Ísafold - 02.07.1913, Side 1
■ 1=1—................
1 Kemur út tvisvar
1 í viku. Yerð árg.
I 4 kr., erlendis 5 kr.
I eða 1^-dollar; horg-
I ist fyrir miðjan júlí
| erlendis fyrirfram.
| Lausasala 5 a. eint.
XXXX. árg.
ísafoldarprentsmiðja.
Ritstjóri: Ólafup Björnsson.
Reykjavík, miðvikudaginn 2 júlí 1913.
Talsími 48.
| Uppsögn (skrifl.) |
| bundin við áramót, |
| erógild nemá kom- |
| in sé til útgefanda [
I fyrir 1. oktbr. og j
| só kaupandi skuld- |
I laus við blaðið. J
|j|jjj 1111111 »in|,"»,n",|nnnn,n||,n||1||n|||||,n||,íi
53. tölublað
Deildarforsetar
alþingis
1913.
Magnús Andrésson
forseti neðri deildar.
Stefán Stefánsson
forseti efri deildar.
Ófriður hafinn milli Balkan-bandaþjóða.
Khöfn, x. júli 1913
Búlgarar hafa byrjað ófrið gegn Orikkjum og
Serbum fyrirvaralaust. Snarpar orustur nálægt Yskub.
Eins og þruma úr heiðskiru lofti koma þessi afar-óvæntu ófriðar-
tíðindi rétt eftir að bandaþjóðir eru búnar að taka miðlunarboðum
Rússakeisara.
Ótrúlegt mjög, að stórveldin láti þessi nýju styrjaldar-ósköp við
gangast — eftir öll stóru orðin þeirra.
I. O. O F. 94749.
Alþýðufól.bókasafn Templaras. 8 kl. 7—9.
Augnlækning ókeypia i Lækjarg. 2 mvd. 2—3
Borgarstjóraskrifstofan opin virka daga 10—3
Bæjarfógetaskrifstofan opin v. d. 10—2 og 4—7
Bæjargjaldkerinn Laugav. 11 kl. 12—8 og 5—7
Eyrna- nef- hálslækn. ók. Pósth.str.láAfid. 2—8
íslandsbanki opinn 10—21/* og ö1/*—7.
B.F.U.M. Lestrar-og skrifstofa 8árd.—10 siðd.
Alm. fundir fid. og sd. 81/* síód.
Landakotskirkja. GuÓsþj. 9 og 6 á helgum.
Landakotsspitali f. sjúkravitj. 11—1.
Landsbankinn 11-21/*, 51/*—61/*. Bankastj. 12-2
Landsbókasafn 12—3 og 5—8. Útlán 1—8.
Landsbúnaðarfólagsskrifstofan opin frá 12—2
Landsfóhirðir 10—2 og 6—6.
Landsskjalasafnið bvern virkan dag kl. 12—2
Landssíminn opinn daglangt (8—9) virka daga
helga daga 10—12 og 4—7.
Lækning ókeypis Þingb.str. 23 þd.ogfsd. 12—1
Náttúrugripasafnið opið l1/*—21/* á sunnud.
Samábyrgð Islands 10—12 og 4—6.
Stjórnarráðsskrifstofurnar opnar 10—4 dagl.
Talsími Reykjavíkur Póstb.3 opinn daglangt
(8—10) virka daga helga daga 10—9.
Tannlækning ókeypis Pósth.str. 14B md. 11—12
V-ífilstaðabælið. Heimsókn artimi 12—1
í»jóðmenjasafnið opið á bverjum degi 12—2.
Nýja Bié
sýnir miðvikudag, fimtudag og föstudag
(virka daga kl. 8‘/2 og S1/^
sunndaga kl. 6, 7, 8 og 9)
Vesalingarni;.
(Hinir ógæfusömu).
Mesta aðsóknarleikrit heimsins.
2. þáttur: Galeiðuþrællinn horgarstjóri.
Langardag 5. júli og næstu kvöld verður
sýndnr 3. þáttur:
Cosette, fósturdóttir galeiðuþrælsins.
Verð aðgöngnmiða sama og áður.
Sigíús Blöndahl
Rödingsmarkt 57, Hamburg 11.
Inn- & útflutningsverzlun.
Ifmboðsverzlun.
Sfmsk. Blöndahl. — Hamburg.
Ofna og eldavélar
selur
Kristján F*orgrímsson.
MinningarsjóðuF
Björns Jónssonar.
Tekið móti gjöfum t skrifstofu og
bókverzlun ísafoldar, pappírsverzlun-
inni Björn Kristjánsson og verzlun
Tóns frá Vaðnesi á Laugavegi.
Nýjar bækur:
Ljósaskifti,
ljóðabálkur um kristnitökuna áíslandi,
eftir Guðmund Guðmundsson skáld.
Verð .90.
Friður á jörðu,
eftir Guðmund Guðmundsson skáld.
