófa mig áfram
í byrjun og það gerir maður
ekki á móti Frökkum án þess
að vera refsað fyrir. Ég lagði
hins vegar áherslu á að allir
leikmenn liðsins væru búnir að
spila fyrir HM og nú veit ég
betur hvaða möguleika við
höfum í hverri stöðu,“ sagði
Ulrik Wilbek, þjálfari Dana,
eftir leik.
Frakkar bættu
fyrir tapið
Guðjón Valur
Sigurðsson sagði að of mikið
væri gert úr þeim meiðslum
sem hann hefur glímt við
undanfarna daga.
„Ég fékk högg á ökklann og
þurfti að sleppa æfingum í tvo
daga. Ég æfi eins og venjulega
í dag og spila svo um helgina.
Ég er svo sem ekki búinn að
jafna mig fyllilega en ég hef
engar áhyggjur af þessu,“
sagði hann við Fréttablaðið í
gær.
Meiðslin smá-
vægileg