Tíminn - 22.08.1979, Síða 5
Miðvikudagur 22. ágúst 1979
5
LLiÍHiÍi
Grétar Unnsteinsson skólastjóri skýrir biaðamanni Tlmans frá til-
raunum með lýsingu chrysanthemummóðurplantna og framleiðsiu
græðlinga, sem fram hafa farið I Garðyrkjuskólanum að Reykjum.
Græðlingarnir eru i kassanum fremst á myndinni en i baksýn sést i
móðurplönturnar. Gestum á garðyrkjusýningu skólans gefst kostur
á að skoða tilraupagróðurhúsið, svo sem aðra starfsemi á staðnum.
Sýningin er opin kl. 13—21 næstu daga og kl. 10—21 á laugardag og
sunnudag, sem er siðasti dagur. TimamyndGE.
Samvtnna um ylrækt
við HoUendinga
• rædd í opinberri heimsókn landbúnaðarráðherra
SJ — Undanfarin þrjú ár hafa
farið fram að Garðyrkjuskólan-
um að Reykjum I ölfusi tilraunir
með ræktun chrysanthemum-
græðlinga i gróðurhúsi með sér-
stakri lýsingu og úðavökvun, en
svo sem einhverja kann að reka
minni til sýndu Hollendingar
áhuga á að fá slfka græðlinga
héðan. Árangur af tilraunum
þessum er mjög jákvæður eða
nær 50% meira uppskerumagn á
móðurplöntu en gert var ráð fyrir
i tilboði Hollendinganna. Loka-
skýrsla um tilraunir þessar verð-
ur senn tilbúin. t lok næsta mán-
aðar fer Steingrimur Hermanns-
son landbúnaðarráðherra i opin-
bera heimsókn til Hollands og
verður samvinna islendinga og
Hollendinga um ylrækt væntan-
lega rædd i þeirri ferð.
— Okkur hjónunum var boðið
að koma til Hollands og þáði ég
það ekki sist með tilliti til þessa
máls. Niðurstöður ræktunartil-
raunanna eru jákvæðar og hækk-
andi orkuverð i heiminum tel ég
einnig að auki möguleika okkar á
þessu sviði, sagði Steingrimur.
Húsin tvö, sem risin eru að Vonarlandi. Ljósmyndari Jósep Marinósson
HEIMILI FYRIR VANGEFNA Á
EGILSSTÖÐUM í NOTKUN 1980
SJ — Fyrsti áfangi Vonarlands,
vistheimilis fyrir vangefna á
Egilsstöðum, er nú fokheldur, en
áætlað að honum veröi lokið fyrri
hluta næsta árs. Byggingarfram-
kvæmdir hófust í ágúst 1977. Alls
eiga að risa sex hús á byggingar-
svæði Vonarlands. t fyrsta áfanga
eru tvö hús, annað með kjallara
og ennfremur kjallari þriðja
hússins, þar sem verður kynding
og áhaldageymsla. t fyrsta
áfanga verður einnig gengið frá
nær allri lóðinni og leiktækjum. 1
húsunum tveim er rými fyrir átta
vistmenn og aðstaða fyrir stjórn-
un, æfingar og kennslu. Stærð
hvers húss er 210 fermetrar.
Framkvæmdir við Vonarland
hafa dregist vegna fjárskorts, en
heimilið er byggt fyrir opinbert fé
og verður opinber eign, en Styrkt-
arfélag vangefinna á Austurlandi
átti frumkvæði að byggingunni.
Lionsklúbbarnir á Austurlandi
hafa tekið að sér að styrkja félag-
ið við byggingu litillar yfir-
byggðrar sundlaugar við Vonar-
land. I sumar er fyrirhugað að
grafa fyrir lauginni og steypa upp
grunn hennar. Það verk munu fé-
lagar i Lionsklúbbnum Múla á
Fljótsdalshéraði annast i sjálf-
boðavinnu.
Hönnun vistheimilisins hefur
annast Teiknistofan óðinstorg,
þ.e.a.s. arkitektarnir Vilhjálmur
og Helgi Hjálmarssynir og Vifill
Oddsson, verkfræðingur. Reynir
Vilhjálmsson, landslagsarkitekt,
hefur séð um skipulag lóðar. Hús-
iðjan hf. á Egilsstöðum er bygg-
ingarverktaki vistheimilisins og
sér um alla þætti framkvæmda.
Ýmsir einstaklingar og félaga-
samtök hafa fært vistheimilinu
gjafir og þakkar Styrktarfélag
vangefinna á Austurlandi þær.
Þess má að lokum geta að aðal-
fundur Styrktarfélags vangefinna
á Austurlandi verður haldinn á
Seyðisfirði sunnudaginn 26.
ágúst.
Þorsteinn Sigurðsson talkenn-
ari verður gestur fundarins og
flytur erindi.
22 börn
slösuð-
ust í
júlí
en átta I júlí i
fyrra
GP — Það sem af er árinu
hafa orðið 526 umferðarslys
með meiðslum og er það ivið
færri slys en á sama tima I
fyrra en þá höfðu orðið 564
umferðarslys með meiðsl-
um.
Hins vegar eru nú (þ.e. i
lokjúli) orðin 3771 umferðar-
slys þar sem einungis er um
að ræða eignatjón en voru á
sama tima i fyrra 3643 tals-
ins.
Varðandi slys i júli er það
áberandi hversu margir
gangandi vegfarendur slös-
uðust, 18 af 71 eða 25%. Þá
slösuðust 22 börn, þar af lét
eitt lifið, á móti 8 slösuðum
börnum i júlimánuði i fyrra.
Biskup
vísiterar í
ísafjarð-
arpró-
fastsdæn
ii
Biskup íslands visi-
terar í Isaf jarðarpró-
fastsdæmi dagana 23.
ágúst-27. ágúst sem
hér segir:
Fimmtudaginn 23.
ágúst kl. 15/ Vatns-
f jarðarkirkju.
Föstudaginn 24. ágúst
kl. 14 ögurkirkju.
Laugardaginn 25.
ágúst kl. 14 Eyrar-
kirkju.
Sunnudaginn 26. ágúst
kl. 14 Þingeyrarkirkju.
Sunnudaginn 26. ágúst
kl. 17 Hrafnseyrar-
kirkju.
Mánudaginn 27. ágúst
kl. 14 Sæbólskirkju.
Almenn guðsþjón-
usta verður á öllum
kirkjunum á fyrr-
greindum tímum. Aðr-
ar kirkjur i prófasts-
dæminu hefur biskup
vísiterað nýlega.
d.tHV'SÐ er Portabulk ?
® rloítotio 9/1 AQ _AO Afí mn
Á komandi Kaupstefnu ’79 i Laugardaishöllinni
dagana 24.08.—09.09., munum við ásamt fuiltrúa frá Norsk Hydro sýna
áfyliingu og tæmingu Portabulk stórsekkja, en Portabulk stórsekkir gefa
möguleika á flutningi og geymslu á 500—1000 kg af áburði. Með notkun
þeirra gefst islenskum bændum kostur á ab auðvelda sér áburðardreifingu,
eins og bændur hinna Norðurlandanna gera nú þegar.
ÓlAfUK OÍSIASOM I CO. Ilf.
SUNDABORG 22 -104 REYKJAVlK - SÍMI 84800 - TELEX 2026
&