Tíminn - 31.08.1979, Blaðsíða 8

Tíminn - 31.08.1979, Blaðsíða 8
8 Föstudagur 31. ágúst 1979. Hvað segja félagsmenn H.Í.P. um verkfallsboðun Grafíska sveinafélagsins? Myndir: Tryggvi Texti: AM . Nk. mánudag hafa fé- lagsmenn Grafiska sveinafélagsins boðað til verkfalls. Þetta verkfall gæti án vafa haft mjög víðtækar afleiðingar fyr- ir rekstur dagblaðanna, ef það dregst á langinn. hugsanlega samdrátt i út- gáfu þeirra og ef til vill þrengingar á vinnumark- aði þeirra sem við prent- iðnað starfa. Blaðið ræddi í gær við nokkra fé- lagsmenn HIP í Blaða- prenti og prentsmiðju Morgunblaðsins, og spurði hvernig þeim þættu horfurnar. Sigurður Pétursson, Blaðaprenti „Ég tel ekki vafa á að til verkfalls komi eftir helgina, og mér þykir sú aðgerð vel réttlætanleg að stöðva aðeins blöðin. Þetta hafa atvinnurekendur sjálfir boðið upp á, þar sem þeir i farmanna- verkfallinu vildu halda blöðunum gangandi, en stöðva bókaprent- smiðjurnar. Þótt einhverjir gagnrýni a& Grafiska sveinafélagiö fer i verkfall, meöan aörar stéttir beygja sig vegna efnahagsmál- anna, álit ég stefnu þeirra raun- hæfa, þvi stjórn hinna vinnandi stétta hefur ekki staöiö sig i stykkinu, hvorki stjórnmála- né embættismenn hennar. Ég vona aö HÍP fari aö hugsa sér til hreyfings, þegar samiö hefur veriö viö Grafíska sveinafélag- iö, og sýni atvinnurekendum gott aöhald framvegis. Þaö eiga þeir skiliö.” Þorgeir Jónsson, Blaða prenti „Ég reikna ekki meö aö þetta verkfall geti oröiö langt. Veröur ekki settur á þetta geröardómur innan skamms? En fari samt svo aö þetta dragist, kemur tvl- mælalaust til verkbanns. A end- anum býst ég ekki viö aö þeir beri meira frá boröi en aörir aö- ilar innan verkalýöshreyfingar- innar.” Jón Ásgeir Hreinsson, prentsmiðju Morgunbl. „Viö eigum auövitaö von á aö þaö komi til verkfalls, en hvort okkar félag, HIP, fylgir strax á eftir, þori ég ekki aö fullyröa um, vegna 3%. Ég hef ekki talaö viöstrákana i grafiska félaginu, en mér heyrist hljóöiö þannig i mönnum hérna, aö þeir búist viö löngu verkfalli. Sjálfsagt hafa þeir sitt fram um siöir, þetta' eru haröir menn.” Brynjólfur Guðbjömsson, prentsmiðju Morgunblaðsins „Ég á ekki von á löngu verk- falli og geri þar aö auki ekki ráö fyrir aö gangi saman, þar sem engin tök eru á aö láta þá fá kauphækkun eins og er, — nema þaö sem aörir hafa fengiö. Ann- ars koma vitanlega allir á eftir. Nú veröur aö reyna á þetta, en min spá er sú aö einhvers staöar veröi gripiö i taumana. Annars fer allt á hausinn. Ef þetta dregst eitthvaö kemur verk- bann atvinnurekenda innan tiöar”. Guðmundur Óli Ólason, Blaðaprenti „Kannski er ágætt aö ein- hverjir sýni svolitinn lit i kjara- baráttunni, en þar sem HÍP, og verkalýðshreyfingin almennt, hefur ekki séö ástæöu til þess aö fara i verkfall, finnst mér Iitil ástæöa fyrir þetta eina félag aö fara af staö út af einu prósenti, en þeir fara I byrjun fram á 4%. Þeim voru boöin 3% eins og okk- ur á sinum tima og þótt þeir ekki vildu þiggja þau, eru þeir samt heldur skár launaöir en viö.” Viðar Janus- son, prent- smiðju Morg- unblaðsins „Þetta er allt i deiglunni og mér finnst enn ekki timabært aö ræöa máliö. En launin eru skjót aö veröa á eftir veröbólg- unni og hver þarf ekki hærra kaup nú til dags. Ég býst viö aö prentarar muni brátt fylgja Grafiska sveinafélaginu eftir, fái þeir sinum kröfum fram- gegnt.”

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.