Tíminn - 15.09.1979, Síða 8
8
Laugardagur 15. september 1979
9
Laugardagur 15. september 1979
Að kynnast
sjálfum sér
gegnum dýrin
Fjölskylda Michels Klein,
fransksdýralæknis hefur i mörg
ár mátt búa við ljón, tigrisdýr
og önnur óargadýr i garðinum
hjá sér og er sagt, að hann hafi
kunnað þokkalega við það. En
nú hefur Klein losað sig við villi-
dýrin og hefur aðeins hunda og
ketti á heimili sinu, mestu
meinleysisgrey eins og allir
vita. Þetta dýrahald leggur
Klein á sig til þess að kynnast
sjálfum sér betur. Michel hefur
skrifað bók um ljónsungana
sina og hvað hann lærði
af þeim um sitt eigið viliieðli og
nú er kominn Ut bók eftir hann
um heimilisdýrin, þarsem hann
lofar vit og einstaklingseðli
þeirra. Sumar sögurnar eru
bráðskemmtilegar.
Fyrst má geta kattarins, sem
Karolina af Monakó sendi
Michel i örvæntingu, þar sem
hún gat alls ekki fengið hann tii
þess að umgangast fólk og ketti
á eðlilegan hátt. 1 hvert sinn,
sem einhver ókunnugur birtist
lagði hann til atlögu við hann og
reif og tætti i sig. Michel þorði
ekki annað en hafa hann i ein-
angrun fyrst og kom honum
fyrir á skrifstofu sinni. Köttur-
Michel Klein,
franskur
dýralæknir
hefur skrifað
bók um
þetta efni
inn, sem bar nafnið „Sástu
mig?” snuöraði um alla skrif-
stofuna, hoppaði upp i pappirs-
körfuna, á skrifboröið og nudd-
aði höfðinu ástúölega utan i rit-
vélina. „Ég varð strax hrifinn”,
sagði Michel og ég dáðist að
þokka hans og hroka. Þarf ekki
að orðlengja það, að við urðum
vinir.”
Þegar Michel tók „Sástu
mig?” heim i fyrsta skipti, varð
ailt vitlaust, en eftir þrjú skipti
ogótal illindi við hunda, ketti og
heimilisfólkið allt, kom „Sástu
mig? ” sér upp sérstökum um-
gengnisvenjum. Honum var
orðið ljóst, að hann yrði aö þola
þetta fólk. Margur maðurinn
hefúr komist að þvi sama. Og
sérþarfir kattarins voru m.a. á
þá leiðaðsofa uppiá mjóaleggj-
um húsbónda sins, og eigna sér
einn eldhúskrókinn. Engir aðrir
kettir en hann fengu að sofa i
hjónarúminu, en þó virtist í lagi
að „Heimska” litia lægi á divan
við hliðina. „Ég elska þennan
kött eins og hann er og myndi
ekki vilja hafa hann öðru visi,
en hann á erfitt með að laga sig
að umhverfinu eins og margir
kunningjar mfnir”.
Klein segir i bók sinni einnig
sögu af hundinum Rinku, þýsk-
ættuðum. „Hann var fullur
móðurástar og laðaðist fljótt að
konu minni eins og gera mátti
ráð fyrir. Kennsluhæfileikar
Rinku komu i ljós, þegar hún
kynntist litium frænda minum,
en barnið var með þeim ósköp-
um gert að litlum sem engum
matvarðofan iþaðkomið. Einu
sinni, er barniö var i heimsókn
hjá okkur, fann móðir þess það
úti i hundakofa að gæða sér á
kjötbeinum meö Rinku. Var
barnið sælt og glatt og boröaði
með bestu list. Móöirin hrópaði
upp yfir sig og Rinka snjöll sem
Jafnvel eftir stóruppskurði og
aflimun tengjast dýrin mönn-
unum.
fyrr, ýtti stráknum bliðlega út
úr kofanum. Ég stakk upp á, að
frændi minn fengi núsæmilegan
mannamat iskál Rinku á næstu
máltiðum og viti menn. Þarna
átu þau saman hrisgrjón ogkjöt
og virtist sem litli snáðinn hefði
yfirunnið ógeðsitt á mat. Þá var
hann aöeins eins og hálfs árs.