2. útgáfa. Verð 0.75.
Hví s'ær þú mig?
Erindi Haralds Níelssonar prófessors
um dularfull fyrirbrigði.
Verð 0.40.
Fást í bókverzlununum.
Þeir kaupendur
ISAFOLDAR
hér í bænum, sem skift hafa um heim-
ili, eru beðnir að láta þess getið, sem
allra fyrst, í afgreiðslu blaðsins, svo
þeir fái blaðið með skilum.
Alþingi.
Þingið sett.
Alþingi var sett í gær. Gengu
þíngmenn fyrst til kirkju, eins og
venja er til, og steig þar í stólinn
síra Kristinn Daníelsson prófastur og
og hafði hann valið sér að texta:
Matth. 12. kap., 31.— 32. v., er svo
hljóðar:
Þess vegna segi eg yður, að sérhver
synd og lastmæli mun verða fyrirgefið
mönnunum, en lastmæli gegn andan
um mun eigi verða fyrirgefið.
Og hver sem mælir orð gegn manns-
ins syni, honum mun verða fyrirgefið,
en hver sem talar gegn heilögum anda,
honum mun eigi verða fyrirgefið, hvorki
í þessum heimi, nó heldur hinum til-
komanda.
Þvinæst söfnuðust þingmenn sarn-
an í neðrideildarsal alþingis. Ráð-
herra las upp venjulegt konungs-bréf
um setning alþ. og bætti því við, að
konungur hefði beðið sig flytja alþingi
kveðju sína og óskir um heillavæn-
legt starf þingsins landi og þjóð til
gagns og góðs. Stóð þá upp Sig.
Stefánsson þingm. ísafjarðar og bað
konung lengi lifa, en þingmenn tóku
undir með níföldu húrrahrópi.
Þá gekk i forsæti aldursforsetinn
Júlíus Havsteen. Lét hann fyrst prófa
kjörbréf nýkosnu þingmannanna og
reyndist ekkert athugavert við þau.
Því næst var kosinn forseti samein.
þings, og hlaut kosningu
Jón Magnússon,
þingm. Vestmanneyinga með 20 atkv.
Ldras H. Bjarnason þingm. Reyk-
víkinga hlaut 18 atkv., en 2 seðlar
auðir.
Hinn nýi forseti lét það vera sitt
fyrsta verk í forsetastól að minnast
þriggja þingmanna, er látist hafa sið-
an á þingi í fyrra, þeirra Björns
jónssonar, Jens Pálssonar og Jóns
Jónssonar frá Múla. Hlýddi þing-
heimur standandi á þau minningar-
orð.
Þessu næst var kosinn varaforseti
i sameinuðu þingi, síra Si°. Steýáns■
son með 20 atkv. Eiríkur Briem
hlaut 7 atkv.,P L.-H. B. 2, en 10
seðlar voru auðir. Skrifarar í samein.
þingi voru kjörnir Jóh. Jóhannesson
með 22 atkv. og Olafur Briern með
19 atkv.
Þá var kosin kjörbréýanefnd og
hlutu kosningu Björn Þorláksson,
Guðjón Guðlaugsson, Jóh. Jóhannes-
son, Kristján Jónsson og Ólafur
Briem, allir með 17—18 atkv.
Loks var Hákon Kristófersson kos-
inn til Efri-deildar með 19 atkv., en
Magnús Kristjánsson hlaut 18.
í neðri deild var forseti kjörinn
Magnús Amlrésson
þingrn. Mýramanna rneð 15 atkv.
Jón Ólafsson hlaut 8, en 2 seðlar
auðir. Fyrri varaforseti varð Jón Ól.
með 15 atkv, og annar varaforseti
dr. Valtýr með 13 atkv. Skrifarar
Eggert Pálsson og Jón Jónsson.
í eýri deild var I jörinn forseti
Stei'án Stefánsson
4. konungkj. með 11 atkv., en Júl.
Havsteen hlnut 2, 1 seðill auður;
varaforseti Guðjón Guðlaugsson með
7 atkv. og 2. varaforseti Einar Jóns-
son þingm. Norðmýlinga með 8 at-
kvæðum. Skrifarar Björn Þorláks-
son og Steingrímur Jónsson.
Var þar með lokið embættism.-
kosningu þingsins.
Skrifstofustjóri þingsins er ráðinn
Halldór Daníelsson yfirdómari.
Flokkaskiftiiig.
Við kosningarnar i gær riðluðust
gömlu flokkarnir Heimastj. og Sjálf-
stæðisfl. algerlega. Aðalkappið var
um forsetakosninguna i sam. þingi.
Þykjast menn vita, að atkvæði þau,
er L. H. B. fekk, hafi vtrið 8 frá
gömlum Sjálfstæðism., en 10 frá
gömlum Heimastj.mönnum, og að
kosningu J. M. staðið einir 5 gamlir
Sjálfst.m. og þá 15 gamlir Heima-
stjórnarm.
