Tíminn - 07.02.1980, Blaðsíða 6
6
Fimmtudagur 7. febrúar 1980
r
(Jtgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjúri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson, Jón Helgason og Jón Sigurösson. Ritstjórnarfull-
trúi: Oddur ólafsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason.
Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og auglýsingar SIÖu-
múla 15. Simi 86300. — Kvöldsfmar blaöamanna: 86562, 86495.
Eftir kl. 20.00: 86387. Verö I lausasölu kr. 230.- Askriftargjald kr.
4.500 á mánuöi.
Blaöaprent.^y
Klýfur Geir Sjálf-
stæðisflokkinn?
Það verður ekki annað sagt en að viðbrögð mið-
stjórnar Sjálfstæðisflokksins við stjórnarmyndun
Gunnars Thoroddsen séu hin ólíklegustu.
Ef allt væri með felldu, hefði verið eðlilegast að
miðstjórnin biði átekta með allar yfirlýsingar, unz
fyrir lægi, hvort stórnarmyndun Gunnars Thor-
oddsen tækist og hver málefnasamningur hinnar
nýju stjórnar yrði, ef hún kæmist á laggirnar. Þá
fyrst var hægt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að taka
málefnalega afstöðu.
Eins og ástatt hefur verið á Alþingi og eins og
ástatt er i efnahagsmálum þjóðarinnar, er það eitt
réttlætanlegt, að flokkarnir taki nú málefnalega
afstöðu, en láti persónuleg sjónarmið vikja. Sam-
kvæmt þvi ætti það ekki að skipta Sjálfstæðisflokk-
inn neinu máli, hvort heldur það væri formaður
flokksins eða varaformaður, sem myndaði stjórn,
heldur hitt, að sá þeirra yrði fyrir valinu, sem gæti
náð betri árangri til að koma meirihlutastjórn á
fót.
Eins og málin standa nú, er bersýnilegt, að
Gunnar Thoroddsen er færari en Geir Hallgrims-
son til að gegna þessu hlutverki. Að fenginni þess-
ari vitneskju, ætti afstaða Sjálfstæðisflokksins að
fara eftir þvi einu, hvort flokkurinn getur fylgt
þeim málefnagrundvelli, sem hin nýja rikisstjórn
byggir á, ef samkomulag næst um myndun henn-
ar. Ef Sjálfstæðisflokkurinn getur sætt sig við mál-
efnagrundvöllinn, væri eðlilegt að hann gengi
óskiptur til liðs við stjórnina. Yrði málefnagrund-
völlurinn honum ógeðfelldur, væri andstaða hans
gegn stjórninni skiljanleg.
Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins tekur hins vegar
ákveðna afstöðu áður en hún hefur séð eða kynnt
sér málefnagrundvöllinn. Afstaða hennar fer þvi
ekki neitteftir málefnum, heldur byggist eingöngu
á þeim persónulegu ástæðum, að það er Gunnar en
ekki Geir, sem myndar stjórnina. Siðan kemur
Geir Hallgrimsson fram i sjónvarpi og boðar, að
Gunnar og fylgismenn eigi ekki lengur heima i
Sjálfstæðisflokknum og að flokkurinn muni halda
uppi harðri andstöðu gegn hinni væntanlegu rikis-
stjórn, án þess að hann hafi nokkuð kynnt sér hver
stefna hennar muni verða.
Hér er bersýnilega af hálfu Geirs Hallgrims-
sonar og helztu stuðningsmanna hans stefnt að
klofningi Sjálfstæðisflokksins af persónulegum
ástæðum en ekki málefnalegum. Persónulegur
metnaður Geirs Hallgrimssonar er settur i önd-
vegi. Flokkurinn skal klofinn, ef annar Sjálf-
stæðisflokksmaður en Geir Hallgrimsson verður
forsætisráðherra. í stað þess að reyna að halda
flokknum saman og efla einingu hans að nýju, er
klofningur settur á oddinn. Af þessu virðist mega
álykta, að Geir Hallgrimsson og stuðningsmenn
hans treysti sér ekki til að halda forustunni i
flokknum, nema hann verði klofinn.
Það verður að teljast næsta óliklegt, að óbreyttir
liðsmenn Sjálfstæðisflokksins verði ánægðir með
þessi vinnubrögð. Það verður einnig að telja
ósennilegt, að þeim finnist rétt eins og nú er ástatt
i þjóðmálum, að boða harða andstöðu gegn stjórn
Gunnars Thoroddsen áður en hún fær tækifæri til
að reyna sig. Þ.Þ.
Erlent yfirlit
Hættir Kennedy, tapi
hann í New Hampshire?
Fjárskortur er orðinn honum fjötur um fót
Þannig kcmur skopteiknara The Christian Science Monitor
nú kosningabarátta Kennedys fyrir sjónir.
EFTIR aö Edward Kennedy
hélt hina svonefndu stóru ræöu
sina i Georgetown University i
Washington, voru fréttaskýr-
endur ekki á einu máli. Sumir
þeirra töldu, aö hann væri aö
hefja stórsókn gegn Carter
meö nýju frumkvæöi af sinni
hálfu. Aörir töldu, aö hann væri
aö undirbúa uppgjöf sina, ef
hann tapaöi i New Hampshire
26. þ.m., en hann ætlaöi aö gera
þaö með fána viö hún, sem hann
hygðist bera fram til sigurs i
forsetakosningunum 1984.