Nú er hann fimm ára gamall,
sterkur strákur og sest að borð-
um eins og aðrir. Ekki veit ég,
hvers vegna hann vildi heldur
borða i hundakofa, þegar hann
var litill, en sennilega hefur
hann fundiö þar frið og afslöpp-
un, sem hann fann ekki við
mannanna borö. Ég læt sálfræð-
ingnum eftir að útskýra þessa
„hundalækningu”.
FI þýddi
-----------------
Blómahátíð
Svo sem minnst hefur verið á
hér i blaðinu verður blómahátfð
að Hótel Loftleiðum siðustu þrjá
daga septembermánaðar i tilefni
af 50 ára afmæli verslunarinnar
Blóma og ávaxta. Megináhersla
verður lögð á islensk blóm, en
sýnd verða þurrkuö blóm,
afskorin, blómaskreytingar,
blómavinna og blómahöldur.
Verslunin Blóm og ávextir
hefur alla tið verið viö Hafnar-
stræti i Reykjavik og voru
stofnendur hennar Ólafia Einars-
dóttir frá Hofi og Asta Jónsdóttir.
Arið 1942 keypti Hendrik
Berndsen verslunina og sá hann
um rekstur hennar allt til dauða-
dags árið 1966, en þá tók fjöl-
skylda hans við verslunar-
rekstrinum ogsá um hann til ára-
móta 1973-1974. Þá kaupir
Hendrik Berndsen, dóttursonur
fyrrverandi eiganda, verslunina.
Hendrik hefur látið gera marg-
vislegar breytingar á versluninni
m.a. var verslunin innréttuð á
nýtis kulegan hátt I byrjun þjóð-
hátiðarárs 1974.
Erik Bering aðstoðar og
sýnir.
Einn þekktasti blómasér-
fræöingur Evrópu, Daninn Erik
Bering aðstoðar við uppsetningu
afmælissýningarinnar ásamt
aðstoöarfólkisinu. Bering erm.a.
þekktur fyrir merkilegt safn af
blómahöldum, sem hann hefur
safnað um árabil. Hefur hann
sýnt blómaskreytingarog blóma-
höldur viða um heim m.a. hjá
Lachavme i Paris, Chelsea Flow-
er Show i London og á sérstakri
sýningu danska utanrfkisráðu-
neytisins I Kaupmannahöfn. Erik
Bering hefur nýverið tekið á móti
Grace prinsessu af Monaco i
Kaupmannahöfn, en hún hefur
boðið honum að koma til Monaco
að sýna á næsta ári.
Blóm og ávextir er meðlimur i
alþjóðlegum samtökum blóma-
sala „Interflora” og gerir það
viöskiptavinum verslunarinnar
mögulegtað senda blóm um allan
heim. A afmælissýningunni mun
forstjóri Interflora Mr. Stampe
Erik Bering sýnlr Grace prinsessu af Monaco blómaskreytingar slnar.
á Hótel Loftleiðuin
vera með sérstaka kynningu.
Fleiri góðir gestir koma á
hátíðina, m.a. sérstakur
hönnuður frá sænska veggplatta-
fyrirtækinu Je. Johnson.
Á Hótel Loftleiðum verður
sérstakur matseðill i sambandi
við Blómahátiðina, en þar veröur
einnig kynning á hausttiskunni
1979 á vegum verslunarinnar
Evu. Þá mun hárgreiöslustofan
Salon VEH sýna hárgreiöslu með
blómaivafi undir stjórn Elsu
Haraldsdóttur.
Blómatorg verður sett upp á
hótelinu. Þar gefst gestum kostur
á að kaupa bæði þurrkuB bföm og
pottaplöntur auk skreytinga.
Blómahátiöin stendur yfir
föstudag, laugardag og sunnu-
dag.
Hendrik Berndsen eigandi Blóma og ávaxta með Islenskar vllltar jurtir f versiun sinni. Timamynd Tryggvi.
