Tíminn - 07.02.1980, Side 16
Gagnkvæmt
tryggingafétag
Auglýsingadeild
'Tímans.
118300
FIDELITY
HLJÓMFLUTNINGSTÆKI
Pantiö myndalista.
Sendum í póstkröfu.
SJÓNVAL
Myndin er af sjógönguseiöum. Hugsanlegt þykir aö laxarækt i sjó veröi
að nýrri búgrein.
Hugsanlegt að
laxarækt í sjó
verði ný búgrein
— Tungulax hf. leitar nú aö
hentugum stað fyrir tilraunir
á þessu sviði í stórum stíl
FRI — „Viö höfum kannað vlöa
hvort viö getum ekki fengiö aö-
stööu til tilrauna á laxeldi” sagöi
Eyjólfur Konráö Jónsson I sam-
tali viöTImannenhannereinn af
eigendum Tungulax hf. Meðal
annars höfum viö athugaö aö-
stööu aö Lóni i Kelduhverfi en
Fiskifélagiö hefur þar veriö meö
tilraunir á þessu sviöi þar i smá-
um stll. Ef af þvl veröur aö til-
raunir okkar veröa aö Lóni þá
mundi þaö vera I samvinnu viö
Fiskifélagiö.
„Viö höfum átt viöræður við
Björn Guömundsson aö Lóni I
Kelduhverfi en hann er forsvars-
maöur veiöifélagsins þar en öll
þessi mál eru nú á athugunar-
stigi. ”
Yröu tilraunirnar ekki f miklu
stærri mæli en nú er hjá Fiski-
félaginu?
„JU, viö ætlum okkur aö reyna
þaö. Viö eigum mikiö magn af
gönguseiöum núna sem okkur
langaraösetjal bæöinætursvo og
á hafbeit. í sambandi viö hafbeit
þá er kenningin núna sU aö þaö
þurfi mikiö magn af seiöum og
þaö sé lyktin sem laxinn leitar á.
Því þurfi laxinn aö vera bæöi I
búrum og netum en siöan leiti sá
fiskur sem sleppt er I sjóinn aftur
aö búrunum og netunum.
Þetta hef ur veriö basl h já okkur
eins og öörum en viö höfum mik-
inn hug á aö gera þetta I stórum
stll” sagöi Eyjólfur og okkur hef-
ur I þvl sambandi dottíö 1 hug
kannski allt upp I 30-40 þús. seiöi
en viö eigum núna um 100 þús.
seiöi og langar aö nota verulegan
hluta af þvl til aö gera þessa til-
raun.’ ’
Ef tilraunir gengju vel munduö
þiö þá fara út i laxaræktun i stór-
um stfl?
Þá mundu nU allir gera þaö, en
viö erum aö vona aö einhverjum
takist að brjótast I gegn.
Ef þaö er rétt sem haldið er
fram aö hugsanlega sé hægt aö ná
25-30% endurheimtuhlutfalli þá
býöur þessi starfsemi upp á mikla
möguleika, gæti jafnvel oröiö aö
nýrri búgrein. En áætlað er aö
þetta beri sig meö 15% endur-
heimtuhlutfalli, og ef hlutfalliö
veröur betra þá held ég aö allir
sem tækifæri hafa til færi Ut i
þetta.”
Eru til nægilega stórir markaö-
ir fyrir afuröirnar?
„Tvimælalaust. Þaö er svo lltíö
magn af þessari afurö sem fram-
leitt er nU. Kyrrahafslaxinn er
eitthvaö 6-700 þús tonn en At-
lantshafslaxinn er um 2-30 þús.
tonn á ári og hann er mikið betri
vara en Kyrrahafsfiskurinn. Svo
aö ég tel markaði alveg ótæm-
andi” sagöi Eyjólfur, „þaö er
bara aö vinna þá.”
„En sumir telja aö betra sé aö
vinna markaöi ef hægt er aö bjóöa
upp á mikið magn I einu. Til
dæmis þá nenna stórir verslunar-
hringir ekki aö auglýsa upp vöru
ef aöeins er hægt aöbjóöa hana I
litlum mæli. „Hinsvegar þá eru
málin nU á athugunarstigi eins og
ég gat um áöur og þetta eru aö-
eins hugleiöingar. En fullur vilji
er á aö reyna þetta.”