Eins og áður hefur verið sagt
frá, beið Kennedy mikinn
ósigur við forvalið i Iowa 21.
janúar siöastl. Ymsar sam-
verkandi ástæður voru taldar
valda þvi. Fyrst og fremst voru
það þó atburðirnir i íran og
Afganistan, sem hafa aukið
vinsældir Carters forseta,
a.m.k. i bili. En þvi til viðbótar
haföi framkoma hans i kosn-
ingabaráttunni fremur veikt
hann en styrkt.
t fyrsta lagi fundu menn hon-
um það til foráttu, aö hann hefði
ekki glögga stefnu og mörkin
væru málefnalega óskýr milli
hans og Carters. Raunar hefði
hann verið sammála Carter
um flest mál fram að þessu,
t.d. á sviði utanrikismála.
1 öðru lagi stóð Kennedy sig
ekki eins vel og menn áttu von
á, þegar hann þurfti að svara
óvæntum spurningum blaða-
manna og kjósenda. Honum
vafðist stundum tunga um tönn
og svörin uröu ekki alltaf nógu
ljós. Menn höfðu átt von á öðru
af bróður Johns Kennedy og
Roberts Kennedy.
t þriðja lagi reyndist bil-
slysið i Chappaquiddick honum
sá draugur, sem hann réði ekki
við. Andstæðingum hans hefur
tekizt að sá þeirri tortryggni,
að hann segi ekki allan sann-
leikann um þann atburð, þótt
hann haldi fast við þann fram-
burð sinn.
RÚMRI viku eftir ósigurinn i
Iowa eða 28. janúar hélt
Kennedy ræöu , sem hafði
verið auglýst mikið fyrir fram.
Aheyrendur hans voru
stúdentar við Georgetown-há-
skólann, en auk þess var henni
sjónvarpað og hljóðvarpaö.
Ræðan var vel samin og vel
flutt. Kennedy sýndi á ný, að
hann er einn af snjöllustu
ræðumönnum Bandarikjanna.
Tilgangur ræðunnar var
bersýnilega sá að ná frum-
kvæði i kosningabaráttunni.
Kennedy lýsti sig arftaka
þeirrar frjálslyndu umbóta-
stefnu, sem Franklin
Roosevelt og John Kennedy
höfðu fylgt. Carter væri hins
vegar i raun og veru ihalds-
samur repúblikani, þótt hann
teldi sig demókrata. I reynd
hefði repúblikani stjórnað i
Hvitahúsinu undanfarin þrjú
ár. Oll stefna Carters i innan-
landsmálum bæri einkenni
þess.
Kennedy deildi ekki siður á
Carter fyrir stefnu hans i utan-
rikismálum. Hún hefði ekki
verið nógu einbeitt. Hann gerði
gislamálið i Teheran að sér-
stöku umtalsefni. Rangt væri
að hóta trönum efnahagsþving-
unum, þvi aö það myndi aöeins
færa þá nær Rússum. Rétt væri
að fallast á kröfu þeirra um
rannsókn á mannréttindabrot-
um keisarans. Bandarikin ættu
að beita sér fyrir þvi, að Sam-
einuðu þjóðirnar settu slika
nefnd á laggirnar, en hún tæki
þvi aðeins til starfa, að gislun-
um heföi verið sleppt.
Rétt er að geta þess, að áður
en Kennedy flutti þessa ræðu
sina, hafði hann rætt við Kurt
Waldheim, framkvæmdastjóra
Sameinuðu þjóðanna.
Kennedy taldi liklegt, að
Rússar hefðu hikað við að ráð-
ast inn i Afganistan, ef Carter
heföi sýnt meiri einbeitni. Hann
hvatti til meiri einbeitni i skipt-
um við Rússa, en lagði þó
áherzlu á að ekki mætti loka öll-
um leiðum til spennuslökunar
siðar.
Þrátt fyrir þessa stóru ræðu
Kennedys, halda ýmsir frétta-
skýrendur þvi fram, að ekki sé
eins mikill munur á stefnu hans
og Carters og hann vill vera
láta. Hér sé meira um áherzlu-
mun að ræða en efnismun. Það
gerir lika aðstöðu Kennedys
erfiðari, að hann lýsir fyrst
verulegum skoðanaágreiningi
þeirra eftir að hann hefur lýst
yfir framboði sinu.
KENNEDY hefur siðustu
dagana dvalist i Maine og New
Hampshire. Eins konar for-
kosning fer fram i Maine 10.
þ.m., og prófkjör i New
Hampshire 26. þ.m. Ef
Kennedy tapar i þessum rikj-
um, verður það mikill hnekkir
fyrir hann, þvi að öflugasta
fylgi hans á að vera á þessum
slóðum.
Þá er fjárskortur farinn að
há Kennedy. Þótt eignir hans
séu taldar nema 100 milljónum
dollara, má hann ekki nota
nema 50 þús. dollara af þeim
samkvæmt nýrri bandariskri
löggjöf. Samkvæmt henni geta
forsetaefni fengið rikisstyrk,
en þá er það takmarkað, hvað
mikið fé þeir megi nota úr
eigin vasa og frá bandamönnum
sinum. Kennedy hefur þegið
þennan styrk og er þegar búinn
að fá um eina milljón dollara
frá rikinu. Auk þess hefur hon-
um safnast 3 1/2 milljón doll-
ara i frjálsum framlögum.
Næstum allt þetta mun nú
uppurið. A vegum Kennedys er
búið að stofna um 100 kosninga-
skrifstofur viðs vegar um
■ landið. A skrifstofunni i
Washington einni eru um 70
fastir starfsmenn og 40
erindrekar.
Þá eykur það á raunir
Kennedys, aö verið er að gera i
Hollywood kvikmynd um bil-
slysið i Chappaquiddick og er
ekki ósennilegt, að fariö verði
að s'ýna hana fyrir forseta-
kosningarnar. Þ.Þ.