Það eru fleiri en blómaskreytingamenn sem hafa yndi af þvi að setja
saman fallegar blómaskreytingar. Hér er gömul mynd af H.C
Andersen i hópi aðdáenda, þar sem hann er að gera blómaskreytingu.
Myndin var tekin 14. júni 1865. H.c. Andersen skrifaöi niður hvernig
blómvendi hann gaf fólki og hvaða blóm hann fékk að gjöf. Erik Bering
hefur settsaman sýningu meðeftirlfkingum af þessum blómvöndum og
skreytingum H.C. Andersen.
Aöalfundur Dýralækningafélags íslands:
Hörð gagnrýni á lyfja-
heildsölur fyrir slæleg
TnTmilhrnífft — tímabundinn skortnr á
V IllIlUUI Ug U lyfjum yfir háannatlmann
GP — Aðalfundur Dýralækninga-
félags íslands var haldinn fyrir
skömmu i Stykkishólmi.
Fyrridaginn voru fagleg mál á
dagskrá, og þar flutti Dr. Kjell
Jónsgard, dyralæknir frá Dýra-
lækningaháskólanum i Osló,
fyrirlestur um mikilvægi þess að
dýralæknar færi skýrslur um
daglegar lækningar og kynnti
nýtt kerfi, þar sem hvert dýr hef-
ur sitt spjald, sem ritað er á
heilsufar og lækningar.
Ennfremur flutti hann fyrir-
lestur um doða i kúm og svaraði
fyrirspurnum þar að lútandi.
Seinni daginn voru svo tekin
fyrir aðalfundarmál, flutt skýrsla
stjórnar, dýralæknarnir Gunnar
Már Gunnarsson og Ragnar
Ragnarsson fluttu erindi og loks
voru gerðar ýmsar samþykktir.
Meðal annars komu fram mót-
mæli viö frumvarp til laga um
lyfjasölu, þar sem gert er ráð
fýrir að lyfjabúðir geti einar selt
dýralyf, og töldu fundarmenn
þetta óframkvæmanlegt, þar sem
bændum yrði viða mjög erfitt að
nálgast nauðsynleg lyf — og þvi
yrði sala á dýralyfjum enn sem
fyrr best kominn I höndum dýra-
lækna sem hafa alla þekkingu til
að meðhöndla þessi lyf.
Ennfremurkom fram gagnrýni á
lyfjaheildsölur, þar sem ávailt
virðist verða tímabundinn skort-
ur á ýmsum nauðsynlegum lyfj-
um og þa aöallega um háanna-
tímann á vorin.
Þá var einnig rætt um nauðsyn
þess að ferðakostnaður dýra-
lækna f vitjanir veröi jafnaðar
svo allir bændur hefðu aðstöðu til
að njóta þjónustu dýralækna án
tillits til búsetu dýralæknisins.
Samþykkt var áskorun til bú-
fjáreigenda á ósýktum býlum,
þar sem þeir eru varaöir við hey-
og fjárkaupum frá bæjum þar
sem riðuveiki hefur veriö staðfest
og garnaveiki orðió vart siðustu
árin, og er þetta mikilvægt nú þar
sem búast má við talsverðum
heyflutningum I haust og vetur.
Að lokum var kosin ný stjórn og
hana skipa: Jón Guðbrandsson
héraðsdýralæknir Selfossi —
formaður, Halldór Runólfsson
Kirkjubæjarklaustri — ritari,
Sigurður örn Hansson Reykjavik
— gjaldkeri.
Úr stjórn ganga: Jón Pétursson
Egilsstöðum Birnir Bjarnason
Höfn og Rögnvaldur Ingólfsson
Búðardal og voru þeim þökkuð
drjúg störf á liðnum árum i þágu
dýralæknastéttarinnar.
Torfæruaksturskeppni
Björgunarsveitin Stakkur heldur sína árlegu
Torfæruaksturskeppni í nágrenni Grindavíkur
sunnudaginn 16. september
Keppnin hefst kl. 2
Komið og sjáið spennandi keppni um leið
og þið styrkið gott málefni
Björgunarsveitin Stakkur
Keflavík