Ísafold - 07.06.1916, Side 1
Kenmr Út tvisvar
[ í viku. Vei?) árir.
5 kr„ erlendis T1/^ ;
! kr. e6a 2 Jollar;bor«-
ist i'yrir miðjan júíi
erlendis fyrirfram.
Lausasala 5 a. eint.
SAFOLD
ísafoldarprentsmiðja.
Ritstjori: Ólafur BjörnssQn.
Talsími nr. 455.
Uppsögn (skrifl.
bundin við áramót,
er ógild nema kom-
in sé til útgefanda
fyrir 1. oktbr. og
só kaupandi skuld-
laus viS blaðiS.
XLIII. árg.
Reykjavík, miðvikudaginn 7. júní 1916.
42. tölublaö
AlþýOofél.bóísAsafn Templaras. 8 fel. 7—8
Borgarstjór^skriístofan opin virka daga 11—8
BtiöjarfógetaRkrifstofan opin v. d. 10—2 og 1 -7
Bsojargjaldkerinn Laufásv. 5 kl. 12—8 og £—7
.íslandsbanki opinn 10—4.
&.F.U.M. Lestrar- og Ðkrifstofa 8 árd.—10 siðd.
Álm. fundir íið. og sd. 81/* síbd.
Landakotskirkja. Guðsþj. 8 og 8 á helgum
JLandakotsspitali f. sjúkravitj. 11—1.
Xjandsbankinn 10—8. Bankastj. 10—12.
.Landsbókasafn 12—8 og 6—8. Útlán 1—8
Landsbúnaðarfólagsskrifstofan opin frá 12—2
Land8fóhirðir 10—2 og 6—6.
.Landsskjalasafnið hvern virkan d&g kl. 32—2
iLandssÍminn opinn daglangt (8—9) virka daga
helga daga 10—12 og 4—7.
lSíáttúrugripa8afnið opið U/s—(Jlla á sunnud.
Bósthúsið opið virka d. 9—7, snnnud. 9—1,
:;Samábyrgð Islands 12—2 og 4—6
íStjórnarráðsskrifstofurnar opnar 10—4 dagl.
Talsími Reykjavikur Pósth.8 opinn daglangt
8—10 virka daga, helga daga 10—9.
Vífilstaðahæliö. Heimsóknartimi 12—1
J*jóðmenjasafniÖ opið sd., þd. fmd. 12—2.
Bakarasveinn.
Duglegur bakari getur fengið
atvinnu um lengri tíma hjá Johan
Sörensen bakarameistara í Vest-
mannaeyjum.
Sími V. E. 45.
Ofriðurinn.
Yfirlit.
Kitchener lávarður.
Svo sem hermt er í símskeytum á
öðrum stað hér i blaðinu, mun Kit-
■ chener lávarður, hermálaráðherra
’Breta, hafa farist á brezka beitiskip-
inu Hampshire fyrir vestan Orkn-
eyjar, í fyrrakvöld.
Horatio Herbert Kitchener var fædd-
ur árið 1850 og því rúmlega hálf-
sjötugur að aldri. Þegar hann var
tvítugur hófst ófriðurinn milli Þjóð-
verja og Frakka (1870—71) og gekk
hann þá í her Frakka sem sjálfboða-
liði. Að þeim ófriði loknum gekk
hann í her Breta og hefir siðan stað-
ið í mörgum stórræðum og gegnt
trúnaðarstörfum fyrir Breta víðsveg-
ar um heim. Þannig var hann urn
nokkurra ára skeið í Gyðingalandi
Og á eynni Cyprus. Árið 1879—
80 var hann brezkur vice-konsúll i
Erzerum, höfuðborginni i Armeníu,
sem Rússar hafa nif fyrir skemstu
tekið af Tyrkjum. Þaðan fór Kit-
chener til Egyptalands til þess að
nmskapa þar herinn. Þótti hann
snemma snillingur í því starfi, enda
hefir það oft komið að góðu haldi.
Árið 1898 vann hann það frægð-
arverk í Egvptalandi að taka borgina
Karthoum herskildi og var hann
fyrir það sæmdur lávarðsnafnbót. —
Árið eftir var hann gerður að aðal-
ráðgjafa og aðstoðarmanni Roberts
lávarðar, sem þá var yfirhershöfðingi
Breta. Skömmu síðar hófst Búa-
striðið og var Kitchener þá sendur
til Suður-Afriku. Þegar þeim ófriði
var lokið (1902) var hann sendurtil
Indlands til þess að umskapa (organi-
sera) herinn þar. Dvaldi hann þar
í landi fram til ársins 1909. Þá
fór hann til Ástraliu og Kanada til
þess að kynna sér hvernig landvörn-
um væri háttað i þeim nýlendum
og gefa leiðbeiningar um j>að, hvernig
þeim skyldi háttað. Arið 19x1 lét
Sir Eldon Gorst af landstjórn Breta
i Egyptalandi og var þá Kitchener
falið það embætti. í júnimánuðí
1914 fékk hann jarlsnafnbót.
