Fréttablaðið - 12.02.2007, Blaðsíða 74

Fréttablaðið - 12.02.2007, Blaðsíða 74
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysin- gar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000. „Útrými ég ekki óvinum mínum ef ég sættist við þá?“ Litháen sjálfstætt ríki Bjarni Daníelsson lætur af störfum sem óperustjóri Íslensku óperunnar í lok þessa starfsárs í júní næstkom- andi. Bjarni tók við starfinu sumarið 1999 og hefur því gegnt því í átta ár í vor. „Mér finnst þetta vera orðið gott. Þetta er tímabundið starf þótt það hafi ekki verið teknar prinsippákvarðanir um hvað tímabilin eigi að vera löng. Mér finnst þetta passa mér ágætlega. Átta ár eru ágætis törn í svona starfi. Ef maður er ekki búinn að því sem maður getur gert á þeim tíma er ekki víst að maður komi því nokkru sinni í verk,“ segir Bjarni, sem verður 58 ára síðar á árinu. Hann er kvæntur Valgerði Gunnarsdóttur, yfirmanni upplýsinga- mála hjá Heilsugæslu höfuðborgar- svæðisins, og eiga þau þrjú uppkomin börn. Bjarni segist ekki vera búinn að gera það upp við sig hvað hann taki sér fyrir hendur næst. „Ég er með ákveðna hluti í sigtinu. Ég fer áreiðanlega að gera eitthvað allt annað. Ef ég byggi í útlöndum væri ég að eltast við að fá vinnu við að reka annað óperuhús en ég ætla að vera á Íslandi.“ Að sögn Bjarna hefur tíminn hjá Íslensku óper- unni verið mjög gefandi og ótrúlega skemmtilegur. „Það er búið að vera skemmtilegt og verðugt viðfangsefni að byggja upp starfsemi Íslensku óper- unnar og ég vona svo sannarlega að það gangi vel í framtíðinni, hver sem tekur við. Það er bjart framundan. Við eigum von á nýju óperuhúsi í Kópavogi eftir fáein ár og í því felast geysilega mikil fyrirheit um vöxt og uppbygg- ingu,“ segir hann. Ástkær eiginmaður minn, tengdasonur, bróðir, mágur og svili, Sæmundur K.B.Gíslason Sæbólsbraut 51, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 14. febrúar kl. 13. Erla Sigvaldadóttir Ingibjörg Halldórsdóttir Jóhannes Lúther Gíslason Erla Hafdís Steingrímsdóttir Elísabet Sigvaldadóttir Guðlaugur Karlsson Sigrún Sigvaldadóttir Kristján G. Jóakimsson Þorsteinn Sigvaldason Kristín Þórmundsdóttir Bogi Sigvaldason Ingunn Pálsdóttir Dagbjört Sigvaldadóttir Ástkær eiginkona mín, móðir og systir, Björg Haraldsdóttir Breiðvangi 18, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju, mánudaginn 12. febrúar kl. 11.00. Jóhann Petersen Katrín Þórhildur Jóhannsdóttir Halldór Þórður Haraldsson Ástbjörg Guðrún Haraldsdóttir Friðrik Haraldsson og aðrir aðstandendur. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Elísabet Pétursdóttir Hraunvangi 3, (áður Þúfubarð 12), Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudag- inn 14. febrúar kl. 13. Eygló Þorláksdóttir Michael Mather Erla Þorláksdóttir Erling Ásgeirsson Sigurður G. Þorláksson Ragnhildur Harðardóttir Petra Þorláksdóttir Örn Arnarsson Ægir Þorláksson Sólveig Stefánsdóttir Særún Þorláksdóttir Guðjón B. Sverrisson Vignir Þorláksson Sigrún Vilhelmsdóttir Anna María Þorláksdóttir Rafn A. Guðjónsson barnabörn og barnabarnabörn. Ásdís Ósk Valsdóttir, lög- giltur fasteignasali, og Haf- dís Rafnsdóttir sölufulltrúi afhentu Guðrúnu Agnars- dóttur, forstjóra Krabba- meinsfélagsins, nýlega framlag upp á annað hundr- að þúsund krónur til barátt- unnar gegn brjóstakrabba- meini. Um var að ræða hluta af söluþóknun októ- bermánaðar 2006 hjá RE/ MAX í Mjóddinni. Ásdís og Hafdís vildu með þessu móti vekja athygli á mikilvægi þess að allar konur færu reglulega í brjóstamyndatöku hjá Leitarstöð Krabbameins- félagsins og einnig vildu þær leggja sitt af mörkum til að styðja forvarnarstarf félagsins. Krabbameinsfélagið fær styrk
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.