Tíminn - 31.10.1979, Page 13
Mi&vikudagur 31. október 1979
13
Skemmtanir ■ Tilkynningar
Kjell Heggelund
rk .
Liv Költzow
Hér eru nú i heimsókn á vegum
Norræna hússins tveir norskir
rithöfundar, þau LIV KOL
TZOW og KJELL
HEGGELUND, sem bæBi hafa
unniB sér sess i norskum bók-
menntum á siöustu árum, og
munu halda fyrirlestra i
Norræna húsinu.
KJELL HEGGELUND (f. 1932)
er bókmenntafræBingur og sér-
fræBingur i norskum bók-
menntum 18. aldar og er meB-
höfundur aö Norges litteratur-
historie. Hann hefur gefiö út
nokkur ljóöasöfn, m.a.
„Reisekretser” (1966) og ,,I min
tid” (1967). Hann hefur veriB
ritstjóri hins þekkta timarits
„Vinduet” og gefiö út timaritiö
„Basar” ásamt Kjartan Flög-
stad og fleirum. I fyrirlestri sin-
um i Norræna húsinu mun Kjell
Heggelund segja frá hinu skka
skáldi Petter Dass, en aöalverk
hans „Nordlands Trompet”
kom nýlega út i Islenskri
þýBingu dr. Kristjáns Eldjárns.
Fyrirlesturinn nefnist „Petter
Dass og dansk-norsk felle-
slitteratur”, og hefst kl. 20:30
miövikudaginn 31. október.
LIV KOLTZOW (f. 1945) hefur
vakiö mikla athygli i Noregi og
viöar fyrir bækur slnar. Fyrsta
bók hennar smásaganasafniB
„ÖYET I TREET“ kom út
1970, 1972 kom svo út skáldsag-
an ,,Hvem bestemmer over
Björg og Unni?”, skáldsaga i
anda kvennabaráttunnar
(tendensroman). Nýjasta bók
hennar skáldsagan „Historien
om Eli” kom siöar út áriB 1975.
Laugardaginn 3 nóvember kl.
16.00 ætlar LIV KÖLTZOW aB
kynna og lesa úr verkum sinum.
Árnad heilla
Laugardaginn 1. sept. voru
gefin saman i Dómkirkjunni af
séra Hjalta Guömundssyni Ingi-
björg Einarsdóttir og Gylfi
Ólafsson. Heimili þeirra er aö
Háaleitisbraut 49 Reykjavfk.
(Ljósmynd Mats Laugavegi
178.)
Uppboöá ungum hestum á Stóö-
hestastöö aö Litla-Hrauni 10.
nóvember n.k. kl. 15.
A Stóöhestastöö BúnaBar-
félags Islands eru aldir upp
folar, allt frá folaldsaldri til
fimm vetra aldurs. Tilgangur-
inn er aö fá fram góöa undan-
eldishesta. ViB uppeldiö fæst
reynsla á ýmsa eiginleika hvers
hests, t.d. heilbrigöi, þroski og
öll þrif, geöslag og umgengnis-
hæfni, byggingarlag og þar meö
fótagerö, sem oft er lengi aö
mótast. Slöan reynir á tamn-
ingarviöbrögö hestanna viö
þeim og framfarir i tvo vetur.
Aö þessu loknu er svo kveöiö
uppúr meö þaö hvort gripirnir
séu álitlegir til kynbóta og þá
einnig meö tilliti til ætta, sem aö
þeim standa. Þvi er aö vonum
aö margir heltast úr lestinni,
vegna eins eða annars, sem aö
má finna, og raunar væri einfalt
aö þurrka þá alla út, ef ekkert
mætti aö finna.
Þeirfolar.sem vanaöir veröa,
erusiöan seldir á opinberuupp-
boöi aö haustinu. Þar er alltaf
margt um manninn. Nú hafa
borist óvenjumargar fyrir-
spurnir um þá fola, sem selja á I
haust, og vænta má góörar sölu.
Reynslan hefur veriö sú, aö þeir
folar, sem áöurhafa veriö seldir
hafa staöiö sig vel, veriö sterkir
og hörkuduglegir og margir
ágætir reiöhestar.
Folarnir sem nú veröa boönir
til kaups eru þessir:
1. Mjalli, hvitingur, 3ja vetra,
sem notaöur var vegna litatil-
rauna. Er af ætt Sleipnis 249 frá
Uxahryggog hrossum Kristjáns
á Hvoli i Mýrdal. Folinn er
viljalegur og með öllum gangi.
2. Drómi, rauöur, 3ja vetra, frá
Vatnsleysu, Skag. Foreldrarnir
hafa báöir hlotiö góð verölaun
og þarna á aö vera mikiö
vekringsefni á feröinni.
3. Glúmur, glórauöur blesóttur,
5 vetra, frá Kirkjubæ, Þáttar-
sonur. Viljugur, góöur töltari
lyftir vel, nokkur vekurö en
brokkiö er takmarkaö.
4. Háleggur, rauöstjörnóttur, 5
vetra frá Ytradalsgeröi, Eyja-
firöi, sonur Náttfara 776, hins
fræga gæöings. Lipur og þjáll
töltari, gangsamur, vekuröin
gæti veriö botnlaus, eftir byrj-
uninni aö dæma.
5. Bótólfur rauöur, 5 vetra frá
Svignaskaröi, sonarsonur Sörla
653, Sauöárkróki og dóttursonur
Lýsings 409, Voðmúlastööum.
Reistur og stórglæsilegur klár-
hestur meö tölti.
6. Glói, glórauöur, 4ra vetra frá
Svignaskaröi, sonur hins vin-
sæla og ágæta stóöhests Roöa
453, Ytra-Skörðugili. Prúöur og
settur foli meö öllum gangi.
7. Fylkir, rauöur, 4ra vetra frá
Akureyri. Framfallegur, veröur
glæsilegur á töltinu, ef aö likum
lætur, er meö öllum gangi.
Fylkir á sömu móöur og djásniö
hún ör Gests Jónssonar á Akur-
eyri, sem stóö næstefst kynbóta-
hryssna, I eldri flokki, á lands-
móti á Vindheimamelum 1974.
Bókauppboð i
Varðborg á Akureyri
Þriöja bökauppboö Jöhannesar
Öla Sæmundssonar fornböka-
sala veröur i Hötel Varöborg
laugardaginn 3. növember nk.
og hefst kl. 15.30. Þar veröa á
boöstölum um 150 bækur og rit.
Nefna má: Arsrit Fræðaffelags-
ins I-XI, Böndinn á heiöinni,
Búalög 1-3, BUfræöingurinn,
Dvöl I-XV, Einvaldsklærnar i
Hornafiröi, Fagurt er í Fjörö-
um, Forlagaspár Kirós, Fornar
grafir og fræöimenn, Forordn-
ing um garöa- og þúfnaslfettun,
Haraldur Björnsson 1915-1945,
Heima og erlendis (Guöm.
Magn.), Horfnir góöhestar I-n,
IBunn I-XX, Jönsbók hin forna,
Jörö I-IX, Komandi ár I-VI,
Kristrún i Hamravik, Kvæöi
Jóns Thoroddsen (1871), Laxa-
mýrarættin, Minningar og skoö-
anir E.J., Viöeyjar-Njála
(1844), Saga Skagstrendinga og
Skagamanna. Sagnir og þjóö-
hættir (O.O.), Sterkir stofnar,
Yoga, Þingeysk ljöö, Skútu-
staöaætt. Bækurnar eru til sýnis
i fornsölunni Fögruhliö kl. 16-18
virka daga.