Um mánaðarmótin júli—ágúst það
sama ár var hann á leið frá Eng-
landi til Egyptalands. En þá hófst
ófriðurinn mikli. Asquith stjórnar-
formaður Breta sá þá þegar, að rík-
inu mundi meiri hagur að því að
hafa Kitchener heima heldut en í
Egyptalandi og kvaddi hann því
heim. Var þá stofnað í Bretlandi
sérstakt hermálaráðuneyti'og Kitche-
ner gerður að hermálaráðherra.
Það ver eigi lítið starf, sem ráðu-
neytinu var ætlað. Því var ætlað að
senda her til Frakklands og birgja
hann að hergögnum, skapa nýjan
her sjalfboðaliða, æfa hann og sjá
honum fyrir öllum útbúnaði, auka
framleiðslu hergagna í landinu að
sama skapi og herinn óx o. s. frv.
Alt þetta leysti nú Kitchener víta-
laust af hendi um hrið, en svo fór
að bera á því, að herinn skorti stórar
fallbyssur og stórar sprengikdlur. Þá
var stofnað hergagnaráðuneytið og
Lloyd George fengin forysta þess.
Var þá af hermálaráðherranum létt
því starfi að sjá um hergagnagerðina.
En þá kom nýr vandi til sögunnar.
Breta tók að skortá hermenn, eða
þeir sáu fram á það, að sig mundi
skorta menn. Fyrst í stað hafði
Kitchener gengið ágætlega að fá
sjálfboðaliða til þess að ganga í her
inn, en þá komu þeir mennirnir,
sem ötulastir voru. Hinir drógu sig
i hlé. Þá brugðu Bretar við og
komu á hjá sér herskyldu, fyrst fyrir
einhleypa menn og síðan fyrir alla
menn 19—4T árs að aldri.
Þótt þannig tækist nú til, að Kit-
chener gæti hvorki séð'hernum fyrir
nægum hergögnum né fengið nógu
marga sjalfboðaliða til þess að ganga
í berinn, þá verður þó að tefja það
efasamt, að nokkrum einum manni
öðrúm hefði tekist að koma öðru
eins i verk, og hann hefir afkastað.
Má Bretum vera að honum hin
mesta eftirsjá og verður eigi auð-
fundinn maður í sæti hans.
Á víð og dreif.
Hin stærri tiðindin skyggja á hin
minni, og þótt margt sögulegt ger-
ist nú í bardögum á landi, þá sézt
mönnum yfir það, en hugsa mest
um stórtíðindi þau, sem gerst hafa
á sjónum undanfarna daga. Greini-
Hlulafél. ,Vðlundur‘
íslands fullkomnasta trésmiðaverksmiðja og timburverzlun
Reykjavík
hefir venjulega fyrirliggjandi miklar birgðir af sænsku timbri, strikuðum
innihurðum af algengum stærðum og ýmislegum listum.
Smíðar fljótt og vel hurðir og glugga og annað, er að húsabyggingum lýtur.
Kitchener lávarður ferst.
„Hampshire“ sekkur með allri áhöfn
hjá Orkneyjum.
Opinber tilkynning frá brezku utanríkisstjórninni í London.
Whitehall, London, 6. júní.
Flotamálastjórnin tilkynnir opinberlega, að yfir-
flotaforinginn tilkynni það með sárum söknuði, að
H. M. S. „Hampshire", sem var á leið til Rússlands
með Kitchener lávarð og herforingjaráð hans, hafi
farist á tundurdufli, eða ef til vill verið skotið
tundurskeyti, vestur af Orkneyjum í gærkvöldi.
Sjávarrót var mikið og enda þótt alt væri gert sem
unt var til þess að veita skjóta hjálp, þá er það
óttast að lítil von sé til þess að nokkur maður hafi
komist af. ______
„Hampshire1‘ var beitiskip, smiðað árið T905. Það bar ro.850'smá-
lestir og skreið 22^/2 milu á klukkustund. Á því voru éoo skipverjar.
legar fréttir eru enn ókomnar af sjó-
orustunni miklu og verða menn að
biða þeirra enn um hríð. ísafold
mun þó svo fljótt sem kostur er á
skýra lesendum sínum eins glögt
frá henni og unt er.
Hjá Verdun sækja Þjóðverjar enn
á og hefir þeim miðað eitthvað dá-
lítið fram, allra helzt fyrir vestan
borgina. Verður þar hlykkur á her-
línunni og annar austan við Verdun
og liggur því herlinan í boga um-
hverfis borgina. En Þjóðverjar reyna
að þrengja þann boga, og nálgast
borgina úr þrem áttum. í skeyti
því, sem birt er hér i blaðinu í dag,
er hermt frá þvi, að þeir hafi að
mestu náð undir sig Vaux-viginu,
sem er annað nyrsta vígið hjá Ver-
dun, annað en Douaumont.
Nýkomnar fregnir herma það og,
að Austurríkismenn hafi hætt sókn-
inni á hendur ítölum. Þarf það að
vísu eigi að vera annað en stundar-
hlé milli bylja. Þannig hafa Þjóð-
verjar farið að hjá Verdun, að þeir
hafa tekið sér hvíldir með köflum.