Aö sögn Björns Guömundsson-
ar I Lóni hafa samningaviðræöur
milli Veiöifélagsins og Tungulax
hf. veriö f gangi en engar endan-
lgar ákvarðanir hafa verið tekn-
ar. Aöspuröur kvaö hann að ef af
samningum yröi þá gæti leigu-
samningur Tungulax náö til allt
aö 15 ára. Björn kvaöst vera
bjartsýnná aö af þessum tilraun-
um yröi.
5 bændur I Kelduhverfi eru aöil-
ar aö veiöifélaginu.
Afrennslisvatn frá
álverinu notað til
flAlXn Ráðagerðir uppi um hafbeit
bClUdvlUlð nærri Straumsvíkinni
AM — Athyglisverö tilraun er
nú gerö suöur i Straumsvlk, en
þar hafa þeir Magnús Björns-
son, arkitekt og Róbert Péturs-
son, arkitekt, hafiö seiöaeldi
með notkun afrennslisvatns frá
álverinu. Er hér um aö ræöa
vatn sem kemur undan hrauni
og er mjög hreint og gott, en
hefur hitnað við notkun á riölunr
i álverinu.
MagnUs Björnsson sagði okk-
ur I gær aö hugmyndin væri að
seljaseiöinsem gönguseiöi og ef
vel teksttilað hefja strandkvla-
eldi með seiöi á landi, sem alin
eru I sjó og kanna einnig mögu-
leika á hafbeit I Straumsvik eöa
I grendinni.
Afrennslisvatniö mun örva
vöxt seiðanna, vegna hitans og
hafa fariö fram á þvl marghátt-
aðar efnafræöilegar rannsóknir,
sem gefiö hafa góöar niöurstöö-
ur. Magnús sagöi aö þó mundi
ekki veröa fjárfest áfram fyrr
en tílraun heföi fariö fram, en
hún stendur nU yfir, sem fyrr er
sagt. Er komið upp hUs undir
tilraunirnar og eldisker, og voru
fyrstu seiöin látin i kerin fyrir
einum mánuöi. Hafa þau dafnaö
vel til þessa.
t Það var I mal sl. sem þéir
félagar sóttu um nauösynleg
leyfi til þessarar tilraunar til
ráöuneytis og Hafnarfjaröar-
bæjar og hafa þeir unnið sleitu-
laust aö málinu slöan. Við
spuröum Magnús um skilyrði til
hafbeitar þar syöra og sagöi
hann aö ala þyrfti seiöin i sjó um
hriö, áöur en þau eru látin I sjó,
en nokkur vandi veröur aö ná
sjó upp viöStraumsvIk, þvl bæöi
er hann mjög blandaöur fersk-
vatni og brimsamt viö strönd-
ina.
Skaðabótamálin í Geirfinnsmálinu:
Kröfurnar
hækkaðar
— beðið eftir að rannsókn á Leirfinni ljúki,
en styttan verður gagn i málunum
Leirstyttan sem gerö var viö
rannsókn Geirfinns máisins
veröur eitt málsgagna i skaöa-
bótamálinu.
FRI — „Það voru samantekin
ráö lögfræðingaiþessum málum
að biöa eftir úrskurði Hæstarétt-
ar I Guömundar- og Geirfinns-
málunum”, sagöi Garðar Gisla-
son aðalfulltrúihjá Borgardómi i
samtali viö Timann, en eins og
kunnugt er þá höföuöu þeir Einar
Bollason, Magnús Leópoldsson,
Valdimar Olsen og Sigurbjörn
Eirlksson mál á hendur rikis-
valdinu fyrir aö hafa setiö i
gæsluvaröhaldi á sinum tima að
ósekju, er rannsókn þessara
mála stóö yfir. Kröfur þeirra
nema um 40-50 millj. kr. á mann
auk verðbóta, en kröfur Einars
eru hæstar.
