Tíminn - 07.02.1980, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 7. febrúar 1980
3
MIKIL NÝ-
MYNDUN
HAFÍSS
Samkvæmt iskönnun i eftir-
litsflugi Landhelgisgæzlunnar
um s.l. mánaðamót er hafisjað-
arinn milli Grænlands og Is-
lands eins og sjá má á kortinu.
Jaðarinn er nálægt meðallegu
hans á þessum árstima.
30. janúar var flogið undir
stjórn Siguröar Þ. Arnasonar
skipherra, og var þá jaðarinn
undan norðanverðum Vestfjörð-
um sem hér segir:
Sjómilur
80 norður af Kögri
53 undan Straumnesi
57 undan Deild
• 60 undan Kópanesi
85 undan Bjargtöngum.
Sá Is, sem kannaðaur var,
reyndist vera aö mestum hluta
nýmyndaður is. Meðfram
þeim hluta isjaðarins, sem
kannaður var, reyndist vera um
6-10 sjómílna belti þar, sem
sjórinn var að frjósa.
Iskönnun austar þ. 4. febrúar
undir stjórn Bjarna Helgasonar
skipherra leiddi I ljós, að mikil
nýmyndun á sér þar stað um
þessar mundir og liggur jaðar-
inn frá 68N, 20V til 70N, 12V eða
um það bil. Mjög vont skyggni
var, svo ekki sást hversu langt
var i aðalisinn, en þéttleiki þess,
sem sást var 4 til 6 tiundu eða,
m.ö.o., sjór var hálfþakinn is.
Nokkrir af aðstandenum óperunnar. Tfmamynd G.E.
„La Traviata” í Háskólabíói
FRI — Dagana 12. og 14. febrúar
n.k. mun Sinfóniuhljómsveit Is
lands standa að uppfærslu á óper-
unni ,,La Traviata” eftir
Giuseppe Verdi. Verkið var frum-
sýnt i Feneyjum 1853 en hér á
landi var það fyrst sýnt i Þjóð-
leikhúsinu 1951.
Flutningur óperunnar verður i
formi tónleika, þ.e. leikur, bún-
ingar og leiktjöld verða ekki með,
og þvi þurfa söngvararnir aö tjá
sig algerlega með söng sinum, en
óperan verður flutt á itlösku.
Flytjendur ásamt hljómsveit-
innieru Söngsveitin Filharmónia,
kórstjóri er Marteinn H. Frið-
riksson, undirleikari Agnes Löve
og einsöngvararnir Ólöf K. Harð-
ardóttir (Violetta,) Garðar
Cortes (Alfredo), Guðmundur
Jónsson (Germont), Anna Júl-
ianna Sveinsdóttir (Flora), Elisa-
bet Erlingsdóttir (Annina).Már
Magnússon (Gaston), Halldór
Vilhelmsson (Baron Duphol),
Hjálmar Kjartansson (March-
ese), Kristinn Hallsson (dr. Gren-
vil) og Kristinn Sigmundsson sem
fer meö 4 litil hlutverk. Hljóm-
sveitarstjóri er Bandarikjamað-
urinn Gilbert Lefvine og aðstoö-
armaður hans er Sue Marie Pet-
ers en hún er fastráðin við óper-
una i San Fransisco. Flytjendur
eru alls um 180.
Kelduhverfi:
Silungur og lax í Skjálftavatni
vatnið myndaðist í umbrotum við Kröflu fyrir nokkrum árum
FRI — t umbrotum við Kröflu
fyrir nokkrum árum myndaðist
svonefnt Skjálftavatn I Keldu-
hverfi. Þar hefur undanfarin tvö
ár verið veitt nokkuð af silungi
en hann hefur komið i vatnið án
þess að mannshöndin kæmi þar
nærri.
Að sögn Sigurðar Jónssonar
bónda á Garði þá veiddust i
vatninu um 250 silungar 1978 og
á siðasta ári veiddust þar um
100 silungar og einn 12 punda
iax. Fiskurinn er talinn hafa
gengið i vatnið úr svonefndri
Litlu-á og sagði Siguröur að þar
sem bændur þar um slóðir væru
að reyna að rækta ána upp þá
hefðu verið settar takmarkanir
á veiði silungs I vatninu á sið-
asta ári.
Silungurinn sem veiðst hefur
er fallegur fiskur yfirleitt um
1-2 pund aö stærð en til eru
dæmi um allt aö 6 punda fisk.
Stúdentaráð
Háskóla íslands:
íslendingar taki
ekki þátt i
Ólympíuleikunum
Stúdentaráð Háskóla Islands
mótmælir harðlega fyrirhuguð-
um Olympiuleikum i Moskvu
1980. Telur ráðiö óeðlilegt að leik-
ar þessir skuli haldnir i riki þar
sem mannréttindi eru fótum troð-
in. Striðir slikt á móti grundvall-
arhugsjón ólympiuleikanna.
Endurtökum ekki skyssuna frá
1936 og með þátttöku i heims-
meistarakeppninni 1977 i Argen-
tinu.
Ráðið leggur þvi til að Islend-
ingar hætti þegar i stað við þátt-
töku i leikjum þessum. Með sliku
getum við sýnt öðrum frelsisunn-
andi þjóðum gott fordæmi, og lagt
mannréttindabaráttu um allan
heim gott liö.
Margeir öruggur
sigurvegari
— á skákþingi
Reykjavíkur
FRI — Margeir Pétursson er
öruggur sigurvegari á Skákþingi
Reykjavikur þrátt fyrir að einni
umferð sé ólokið. Hann hefur nú 9
vinninga, en i 2-7. sæti meö 7,5
vinninga eru þeir Björn, Sævar,
Elvar, Jóhann, Jónas og Leifur,
en þeir eiga enga möguleika á þvi
að ná Margeiri þótt hann tapi siö-
ustu skákinni.
Þessi úrslit lágu fyrir er skák
Björr.s Þorsteinssonar og Elvars
Guðmundssonar lauk i fyrrakvöld
með jafntefli eftir 85 leiki. Ef
Björn hefði unniö þá hefði hann
enn átt möguleika.
Þjófar gripnir
við tvö apótek
FRI —A sunnudagskvöldiö og um
nóttina var tvisvar reynt að stela
lyfjum úr apótekum I Reykjavik.
Tveir menn brutust inn I Garðs
apótek og voru komnir i pillu-
geymsluna er lögreglan greip þá
glóðvolga.
Annar þjófur reyndi aö brjótast
inn i Breiðholts apótek en honum
hafði orðiö litiö ágengt er lögregl-
an kom á staðinn og fjarlægöi
hann.
Aö öðru leyti þá var helgin róleg
hjá RLR.
S-Æzf' r,
I DAG OG A MORGUN KL. 14-18
Dómhildur Sigfúsdóttir hússtjórnar
kennari kynnir meðal annars ýmsa
rétti úr gráðuosti o.fl.
4— 1 ■ ) ....>■
Osta- og smjörbúðin - Snorrabraut 54
---) ....i < c