En þess ber þó að gæta, að nú hafa
Rússar hafið grimma sókn á hendur
Austurríkismönnum austur i Buko-
wina og handtekið af þeim T3 þús.
manna. Má vera, að Austurríkis-
menn séu þar varbúnir og verði
þess vegna að flytja þangað her frá
suður vígstöðvunum.
Erl. simfregnir
Opinber tilkynning frá brezku
utanríkistjórninni í London.
Meira um
sjóorustuna hjá Jótlandi
Tjón Pjóðverja meira en fyrst
var frá skýrt.
London 4. júní.
Flotamálastjórnin tilkynnir,’ að það
sé of snemt að segja nákvæma sögu
sjóorustunnar, sem hófst síðla dags
3T. maí og lauk r. júní að morgni
fyr en yfirflotaforinginn hefir átt
kost á að ráðgast við foringja þá,
sem tóku þátt í orustunni og sjálfur
gefið skýrslu um viðureignina. En
aðalúrslitin eru þegar kunn.
Orustufloti vor hitti aðalflota
Þjóðverja 3t. maí kl. 3,30 síðd.
Fremstu skip beggja flotanna hófu
þegar ákafa orustu og tóku þátt í
henni bryndrekar (battle crui'sers),
hraðskreið orustuskip (battle ships)
og ýms önnur hjálparskip.
Tjón varð mikið á báðar hliðar,
en þegar aðalfloti Bretlands kom á
vettvang, i skotfæri við þýzka flot-
ann, varð þess eigi langt að bíða, að
Þjóðverjar, sem beðið höfðu mikið
tjón, neyddust til þess að hörfa
undan innfyrir tundurduflagirðingar
sinar. Til þessa hjálpaði þeim mikið
að til þeirra sást ógjörla, og að þoka
var á, og enda þótt aðalfloti Breta
kæmist stundum í skotfæri við óvin-
ina, þá var ómögulegt að halda uppi
stöðugri orustu. Bretar eltu þýzku
skipin, þangað til dimt var orðið.
Um nóttina gerðu brezkir tundur-
bátaspillar árás á þýzku skipin, bar
hún ágætan árangur.
Eftir að Sir fohn Jellicoe hafðí
rekið óvinina til hafnar, snéri hann
aftur til bardagastaðarins og leitaði
þar grandgæfilega að ósjálfbjarga
skipum. Á hádegi næsta dag varð
það augljóst, að ekkert meira mundi
ske, og hélt hann því aftur til aðal-
stöðva sinna 400 mílur á burtu.
Þar var flotinn birgður upp á ný,
og . að kveldi 2. júni var hann til-
búinn að leggja út.
Skipatjóni Breta hefir þegar verið
sagt frá nákvæmlega, og það þarf
engu að bæta við útdrátt hinnar síð-
ustu skýrslu sem flotamálaráðuneyt-
ið gaf út. Það er aftur á móti
erfiðara að segja með vissu um
skipatjón Þjóðverja. Það er víst að
tilkynning sú, sem þeir hafa sent út
frá sér, er gersamlega röng. Það
er ekki unt að svo stöddu að skýra
nákvæmlega frá, en af þeim skýrsl-
um, sem vér þegar höfum meðtekið,
ræður flotamálastjórnin, að það sé
engum vafa undir orpið, |ið tjón
Þjóðverja er meira en tjón Breta,
ekki eingöngu hlutfalislega við stærð
flotanna, heldur og í raun og veru.
Það virðist vera mikil ástæða til að
ætla, að meðal skipa þeirra, sam
Þjóðverjar mistu, hafi verið tvö
orustuskið (Battleships), tveir hryn-
drekar (Dreadnought battle cruisers),
mjög stórir og sterkir, tvö ný létti-
beitiskip (leight cruisers), Wiesbaden
og Elbing, eitt léttibeitiskip af
> Lostck € -flokknum, beitiskipið »Frau-
enlob«, eigi færri en 9 tundurbáta-
spillar og einn kafbátur.
Hornsrif, þar sem orustan var háð,
eru grynningar fram af Blaavandshuk,
vestasta höfðanum á fótlandsskaga.
Frauenlob var léttvopnað beitiskip,
smíðað árið ^900. Það bar 27x5
smálestir og var þvi ætlað að skríða
mest 2x^/2 sjómílu á klukkustund.
Skipin Elbing og Wiesbaden eru
sennilega ný, því að þeirra er ekki
getið í flotaskýrslum þeim, sem
gefnar voru út 1914. Sama máli
er að gegna um Lostck, að þess er
eigi getið í flotaskýrslunum.
Erl. símfregnir.
(frá fréttaritara ísaf. og Morgunbl.)
Kaupmannahöfn, 6. júní.
Yfirherforingi banda-
manna í Grikklandi hefir
lýst því yfir, að Saloniki sé
í umsátursástandi.
I*jóðverjar hafa náð
nokkrum hluta Vaux.
Rússar hafa hafið sóku
og handtekið 13.000 Aust-
urríkismenn.
Lemvigh. hershöfðingi