Fréttablaðið - 05.03.2007, Blaðsíða 12
Það hafði verið heldur rólegt á
götunum í Nørrebro-hverfinu þar
til útsendarar Fréttablaðsins
mættu þangað um tíuleytið um
kvöldið. Um leið og bílnum hafði
verið lagt í lítilli hliðargötu fóru
þó leikar að æsast.
Táragnasfnykur lá yfir götun-
um þegar lögreglan rak mann-
skapinn áfram og reyndi að tvístra
honum. Uppi í háloftunum fylgd-
ist svo lögregluþyrla grannt með
öllu sem fór fram. Þannig gekk á í
um hálfa klukkustund en þá birt-
ust allt í einu tugir lögreglubíla
sem keyrðu í litlum hópum um
þvergötur, stefnulaust að því er
virtist. Að endingu söfnuðust flest-
ir bílarnir saman og mynduðu
þéttan kjarna. Inni á milli bryn-
varinna lögreglubílanna voru sér-
sveitarmenn með alvæpni. Nú
skyldi gerð árás á lýðinn.
Óróaseggirnir hentu nokkrum
flöskum að lögreglumönnum og
sendu þeim tóninn. Þeir virtust þó
alls ekki líklegir til stórræða þetta
kvöldið. Talið er að um 400 manns
hafi safnast saman þetta laugar-
dagskvöld.
Lögreglan réðist til atlögu og
það tók ekki langan tíma að tvístra
ófriðarseggjunum. Þeir hörfuðu
inn í eina hliðargötuna og veltu
hjólum sem urðu á vegi þeirra til
að torvelda lögreglunni eftirför.
Íbúar í húsunum í kring biðu þess
að hópurinn færi hjá og komu svo
út úr húsum sínum til að huga að
eigum sínum.
Stuttu síðar dró til tíðinda
þegar sérsveitarmenn náðu að
króa lítinn hóp ófriðarseggja af. Á
örskotsstundu streymdu tugir sér-
sveitarmanna út úr bílum sínum
og sneru ungmenni í jörðina.
„Sestu niður!” og „Veriði róleg!”
voru meðal kurteisari skipana
sem heyrðust frá lögreglumönn-
unum. Sérsveitarmenn umkringdu
svæðið þar sem handtökurnar
fóru fram en eftir nokkrar mínút-
ur var fjölmiðlafólki leyft að koma
inn á svæðið og fylgjast með
aðgerðum lögreglunnar í návígi.
Þá sást strax að hin handteknu
voru flest barnung, á aldrinum 15-
16 ára. Mesta athygli fjölmiðla-
fólksins vöktu tvær sænskar stelp-
ur, enda létu þær skammaryrðin
dynja á lögreglu og gerðu ekkert
til að hylja andlit sín fyrir mynda-
vélunum.
Komið var fram yfir miðnætti
þegar þessum látum linnti. Lög-
reglunni virtist hafa tekist að
sundra mannskapnum. Tugir
brynvarðra bíla voru þó stöðugt á
ferðinni fram og til baka. Þarna
var maður farinn að sjá út á hvað
þessi stöðugi akstur gekk. Bíl-
arnir voru einfaldlega sífellt á
ferðinni til þess að trufla og
afvegaleiða óróaseggina. Við
Runddelen, á horni Jagtvej og
Nørrebrogade og rétt hjá Ung-
domshúsinu, stóðu brynjaðir lög-
reglumenn vörð. Brynvörðu bíl-
arnir voru svo notaðir gegn allri
hópamyndun, ef ærandi háar sír-
enur nægðu ekki til þess að fólk
hefði sig á brott þá keyrðu bílarn-
ir þétt upp að því og ráku það
burt eins og fé er smalað í
Tungnárrétt.
Áfram var þrammað um göturn-
ar á Nørrebro í leit að möguleg-
um átökum. Þau voru ekki til
staðar og því tóku margir blaða-
menn tal saman og báru saman
bækur sínar. Í samtölum við
danska blaðamenn kom fram að
almenn samstaða virðist vera
meðal Dana um að brjóta niður
þessa uppreisnaröldu sem skap-
ast hefur vegna Ungdómshúss-
ins. Til að mynda sagði einn
blaðamaður sögu af því að hann
hefði verið í réttarsal þegar
úrskurða átti nokkra óeirðaseggi
í gæsluvarðhald. Verjandi þeirra
taldi að nokkrar mínútur væru
komnar fram yfir þær 24 klukku-
stundir sem löggjafinn hefði til
að fara fram á gæsluvarðhalds-
úrskurð. Fulltrúar yfirvalda voru
ekki lengi að leysa úr því álita-
máli, hringdu í dönsku „klukk-
una”, útskýrðu um hvað málið
snerist og fengu fljótt úr því
skorið að þeir væru rétt innan
„leyfilegra” marka.
Spaugilegasta atvik kvöldsins átti
sér einmitt stað þar sem nokkrir
blaðamenn stóðu og ræddu málin.
Þá kom aðvífandi stór jarðýta,
merkt lögreglunni, sem notuð er til
að hreinsa upp eftir skemmdarverk.
Ökumaður ýtunnar var þó hálf
kindarlegur þegar hann parkeraði
fyrir framan hópinn og skrúfaði
niður rúðuna. „Hvar er Þórsgata?“
var spurningin en þangað átti hann
að fara til að hreinsa til.
Eftir þetta atvik var ljóst að
helstu átökin voru að baki. Klukk-
an var að ganga þrjú þegar
útsendarar Fréttablaðsins röltu
heim á leið. Á þeirri leið kom ber-
lega í ljós að venjulegir Kaup-
mannahafnarbúar ætluðu ekki að
láta átökin eyðileggja gott laugar-
dagskvöld. Mestu lætin komu frá
skemmtistað á hliðargötu við Jagt-
vej. Kvöldið áður höfðu tveir bílar
verið brenndir fyrir utan staðinn.
Verð á yfir 1000 prentlausnum!
EINFALT OG FLJÓTLEGT
AÐ KAUPA PRENTVERK
O
D
D
IH
Ö
N
N
U
N
P
07
.0
0.
42
2
Prentsmiðjan Oddi ehf. • Höfðabakka 3-7 • 110 Reykjavík • Sími 515 5000 • Pantaðu eintak á www.oddi.is
Í miðju átaka í Kaupmannahöfn
Óeirðir á götum Kaupmannahafnar héldu áfram á laugardagskvöld. Höskuldur Daði Magnússon og Haraldur Jónasson ljósmyndari urðu
vitni að talsverðum átökum og fylgdust meðal annars með lögreglumönnum ganga vasklega fram í handtökum á ungmennum.