Tíminn - 02.08.1979, Síða 4
4
Fimmtudagur 2. ágúst 1979.
í spegli tímans
Leikur
að
blöðr
um
Hann Richard litli Chipperfield hefur hressilega
leikfélaga til að hjálpa sér í blöðruleiknum. -Bang!
bang! þarna springa blöðrurnar hver af annarri,
þegar systurnar Rani og Seita og bróðir þeirra
Rajah fara að leika sér með þær. Richard varaði
sig ekki á því, hvað klær og tennur tígrishvolpanna
eru beittar, og þess vegna eyðilögðust allar fallegu
blöðrurnar hans — nema reyndar ein, sem litlu
tigrísdýrin ætluðu þó að ráðast á líka, en Richard
varð á undan þeim og bjargaði gulu blöðrunni sinni.
Tigríshvolparnir eru uppaldir í sirkus, sem
Chipperfield-fjölskyldan starfrækir og Richard
hef ur leikið sér með hvolpunum síðan þeir fæddust,
— en nú er farið að kenna þeim ýmsar kúnstir og þá
verða þeir stundum æstir, svo að leiktíminn er á
enda hjá þessum leikfélögum.
George!! Sjáðu
hér í blaðinu...
Mildred og George hétu hjónin í vin-
sælum breskum sjónvarpsþáttum „Man
Around The House" sem birtust í ísl.
sjónvarpinu í fyrra. Þau voru hús-
eigendurnir, en leigðu ungu fólki uppi á
lofti hjá sér, og var það hálfskrýtinn bú-
skapur þar hjá tveim stúlkum og einum
karlmanni. Þar gekk á ýmsu og var oft
glatt á hjalla. Þarna á myndinni sjáum
við George og Mildred við upptöku á
einum þætti fyrir sjónvarp, og var
George upptekinn við að skoða mynd af
fallegri stúlku í blaðinu Sun, sem birtir
oft myndir af léttklæddum stúlkum. En
það er von að George líti upp úr blaðinu
sínu, þegar stúlkan — sjálf fyrirmyndin
— birtist þarna allt í einu Ijóslifandi hjá
honum. Stúlkan heitirDenise Perry 21 árs
og er upprennandi stjarna i fyrirsætu-
bransanum. Hjónin Mildred og George
eru leikin af bresku leikurunum Brian
Murphy og Yootha Joyce, en þau hafa
leikið svo lengi George og Mildred, að
það er algengt að fólk haldi að það séu
þeirra réttu nöfn og þau séu hjón.
bridge
Spilið hér á eftir var talið vera mesta
sveifluspilið á Norðurlandamötinu 1978.
Islensku unglingarnir náðu bestri nýtingu
út úr spilinu af öllum liðunum i leik við
Svia.
Norður.
S
H A1043
T AKG
L D97632
S/Enginn.
Vestur.
S 85432
H 852
T 8543
L 10
Austur.
S AKDG1076
H KD9
T 9
L 54
Suður.
S 9
H G76
T D10872
L AKG8
Talvan sem var látin gefa spilin hefur
greinilega ekki fylgt neinum jafnaðar-
reglum þegar hún raðaði þessum spilum
niður. bví miður vantar sagnir en Egill
Guðjohnsen og Guðmundúr Páll Arnars-
son sem sátu AV fyrir islenska ul. liðiö
fengu að spila 4 spaða sem að unnust slétt.
Þorlákur Jónsson og Haukur Ingason létu
spaðasagnir Svianna litiö á sig fá og end-
uðu i 6 laufum dobluðum sem að sjálf-
sögðu unnust. Það gerði 1090 i viðbót við
420 eða 17 impa til fslands.
— Þú ert með valdahroka, pabbi...
i 2. 3 M ■
' ■ s P u
7 2 4
H _ ■ •
11 /f IB
L ■ * li ■
L
3080 Krossgáta dagsins
Lárétt
1) Kona. 5) Svif. 7) Stjórna. 9) Tal. 11)
Ofug stafrófsröð. 12) Friður. 13) Egg. 15)
Stafurinn. 16) Afar. 18) Rifur.
Lóðrétt
1) Mann. 2) Nefnd. 3) öfug röð. 4) Tók. 6)
Eldstæði. 8) Matur. 10) Púki. 14) Svik. 15)
Amboö. 17) Tvihljóði.
Ráðning á gátu No. 3079.
Lárétt
1) Hallur. 5) Als. 7) Net. 9) Aur. 11) DI.
12) Rá. 13) Una. 15) Orð 16) Gor. 18)
Snoðar.
Lóðrétt
1) Hendur. 2) Lát. 3) LL 4) USA. 6) Gráð-
ur. 8) Ein 10) Urr. 14) Agn. 15) Orö 17) OO