Fréttablaðið - 05.03.2007, Side 32
fréttablaðið fasteignir12 5. MARS 2007
Vesturhluti Hringbrautar hefur
tekið breytingum í tímans rás.
Á vesturhluta Hringbrautar mætast fortíð og nútíð en þar er húsaþyrping sem
er síðustu minjar um Bifreiðastöð
Steindórs Helga Einarssonar, sem
rekin var á árunum 1919-82.
Steindór rak bílaverkstæði á
horni Hringbrautar og Sólvalla-
götu þar sem ein af byggingar-
vöruverslunum Byko hefur haft
aðstöðu undanfarin ár, en starf-
semi hans teygði sig víðar, meðal
annars til Hafnarstrætis og Aust-
urstrætis. Húsin eru þau sömu og
áður, nokkrar einnar hæðar bygg-
ingar með góðri lofthæð og ein
eldri og minni, sem kallaðist Kot
og gegndi mörgum hlutverkum,
þar á meðal sem bílageymsla.
Skammt undan á Seljavegi eru
húsnæði sem Steindór útvegaði
nokkrum starfsmönnum og fjöl-
skyldum þeirra, þar sem húsnæð-
isvandi var mikill í Reykjavík á
þessum tíma. Svæðið hefur tekið
töluverðum breytingum frá því að
Steindór flutti starfsemi sína
þangað í byrjun, enda umhverfis-
kröfur aðrar þá en nú. Hring-
brautin var þá enn malarvegur
sem teygði sig frá Ánanaustum að
Snorrabraut, en stefna yfirvalda
var að láta hann umlykja borgina.
Fjaran á bak við bifreiðaverk-
stæðið var þá notuð sem ösku-
haugar og svipaði lítið til þess úti-
vistarsvæðis sem þar er í dag. Er
þá fátt upptalið.
Í tímans rás hafa verslanir,
veitingastaðir, heilsugæsla, elli-
heimili, sundlaug og skóli risið
þarna allt í kring og átt þátt í að
gera svæðið að þægilegu íbúðar-
hverfi. Enn er verið að vinna í
uppbyggingu svæðisins og er nú
ráðgert að þar muni íbúabyggð
rísa, meðfram Framnesvegi,
Hringbraut og Ánanaustum eða á
reit Bifreiðaverkstæðis Stein-
dórs, sem fellur bæði að nútíma
lífskröfum borgarbúa og fyrra
byggðarmynstri. - rve
Úr bifreiðastöð í íbúðarreit
Bifreiðastöð Steindórs var ein af fyrstu
leigubílastöðvum landsins til að taka
upp leigubílagjald samkvæmt gjald-
mælingu og fyrst til að nota talstöðvar í
leigubílaakstri.
Vesturhluti Hringbrautar hefur tekið miklum breytingum í tímans rás eins og sjá má á þessari mynd.
Starfsmenn Bifreiðaverkstæðis Steindórs unnu margir hverjir á svokallaðri Stein-
dórsstöð, þar sem Ingólfstorg er nú, og Bílaverkstæðinu á horni Sólvallagötu og
Hringbrautar. Steindór var talinn harður húsbóndi en jafnframt góður og tryggur.
Til marks um það útvegaði hann starfsmönnum sínum og fjölskyldum þeirra þak yfir
höfuðið þegar húsnæðisvandi var í Reykkjavík.
A u s t u r v e g i 3 8 – S í m i 4 8 2 4 8 0 0 – w w w . a r b o r g i r . i s
Fr
um
HRAUNTJÖRN
SELFOSSI
Glæsilegt vel staðsett mikið endurnýjað 195
m2 einbýli með innbyggðum bílskúr. 4
svefnherbergi, góðar innréttingar og gólf-
efni.Verð 33,9 millj.
Atli Snær
Sigvarðsson
sölumaður
Anna Dóra
Jónsdóttir
ritari/sölumaður
Þorsteinn
Magnússon
sölumaður
Guðjón Ægir
Sigurjónsson hrl.
Óskar
Sigurðsson hrl.
Sigríður
Sigurbjartardóttir
ritari
LAUFSKÁLAR
HELLU
Virðulegt og velstaðsett 240 fm einbýlishús
að meðtöldum bílskúr. Eignin er talsvert
endurnýjuð og vel skipulögð.
Verð 23,9 millj.
FURUBERG
HAFNARFIRÐI
Stæðilegt einbýli innst í botnlanga með
grónum garði í setberginu. 3-4 svefnher-
bergi. góð stofa og eldhús. Frístandandi bíl-
skúr. Verð 55 millj.
ÞRASTARIMI
SELFOSSI
Vel staðsett 143 m2 endaraðhús í grónu
hverfi. 4 svefnherb, gott skipulag. Lokafrá-
gangur eftir, gott fyrir handlagna.
Verð 22,9 millj.
HELGASTAÐIR
STOKKSEYRI
Mikið endurbyggt fallegt einbýli með mikla
sögu í frábæru umhverfi. Alls 270 m2 þar af
70 m2 nýlegur bílskúr. Eign sem vert er að
skoða Verð 27,9 millj.
BORGARSANDUR
HELLU
Gott velstaðsett, steypt einbýli innst í botn-
langa. 4 svefnherbergi, rúmgóð stofa og
eldhús, stór bílskúr og gróinn garður.
Verð 21,9 millj.
SÓLTÚN
SELFOSSI
Gott fullbúið endaraðhús í Fosslandinu. 4
svefnherbergi, góð gólfefni og gróinn afgirt-
ur garður með skjólveggjum.
Verð 24,8 millj.
LÓURIMI
SELFOSSI
Vandað fullbúið einbýli með góðum bílskúr
alls 182 m2. 4 svefnherbergi, góðar innrétt-
ingar og gólfefni. Garður gróinn með palli og
pott. Verð 30,5 millj.