„Þegar séö var að Guömund-
ar- og Geirfinnsmálin yrðu flutt
svo snemma sem raun varö á,
þótti sjálfsagt aö blöa eftir dómi
Hæstaréttar,” sagði Garðar.
Að sögn Garðars er einnig
beðið eftir að rannsókn ljúki á
leirstyttu þeirri er gerð var i
málinu og almennt heur verið
kölluð Leirfinnur, en hún kom
snemma fram I Geirfinnsmálinu
og þótti likjast einum af fjór-
menningunum mikið. Sagöi
Garðar að þaö væri eitt gagna I
málinu sem ekki væri komiö, en
lögmaöur Magnúsar Leópolds-
sonar hefur óskað eftir aö koma
þvi að.
Aö þvi er kröfur fjórmenning-
anna varðar sagði Garöar að
hann byggist við að þær yröu
hækkaöar og hefði einn þeirra
þegar hækkaö sinar kröfur með
framhaldsstefnu þannig aö ekki
er alveg búiö að slá þvi föstu hve
háar kröfurnar verða.
Reikna má með að málin veröi
tekin fyrir seinni hlutann i þess-
um mánuði.
Árni Guömundsson framkvæmdastjóri:
Þjóöhagslega hagkvæmt, að
staðsetja steinullarverk-
smiðjuna á Sauðárkróki
JSS — „Undirbúningur máls-
ins er i fullum gangi hjá okkur og
hefur raunar verið sl. 3 1/2 ár.
Undanfarið hefur verið unniö'að
hagkvæmnikönnun varöandi
niðursetningu steinullarverk-
smiöjunnar hér og hún er nú
komin á lokastig”, sagði Arni
Guömundsson framkvæmda-
stjóri á Sauðárkróki i viötali við
Timann.
„Við viljum kanna alla þætti
mjög nákvæmlega, til aö vera
vissir um að ekki veröi fariö út i
eitthvaö, sem ekki stenst þegar
til kemur. t þessari athugun er
miðað við staðsetningu á
Sauðárkróki. Viö höfum veriö
með flutningamálin sérstaklega
til gaumgæfilegrar athugunar og
þá meö tilliti til þess, að hægt
veröi aö uýta þaö rúm, sem er i
flutningabllum suöur, héðan af
Noröurlandinu. Eins er tekiö
með i reikninginn aö hægt verði
að fullnýta skipin, sem eru oftast
hálftóm hér, þegar þau fara
vestur eöa austur fyrir land frá
Reykjavik. Þessir aöilar geta
þvi boöið mjög góð kjör á
flutningum”.
Sagði Arni enn fremur, að við
ákvöröun á staðarvali verk-
smiðjunnar, yröu aö koma tii
byggðarsjónamiö, auk framan-
greindra hagkvæmnissjónar-
miða i rekstri fyrir flutningsaö-
ila á sjó og landi. Bentu þær
niöurstöður, sem þegar væru
fyrir hendi, til þess að ekki yrði
þjóðhagslega óhagkvæmara, að
setja verksmiöjuna niður Norö-
anlands, telja mætti aö 65% af
væntanlegum innanlandsmark-
aði væri á suð-vesturhorni
landsins, en 35% annars staöar á
landinu, og þá ekki síst Norðan-
lands.
„Ef við meinum eitthvaö meö
þvi að halda jafnvægi I byggð
landsins, þá er þetta beinllnis
nauösynlegt. Það veröa auövitað
aö vera fyrir hendi á viðkomandi
stööum mannafli til aö vinna viö
sllka framleiöslu. Hér á Sauöár-
króki er búið að sjá kvenfólki
fyrir atvinnu fram I timann, en
útlit er fyrir aö atvinnuskortur
veröi fyrir einhvern hluta karl-
manna á staönum, þegar fram I
sækir. Staöarvaliö er þvi stórt
atriði fyrir þetta héraö. Nú, hér
er öllaöstaða fyrir hendi, raflin-
ur komnar og hér er nóg heitt og
kalt vatn, auk þess sem hráefniö
er hér við útjaðar bæjarins”,
sagöi Arni Guömundsson.