Tíminn - 15.09.1979, Blaðsíða 6
6
Laugardagur 15. september 1979
Útgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar: Þór-
arinn Þórarinsson og Jón Sigurösson. Ritstjórnarfulltrúi:
Oddur Ölafsson. Fréttastjóri: Kjartan Jónasson. Auglýs-
ingastjóri: Steingrimur Gísiason. Ritstjórnarskrifstofur,
framkvæmdastjórn og auglýsingar Siöumúla 15 simi
86300. — Kvöldsimar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl.
20.00: 86387. Verö i lausasölu kr. 180.00. Askriftargjaid kr.
3.500 á mánuöi. Blaöaprent.
Erlent yfirlit
Valið á McHenry
mælist vel fyrir
Hefði annarri stjórn
tekizt betur?
Stjórnarandstaðan hefur beitt hinum öfluga fjöl-
miðlakosti sinum til þess að gera sem minnst úr
þeim árangri, sem núverandi rikisstjórn hefur náð
á fyrsta starfsári sinu. Einkum hefur fjölmiðlum
hennar verið tiðrætt um verðbólgumálin og þeir
bent á, að þar hafi ekki náðst sá árangur, sem
stjórnin stefndi að i upphafi. Hún hafi tekið við 50%
verðbólgu og lýst þvi sem takmarki sinu að koma
henni niður i 30% fyrir árslok 1980. Verðbólgan sé
nú svipuð og þegar rikisstjórnin kom til valda. Hún
hafði m.ö.o. bókstaflega engum árangri náð, hvað
verðbólguna snerti, heldur sé hjakkað i sama far-
inu og fyrir ári.
Það er rétt, að verðbólgan er nú svipuð og hún
var við stjórnarskiptin i fyrra. Það segir hins veg-
ar ekki alla söguna. A þessum tima hafa orðið
stórfelldar verðhækkanir á oliu, sem hafa alveg
breytt efnahagsmyndinni. Af völdum oliuverð-
hækkananna hefur verðbólgan magnazt i flestum
löndun á undangengnu ári, ásamt stórauknu at-
vinnuleysi. Hér hefur tekizt að halda henni ó-
breyttri og tryggja stöðuga atvinnu og nokkurn
veginn óbreyttan kaupmátt launa. Þetta ber ekki
að vanmeta, einkum þó, ef við berum okkur saman
við aðra. Þetta skapar óneitanlega grundvöll til
nýs viðnáms gegn verðbólgunni, þegar vænta má
hagstæðari skilyrða en þeirra, sem verið hafa á
umræddu ári.
í sambandi við þetta er vissulega ekki úr vegi að
athuga, hvort vænta hefði mátt meiri og betri ár-
angurs af annarri rikisstjórn. Hefði t.d. mátt
vænta meiri árangurs, ef hér hefði komið til valda
svokölluð nýsköpunarstjórn, þ.e. stjórn Sjálf-
stæðisflokks, Alþýðubandalags og Alþýðuflokks,
eða svokölluð viðreisnarstjórn, þ.e. stjórn Sjálf-
stæðisflokks og Alþýðuflokks? Þessari spurningu
má hiklaust svara neitandi. Alþýðuflokkur eða Al-
þýðubandalag hefðu ekki reynzt neitt öðru visi i
slikum stjórnum en þeir hafa reynzt i núverandi
rikisstjórn. Og hver væntir svo þess, að Sjálf-
stæðisflokkurinn hefði komið með einhver ný eða
betri úrræði, ef hann hefði verið i stjórn?
Til þess að svara þessari spurningu, þarf ekki
annað en að rifja upp málflutning og vinnubrögð
Sjálfstæðisflokksins þetta undangengna ár, sem
hann hefur verið i stjórnarandstöðu. Málflutning-
ur hans og vinnubrögð hafa einkennzt af stefnu-
leysi, hringlandahætti, yfirboðum og stjórnleysi. í
flokknum vaða uppi alls konar klikur, sem stefna
hver i sina áttina. Á flestan hátt minnir Sjálf-
stæðisflokkurinn á höfuðlausan her. Ef slikur
flokkur hefði átt að hafa forustuna, er ekkert ótvi-
ræðara en að þjóðin hefði haldið enn lengra út i ó-
færuna, sem var komin til sögunnar, þegar forustu
hans lauk á siðastl. ári.
Myndun núverandi stjórnar var skásti mögu-
leikinn, sem var fyrir hendi til myndunar þing-
ræðisstjórnar eftir úrslit siðustu kosninga og
raunar eini möguleikinn. Þrátt fyrir erfiða sam-
búð og vaxandi f járhagslega erfiðleika, hefur tek-
izt að halda i horfinu. En það þarf að gera betur.
Það getur núv. rikisstjórn gert og vafalitið er hún
eina rikisstjórnin, sem getur gert það, undir rikj-
andi kringumstæðum. Þ.Þ.
Carter gat ekki tekizt betur
Donald McHenry
ÞVI haföi veriö spáö, að þaö
yröi ekki auðvelt verk fyrir
Carter forseta aö finna mann,
sem flestir eöa allir gætu sætt
sig viö, til aö gegna sendiherra-
starfi Bandarikjanna hjá Sam-
einuðu þjóöunum eftir hiö sögu-
lega brotthvarf Andrews Young
úr embættinu.
Young haföi oröiö að láta af
embættinu vegna áróöurs Isra-
elsmanna gegn honum. Þaö
var haft á oddinum, aö Young
heföi átt viöræður viö fulltriia
Sjálfstæöishreyfingar Pale-
stínumanna hjá Sameinuöu
þjóöunum, án vitneskju yfir-
manna sinna. 1 raun var þetta
þóalgert aukaatriði, heldur var
meginástæðan sú, aö ísraels-
menn töldu Young ekki nógu
þægan sér.
