Tíminn - 31.10.1979, Blaðsíða 3

Tíminn - 31.10.1979, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 31. október 1979 3> Stjóm Sildarverksmiðja rikisins: Vinnsla loðnu i bræðslu orð- in hæpin i marsmánuði Stjórn Sildarverksmiðja rlkis- ins hefur sent frá sér ályktun þar sem mótmælt er þeim vinnu- brögðum, sem höfð hafa verið við stjórn á loðnuveiðum, vinnslu og afkomu veiðiskipa og verksmiðja og fer þess eindregið á leit að raunhæf fiskifræðileg og efna- hagsleg könnun verði fram- kvæmd áður en endanleg ákvörð- un verður tekin um stöðvun veiðanna meðan þær eru þjóð- hagslega arðbærar. Muni stjórn verksmiðjanna neyðast til að segja upp 200 manna starfsliði sinu, verði veiðarnar stöðvaðar nú I byrjun nóvember. f ályktuninni segir enn að nú sé sá árstimi, sem gefiö hefur veiðum og vinnslu besta afkomu. Nýting hráefnis er á bilinu 30-32% I afurðum. Með núverandi oliuverði og öðrum vaxandi vinnslukostnaði er hæpið að hægt veröi að vinna loðnu I bræöslum þegar nýting hráefnis er komin niður 120% eins og hún verður I marsmánuði og greiða það hráefnisverð sem veiðiskipin þurfa, nema til komi þvi meiri frysting og hrognataka. Nauðsynlegterað nú þegar fari fram könnun á möguleikum um sölu frystrar loðnu og hrogna vegna hraövaxandi samkeppni Norömanna og Rússa á þeim mörkuöum. Við ákvarðanatöku um há- marksafla verði fullt tillit tekið til þeirrar almennu skoðunar skipstjóra loðnuveiðiskipa að sjaldan hafi veriö meiri loðna á miöunum en nú. Rök fiskifræðinga um að minnka loönuveiöar um helming eru ekki nógu sannfærandi til að réttlæta svo harkalegar aðgerðir. Verði þessi mikli niöurskuröur veiða er ekki annað séð en við sé- um farnir að friða loðnu handa Norðmönnum og öðrum þjóðum, sem sækja munu i stofninn á næstu árum. Hafa skal f huga að á veiðitima- bilinu i fyrra voru veidd um 1.200.000 tonn af loðnu. Þá veiddu Norömenn 150.000 tonn. Nú hafa þeir veitt 125.000 tonn. Þeirra hlutur er þvi oröinn úr 1 milljón tonna. Sjálfir juku Norömenn töl- vert sinn sumar- og haustveiöi- kvóta I Barentshafi og bættu ný- lega við hann 17%. Nú hafa Norö- menn veitt kvótann i Barentshafi og eru að senda leitar- og veiði- skip á Jan Mayen svæðiö. „Jákvætt spor í rétta átt” — segir Vilmundur Gylfason FRI — „Ég tel að þetta sé já- kvætt spor i rétta átt”, sagði Vilmundur Gylfason dóms- málaráðherra i samtali við Timann er við spurðum hann um álitsgerð þá er starfshópur skipaður af fyrrv. dómsm.ráðherra Steingrimi Hermannssyni skilaði til ráðherra en hún fjallaði um sameiningu löggæslu á höfuð- borgarsvæðinu og Timinn hefur þegar greint frá henni. „Ég mun beita mér fyrir þessu máli”, sagði Vilmundur ,,og mér sýnist að það þurfi að hafa frekari samráð við þá aöila sem við þessar nýju aðstæður vinna, en ég held að þetta horfi til mikilla bóta”. 1 stuttu máli, að ef af þessari sameiningu yrði þá mundu Reykjavlk, Hafnarfjörður og Kópavogur, auk þess Kjósar- sýsla, Seltjarnarnes og Bessa- staðahreppur, verða eitt lög- sagnarumdæmi. Helstu rökin sem mæla meö þessari samein- ingu eru að eitt alsherjarlið mundi hafa meiri sveigjanleika til þess að gripa á verkefnum og að draga mundi úr þörfinni á að fjölga lögreglumönnum. Sildarverksmiðjurnar vilja bræöa áfram. „Flokkspólitlskir munaðarleysingjar” með sérframboð? „Vonum að ekki leyn- ist úlfur í sauðagæru meðal vor” JSS — „Satt aö segja er málið á afar viðkvæmu stigi sem stendur, en við eigum það öll sameiginlegt