Fréttablaðið - 05.03.2007, Page 72
Verð 4.190.000kr.
Saab 9-5 Arc // 2.0 turbo sjálfskiptur // 150 hestöfl
Segðu Saab!
Það sést úr mílu fjarlægð þegar Saab er á ferðinni. Því það segir einfaldlega:
Saab. Hvað segir þú? Brostu út að eyrum og segðu Saab! Þá sést að þú ert
manneskja með góðan smekk fyrir vandaðri vöru, gæðum, klassa. Það sést að
þú lætur ekki bjóða þér hvað sem er. Það sést að þú hefur stíl. Já, þú ert
manneskja sem segir Saab! Saab 9-5 Arc er samheiti yfir klassískt útlit, fágun
og smekk, gæði, öryggi og tækni. Hann er rúmgóður, þægilegur, hljómþíður,
lipur, mjúkur, öruggur, með glæsilegri leðurinnréttingu, með mjúkum hemlum,
sjálfskiptur, skemmtilega hannaður, ríkulega búinn, í einu orði sagt: Saab.
Segðu Saab! Saab 9-5 Arc!
Búnaður sem segir Saab:
• Tölvustýrð loftkæld miðstöð (ACC)
• SAHR virk höfuðvörn að framan (Saab Active Head Restraint)
• Tölvustýrð spólvörn
• Stöðugleikakerfi
• Xenon ljósabúnaður sem stillir sig sjálfur
• Aksturstölva
• Saab Sentronic sjálfskipting
Lyfja Lágmúla
Lyfja Smáratorgi
Opið 8-24
alladaga
- Lifið heil
Almenn samstaða hefur náðst um að landsfundur óákveðinna
kjósenda verði annaðhvort hald-
inn eða ekki haldinn áður en fram-
boðsfrestur fyrir næstu alþingis-
kosningar rennur út, samkvæmt
skoðanakönnun sem Fréttablaðið
lét gera og mun birtast í Morgun-
blaðinu eftir nokkra daga.
er lík-
legt að þeir sem eru hlynntir tekj-
um af stóriðju en mótfallnir meng-
un muni leggja til að stefnt verði
að því að byggja raforkuver sem
lengst frá mannabyggðum en stað-
setja verksmiðjur hins vegar í
byggðakjörnum til að stytta leið
starfsmanna í vinnu og lágmarka
þannig mengun frá bifreiðum
þeirra. Í sjávarútvegsmálum ligg-
ur fyrir málamiðlunartillaga um
að Atlantshafinu verði breytt í
hlutafélag í opinberri eigu, Atl-
antshafið ohf. og eignarhaldið
verði hjá þjóðinni en afnotaréttur-
inn hjá þeim sem skilja reglugerð-
ir sjávarútvegsráðuneytisins.
er meiri-
hluti fyrir tillögu um að skilgreina
öll svæði utan Gullbringu- og
Kjósarsýslu sem frístundabyggð
með tilheyrandi þjónustustigi.
Lögð verður áhersla á jafnrétti
kynjanna með því að binda í lög að
konur skuli framvegis hafa sömu
laun fyrir sömu vinnu og karlmenn
hafa áður unnið og skuli konur
jafnan sitja fyrir þeim störfum
sem losna er karlmenn fá stöðu-
hækkun og færast upp um launa-
flokk.
liggur
fyrir tillaga um að tekið verði upp
svonefnt verðbólguálag sem lagt
verði ofan á vísitölubætur af
lánum og renni óskert til íslenskra
banka og lánastofnana til að gera
þeim kleift að standast erlenda
samkeppni án þess að hækka þjón-
ustugjöld sín.
er við að nokkur átök verði
á fundum milli þeirra sem eru
óákveðnir í stuðningi sínum við
stjórnina og þeirra sem eru
óákveðnir í stuðningi við stjórnar-
andstöðuflokka. Hugsanleg er sú
málamiðlun að samþykkt verði að
knýja á um tímabærar og nauð-
synlegar breytingar sem hægt
verði að framkvæma án þess að
breyting verði á daglegu lífi ein-
stakra kjósenda. Mikil þátttaka
var í þessari könnun og svarhlut-
fall óákveðinna rétt um 51%.
Landsfundur
óákveðinna