Fréttablaðið - 12.02.2007, Side 74
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysin-
gar@frettabladid.is eða hringja í
síma 550 5000.
„Útrými ég ekki óvinum
mínum ef ég sættist við þá?“
Litháen sjálfstætt ríki
Bjarni Daníelsson lætur af störfum
sem óperustjóri Íslensku óperunnar í
lok þessa starfsárs í júní næstkom-
andi.
Bjarni tók við starfinu sumarið 1999
og hefur því gegnt því í átta ár í vor.
„Mér finnst þetta vera orðið gott. Þetta
er tímabundið starf þótt það hafi ekki
verið teknar prinsippákvarðanir um
hvað tímabilin eigi að vera löng. Mér
finnst þetta passa mér ágætlega. Átta
ár eru ágætis törn í svona starfi. Ef
maður er ekki búinn að því sem maður
getur gert á þeim tíma er ekki víst að
maður komi því nokkru sinni í verk,“
segir Bjarni, sem verður 58 ára síðar á
árinu. Hann er kvæntur Valgerði
Gunnarsdóttur, yfirmanni upplýsinga-
mála hjá Heilsugæslu höfuðborgar-
svæðisins, og eiga þau þrjú uppkomin
börn.
Bjarni segist ekki vera búinn að
gera það upp við sig hvað hann taki sér
fyrir hendur næst. „Ég er með ákveðna
hluti í sigtinu. Ég fer áreiðanlega að
gera eitthvað allt annað. Ef ég byggi í
útlöndum væri ég að eltast við að fá
vinnu við að reka annað óperuhús en
ég ætla að vera á Íslandi.“ Að sögn
Bjarna hefur tíminn hjá Íslensku óper-
unni verið mjög gefandi og ótrúlega
skemmtilegur. „Það er búið að vera
skemmtilegt og verðugt viðfangsefni
að byggja upp starfsemi Íslensku óper-
unnar og ég vona svo sannarlega að
það gangi vel í framtíðinni, hver sem
tekur við. Það er bjart framundan. Við
eigum von á nýju óperuhúsi í Kópavogi
eftir fáein ár og í því felast geysilega
mikil fyrirheit um vöxt og uppbygg-
ingu,“ segir hann.
Ástkær eiginmaður minn, tengdasonur,
bróðir, mágur og svili,
Sæmundur K.B.Gíslason
Sæbólsbraut 51, Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju miðvikudaginn
14. febrúar kl. 13.
Erla Sigvaldadóttir
Ingibjörg Halldórsdóttir
Jóhannes Lúther Gíslason Erla Hafdís Steingrímsdóttir
Elísabet Sigvaldadóttir Guðlaugur Karlsson
Sigrún Sigvaldadóttir Kristján G. Jóakimsson
Þorsteinn Sigvaldason Kristín Þórmundsdóttir
Bogi Sigvaldason Ingunn Pálsdóttir
Dagbjört Sigvaldadóttir
Ástkær eiginkona mín, móðir og systir,
Björg Haraldsdóttir
Breiðvangi 18, Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju,
mánudaginn 12. febrúar kl. 11.00.
Jóhann Petersen
Katrín Þórhildur Jóhannsdóttir
Halldór Þórður Haraldsson
Ástbjörg Guðrún Haraldsdóttir
Friðrik Haraldsson
og aðrir aðstandendur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Elísabet Pétursdóttir
Hraunvangi 3, (áður Þúfubarð 12),
Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudag-
inn 14. febrúar kl. 13.
Eygló Þorláksdóttir Michael Mather
Erla Þorláksdóttir Erling Ásgeirsson
Sigurður G. Þorláksson Ragnhildur Harðardóttir
Petra Þorláksdóttir Örn Arnarsson
Ægir Þorláksson Sólveig Stefánsdóttir
Særún Þorláksdóttir Guðjón B. Sverrisson
Vignir Þorláksson Sigrún Vilhelmsdóttir
Anna María Þorláksdóttir Rafn A. Guðjónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ásdís Ósk Valsdóttir, lög-
giltur fasteignasali, og Haf-
dís Rafnsdóttir sölufulltrúi
afhentu Guðrúnu Agnars-
dóttur, forstjóra Krabba-
meinsfélagsins, nýlega
framlag upp á annað hundr-
að þúsund krónur til barátt-
unnar gegn brjóstakrabba-
meini. Um var að ræða
hluta af söluþóknun októ-
bermánaðar 2006 hjá RE/
MAX í Mjóddinni.
Ásdís og Hafdís vildu
með þessu móti vekja
athygli á mikilvægi þess að
allar konur færu reglulega
í brjóstamyndatöku hjá
Leitarstöð Krabbameins-
félagsins og einnig vildu
þær leggja sitt af mörkum
til að styðja forvarnarstarf
félagsins.
Krabbameinsfélagið fær styrk