að vera óánægð með þá flokka sem bjóða fram og viljum foröast allar flokks- linur, eins og heitan eldinn. Svo er bara stóra spurningin, hvort einhver með slikar tii- hneigingar leynist meðal okkar...” sagði málsvari hóps af ungu fólki, sem hyggur á sérframboð i komandi kosn- ingum. Sagði hann að þetta væri all- stór hópur ungs fólks á aldrin- um 20-30 ára, einskonar flokkspólitiskir munaðarleys- ingjar. Fundur yrði haldinn i dag, þar sem lögð yröu drög að stefnuskrá og framboðs- lista. Lögö yrði áhersla á betri félagsleg samskipti og betra mannlif og yröi þessi hug- sjónastarfsemi vonandi ekki flokkspólitikinni að bráð. Dr. Finnbogi Guðmundsson og Ivar Guðmundsson aöalræðismaöur á sýningunni i New York. Landsbókavörður hélt fyrirlestur um Snorra í New York MikiII fjöldi kom til sérstakrar kvöldmóttöku og fyrirlestrar sem landsbókavöröur, dr. Finnbogi Guðmundsson, hélt hinn 24. októ- ber i New York, en þar kynnti hann Snorra Sturluson I tilefni af 800 ára afmæli hans. Dr. Finnbogi ræddi um ævi og samtiðSnorra og fylltu áheyrend- ur bæði fundarsal og tvö aöliggj- andi sali i húsakynnum Amerisk- skandinavisku stofnunarinnar viö 73. stræti sem gekkst fyrir sam- komunni. Er talið að þessi sam- koma hafi verið sú viöamesta sem stofnunin hefur gengist fyrir. Komið hafði veriö upp sýningu á ljósmyndum, teikningum og út- skuröi, sem snertu Snorra og heimkynni hans, svo og söguper- sónur. Þá gat að lita margar út- gáfur Eddu og Heimskringlu I sýningarkössum. Voru munirnir fengnir frá Snorra-sýningunni sem hér var haldin l sumar. Mun sýningin verða almenningi opin I tvær vikur. Hvar er nú boðorðið stétt með stétt? 1 prófkjöri Sjálfstæðisflokks- ins I Reykjavik var barist haröast um efstu sex sætin á íistanum, en samkvæmt úrslit- um siöustu þingkosninga eiga þau að vera örugg Athygii hlýtur það að vekja, aö af þeim nfu mönnum, sem liklegastir þóttu til þess að vera efstir og urðu það lika, lentu þeir, sem höfðu starfað innan launþegasamtakanna, i áttunda og niunda sæti og eru því von- lausirum þingmennsku, jafnvei þótt flokkurinn bæti við sig þingsæti. Þetta voru þeir Pétur Sigurðsson og Guðmundur Garðarsson. Sjálfstæöismenn nota oft kjör- orðið stétt með stétt. Þegar tii alvörunnar kemur skipa þeir fúlltrúum launþeganna i neðstu sætin! Furðulegt má vera, ef launafólki þykir þetta ekki lær- dómsrikt. Sjálfstæöisflokkurinn hælir sér oft af þvi, að hann hafi valið konur til þingsætis. Þaö gerðist þó nú að Ragnhildur Helgadóttir hrapaðiúr 3. sæti 17. sæti og nær þvi ekki kosningu miðað við úr- slit þingkosninganna 1978. Athygli vekur það Hka, aö Kannski er þó athy glis verðast af öllu i sambandi við prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavik að formaður fiokksins, Geir Hallgrimsson fékk ekki nema þriðjung atkvæða I fyrsta sæti. 1 hvaða vestrænu lýðræðisiandi öðru en tslandi hefði flokksfor- maður sagt af sér, ef hann hefði hlotiö slikt vantraust. Óskilahestur Brúnn 6 eða 7 vetra, með lófastóran hvitan blett á hægri siðu. Mark: Biti framan bæði eyru. Væntanlegur eigandi sanni eignarrétt sinn og greiði áfallinn kostnað. Gefi sig enginn fram verður hesturinn seldur á óskilafjáruppboði 4. 11. n.k. Hreppstjóri Lundareykjadalshrepps, Borgarfirði. FYRIR BELTAVÉLAR Heil belti og tilheyrandi, rúllur allar gerðir, framhjól, drifhjól, keðjur, beltaplötur, spyrnur o. fl. SÍMI 91-19460

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.