Hvað annars verður um flokkaskift-
ingu í þinginu er ókfleift að segja að
svo stöddu. Sagt er, að ráðherra og
ýmsir með honum vilji halda uppi
Sambandsflokknum frá siðasta þingi,
en hversu margir þeir verða, er á
þá sveif hallast, er eigi hægt um
að vita nú. Hitt mun rétt,
að 10 gamlir Heimastjórnarmenn
hafa tekið sig út úr og mynduðu
flokk út af fyrir sig í kosningunum.
Það eru: Eggert Pálsson, Einar Jóns-
son þm.Rang., Eiríkur Briem, Guðm.
Eggerz, Halldór Steinsson, Jón Jóns-
son sagnfr., Jón Ólafsson, Júlíus
Havsteen, Láros H. Bjarnason og
Stefán Stefánsson frá Fagraskógi.
Þessir 10 voru það, er veittu L. H.
B. fylgi til forsetamensku í samein-
uðu þingi.
Þá hafa 7 Sjálfstæðismenn mynd-
að flokk með sér, er heldur saman
um kosningar, og eru það: Benedikt
Sveinsson, Bjarni Jónsson, Björn
Kristjánsson, Hákon Kristófersson,
Kristinn Daníelsson, Skúli Thorodd-
sen og Þorleifur Jónsson. Þeir munu
kosið hafa L. H. B. forseta samein.
þings.
Þá er og á döfinni að stofna
bændaflokk, eins og getið var
hér í blaðinu í vetur, og kvað fæð-
ingarhríðin standa þessa dagana.
Geta þeir þá orðið 4 flokkarnir í
þinginu — auk flokksleysingja. —
Sjálfstæðisfl., Heimastj.fl., Sambands-
fl. og Bændaflokkur.
Flokkar segjum vér, en ætti raun-
ar heldur að vera; flokka-nöýn, með-
an ekki er til annað en ramminn,
meðan steýna þeirra er með öllu
ómörkuð.
Um steýnuna verður að fá greinar-
gerð áður en stofnað er til fylgis eða
andstöðu, hvort heldur er í blöðum
eða meðal alþýðu.
Á nöýnunum ætti enginn að láta
teyma sig.
Minning Björns Jónssonar.
Andvari er um það leyti að koma
út. Flytur hann mynd af Birni
Jónssyni og ítarlega æfisögu hans
eftir Einar Hjörleifsson.
Islandsbanki.
Aðalfnndur hans er haldinn í dag.
Frá þessum mánaðamótum lætur
Emil Schou af bankastjórastörfum.
Siglir hann á Botniu næst og mun
ætla að dveljast um hríð á Norður-
Englandi sér til heilsubótar. Banka-
stjórar verða áfram Sighvatur Bjarna-
son og Tofte, jafnir að völdum, og,
eftir því sem sagan segir, þótt ótrú-
leg sé, verður Kristján Jónsson þriðji
bankastjórinn (sbr. greinina Ótrúleg
ráðstöýun hér í blaðinu).
Otrúleg ráðstöfun.
Sú saga gekk hér í bæ í gær, að
búið væri aði gera Kristján Jónsson
háyfirdómara að þriðja bankastjóra
íslandsbanka fyrst um sinn, setja
hann í stöðu þá, er ráðherra H.
Hafstein hefir haft orlof frá siðast-
liðið ár og hefir enn. Fylgdi það
með, að þessi ráðstöfun hefði gerð
verið af erlendu bankaráðsmönnun-
um 3 og ráðherra, að fornspurðum
íslenzku bankaráðs-mönnunum, unz
þeim í fyrradag hafi verið tilkynt
að svona ætti þetta að vera, svo
væri úrskurðað af meiri hluta banka-
ráðsins. Þessi einkennilega ráðstöf-
un kvað eiga að verða heyrinkunn
á aðalfundi íslandsbanka í dag.
Þessi saga er ein af þeim, sem
allir er heyra, svara til um: Þetta
er ekki satt! Þetta er óhugsandi!
Þetta hlýtur að vera tilbúningur!
Svo ótrúlegt finst hverjum manni
það og frámunalega óviðkunnanlegt,
að æðsti dómari landsins gerist undir-
tyllubankastjóri í prívatbanka, við
hliðina á háyfirdómaraembættinu.
Sú skoðun er með réttu að ryðja
sér æ meira rúms með þjóðinni, að
dómarar alment eigi engin annarleg
störf að, hafa á hendi.
Hvað þá heldur æðsti dómari
landsins! Að hann taki að sér svo
háttað starf, setji hér er um að tefla,
við einstakra manna bankastofnun,
er svo og svo oft þarf að leita dóm-
stólsins, sem hann er æðsti maður
i — það nær ekki neinni átt!