Viöræður Young og fulltrúa
PLO snerust ekki aö neinu leyti
um viöurkenningu á PLO, held-
ur um tilhögun væntanlegs
fundar i öryggisráöinu, en
Young var formaður þess i
ágústmánuöi slöastl., en þá átti
aö halda umræddan fund. Fund
arefnið var tillaga frá Nígeriu
og fleiri þróunarrikjum, sem fól
i sér óbeina viöurkenningu á
PLO. Bandarikin höföu reynt aö
ná samkomulagi um breyt-
ingartillögu, sem bæöi Israel og
Egj’ptaland höföu hafnaö, og
féllu þau þá frá henni. Næsta
skref þeirra var aö reyna aö fá
tillögunni frestaö. Fulltrúi PLO
hefur málfrelsi i Oryggisráöinu
og var llklegur til aö geta haft
veruieg áhrif á máismeöferöina
þar. Young taldi þvi rétt aö
ræöa viö hann um tilhögun fund-
arins og áleit þaö innan verka-
hrings sins. I raun væri hann
ekki aö gera annaö en þaö, sem
stjórnin haföi lagt fyrir hann,
þ.e. aöreyna aö fá umræddri til-
lögu frestaö á einhvern hátt.
Fyrir atbeina Youngs tókst aö
fá tillögunni frestað, en þessar
viöræöur hans viö fulltrúa PLO
ollu svo miklum úlfaþyt, aö
hann taldi sig gera Carter mest-
an greiöa meö þvi að segja af
sér. Jafnframt lýsti hann yfir
þvi, aö hann ætlaöi aö fara aö
vinna aö framboöi Carters, og
þvi heföi þetta ekki haft nein á-
hrif á vináttu þeirra.
ÞEGAR til kom, reyndist ekki
eins erfitt aö finna eftirmann
Youngs og ætlað var i fyrstu.
Bæöi Young og Vance voru
sammála um, aö varafulltrúi
Bandarikjanna hjá Sameinuöu
þjóöunum, Donald McHenry,
væri heppilegasti maöurinn til
aö taka viö af Young. Carter fór
eftir þessum tillögum þeirra og
hefur vafali'tið gert það meö á-
nægju. McHenry er blökkumaö-
ur eins og Young, en blökku-
menn höföu tekiö þaö óstinnt
upp, aö Young hafði þurft aö
vikja vegna afskipta Gyöinga,
þaö bætti þetta nokkuð, aö
blökkumaöur tók sæti hans.
Young kaus ekki annan eftir-
mann frekar, þvl aö honum og
McHenry haföi ekki aöeins
samiö vel, heldur höföu þeir
veriö sammála um flesta hluti,
m.a. um málefni Israelsmanna
og Araba. Vance taldi þessi
mannaskiptiaöþvileytitil bóta,
aö McHenry þykir eins varfær-
inn i oröum og diplómatiskur og
Young getur verið opinskár og
ógætinn. Ma. vegna gætni
McHenrys haföi Young oftast
kallaö hann prófessorinn.
Arabar, sem höföu verið ó-
ánægöir vegna brottfarar
Youngs, létu sér tilnefningu
McHenry vel Hka, þvi að þeir
vissu um afstööu hans. Israels-
menn létu þó ekki bera á neinni
óánægju. Brottför Youngs haföi
miklu frekar vakið samúö með
PLO en hiö gagnstæða. Fyrir
Gyöinga var þvi viturlegast aö
taka tilnefningu McHenrys vel.
MCHENRY er 42 ára gamall.
Hann þótti snemma góður
námsmaöur. Aö loknu háskóla-
námi i alþjóölegum samskipt-
um, var hann kennari um skeiö,
en gekk 1963 i þjónustu utan-
rikisráðuneytisins og starfaöi i
þeirrideild þess, sem fjallar um
málefni Sameinuöu þjóðanna.
Honum féll ekki aö öllu leyti viö
Kissinger og stefnu hans og
geröist þvi starfsmaöur viö
Friðarstofnun þá, sem kennd er
viö Carnegie (Carnegie Endow-
ment forPeace). Hann starfaði
þar þangaö til Carter kom til
valda 1976, en þá var hann orö-
inn varafulltrúi Bandarikjanna
hjá Sameinuðu þjóðunum. Hann
hefur veriö nánasti samverka-
maöur Youngs um meira en
tveggja ára skeið.
Young fól McHenry einkum
það verkefni aö fást viö málefni
Namibiu og Suður-Afriku. Hann
þótti reynast vel i samningum
viö stjórn Suöur-Afriku, þótt ár-
angurinn yröiekki allltaf mikill.
Þá fékk McHenry þaö hlutverk
aö koma á bættri sambúö
Bandarikjanna og Angóla, og
þykir það starf hans hafa borið
góðan árangur. Hann nýtur
trausts Afrlkumanna engu siöur
en Young geröi
Sumir fréttaskýrendur halda
þvi fram, aö McHenry hafi aö
þvileytiveikaristööuen Young,
aö hann er ekki náinn vinur
Carters og hefur ekki tekið jafn
virkan þátt i mannréttindabar-
áttu blökkumanna. Það getur
hins vegar styrktstööu hans, aö
hann er minna tortryggöur af
hvltum mönnum, sem hafa litiö
mannréttindabaráttu Youngs
misjöfnum augum. Flestir fjöl-
miölar viröast sammála um, aö
Carter heföi ekki getaö valiö
annan æskiiegri mann, eins og á
stóö, til aö taka viö af Young.