Tíminn - 14.03.1980, Page 4
4
Föstudagur 14. mars 1980
í spegli tímans
bridge
Mary Poppins-tré!
Þeir sem sáu kvikmyndina um Mary Poppins gleyma
henni seint. Julie Andrews lék og söng og liffti sig svo
inn i hlutverk barnfóstrunnar og kennslukonunnar I
myndinni, aO nafniö festist viö hana og Julie hefur átt i
erfiöleikum meö aö komast aftur úr þvi hlutverki. t
Walt Disney garöinum f Flórida eru trjárunnar klipptir
til svo þeir likist æfintýrapersónum úr Disney-kvik-
myndum og tókst garöyrkjumanninum skemmtilega
vel aö ná fram mynd I lfkingu viö Mary Poppins og er
tréö svo nefnt i höfuöiö á henni. Stööugt veröur aö
snyrta og klippa Mary Poppins-tréö tii, svo hún t.d.
veröi ekki of sver I mittiö, aö hatturinn veröi ekki
skakkur, þvf aö alltaf vex runninn!
'•&.* S
■ V; 5
5 v-' |
.-:v i
Stærsta kirkju-
klukka í heimi
Á árinu 1980 eru 100 ár siöan dómkirkjan i Köln var
fullgerð, en þá hafði hún verið 632 ár i smiöum. I
klukknaturninum eru 9 stórar kirkjuklukkur, en þessi
sem sést hér á myndinni er kölluð Péturs-klukkan og er
langstærst. Sagt er að hún sé stærsta kirkjuklukka i
heimi. Á nýársdag s.l. þá var Péturs-klukku hringt
hátíðlega til að halda upp á 100 ára afmæli dóm-
kirkjunnar. Auðvitaö hefur þurft að endurnýja ýmis-
legt i kirkjunni og gera við i áranna rás. Eftir heims-
styrjöldina 1939-45 var Köln sem rúst yfir að lita en
dómkirkjan stóð upp úr, þótt hún hefði nokkuð látið á
sjá. Viögerðir voru fljótlega hafnar og tókust þær mjög
vel. Byggingartiminn var langur — 632 ár — og þá
myndaðist sá málsháttur i Köln: Þegar dómkirkjan
verður fullgerð mun heimurinn farast. Þetta var
endurtekið svo oft og mörgum sinnum og máltækið
gekk frá kynslóð til kynslóöar, að fólk fór að trúa þessu
og lá við að mönnum væri ekki um sel, þegar tilkynnt
var árið 1880 að nú væri dómkirkjan fullgerð og frá-
gengin. Þetta var i ágúst-mánuði það ár, og nú árið
1980, í ágúst-mánuði þá eiga borgaryfirvöld von á
mörgum gestum, alls staðar að úr heiminum, til þess
að halda hátiðlegt 100 ára afmæli hinnar fögru dóm-
kirkju og þá má gera ráð fyrir að Péturs-klukku verði
óspart hringt. Enn er ekki vitað hvort páfinn kemur til
hátíðarinnar, en ráðamenn segjast vonast til að svo
veröi.
krossgata
z
u>
Lárétt
I) Landið. 5) Eldur. 7) Flissaði. 9) Dvali.
II) Röö. 12) Timabil. 13) Dreif. 15) Púka.
16) Bókstafur. 18) Hlaöa.
Lóörétt
1) Neðri hluti fug'smaga. 2) Hljóðfæri. 3)
Komast. 4) Angan 6) Masa. 8) Fugl. 10)
Illæri 14) Matur. 15) Hui.duveru. 17) Tónn.
Ráðning á gátu No. 3268
Lárétt
1) Elding. 5) Rin. 7) Skó. 9) Nón. 11) Tá.
12) KU. 13) Ata. 15) Puö. 16) Ljá. 18)
Stólar.
- Lóörétt
1) Eistað. 2) Dró. 3) IÍ. 4) NNN.6) Knúðir.
8) Kát. 10) Oku. 14) Alt. 15) Pál. 17) Jó.
Kapparnir Siguröur Sverrisson og
Valur Sigurösson unnu aðaltvimenning
B.R. annað áriö í röð með skemmtilegum
endasprettilsíðustu umferðunum. Spilið I
dag er frá síöustu umferð mótsins og við
fylgjumst með atburðum við borðið þar
sem Sigurður og Valur sátu NS. Þetta spil
gaf þeim að visu ekki háa skor en það er
að mörgu leyti lærdómsrikt.
Suður S 7642 HK7 TD753
LA95 S/Allir
Vestur Austur
SKDG8 S 9
HDG85 H 109632
T G1098 TK62
L 6 Suður S A1053 HA4 TA4 LKG1072 LD843
Viö flest borð voru spilaðir 4 spaðar I
suður og nær allsstaðar doblaði vestur.
Þegar sagnhafar höfðu fengið þannig við-
varanir, sluppu flestir einn niöur meö þvi
að svina laufinu rétt og lofa vestri að
trompa. Ef vestur heföi átt tigulkónginn I
viðbót má alltaf standa spiliö, eins og les-
endur geta athugaö. Sigurður og Valur
spiluðu lika 4spaða en voru svo „óheppn-
ir” að vestur doblaði ekki. Hann spilaði út
tigulgosa og Valur, i suöur, taldi óliklegt
að hann væri að spila undan kóng. Hann
tók þvi slaginn heima á ásinn og ás og
kóng I hjarta. Þar sem AV höfðu ekki gef-
ið neinar upplýsingar um leguna I sögn-
um, reiknaði Valur með að spaðinn lægi
3-2. Æskilegast var auðvitaö aö austur
ætti kóng eða drottningu aðra. Þá var best
að taka á spaöaás, eins og Valur gerði nú,
og vona aö austur fyndi ekki að afstífla,
eöa vestur, með KGx, fyndi ekki krókó-
dilabragðið og færi uppmeð kónginn, þeg-
ar suöur spilaði næst litlum spaða. Austur
væri þá endapilaöur og yröi að gefa suðri
slag með útspili sinu. Þetta virtist ætla að
ganga vel i byrjun, þvi bæði AV fylgdu
með lágum spilum I ásinn og gosinn birt-
ist hjá vestri I næsta slag. En það dró
brátt ský fyrir sólu, þegar vestur innbyrti
næstu sex slagi á tromp og frislagina i
hjartaog tigli. Suöur var þvl 4 niður.
Það kom fram við annað borð i þessu
spili, að það borgar sigekki alltaf að láta I
sér heyra i sögnum. Þar kom vestur inná
sterka laufopnun suðurs — á einum
spaöa —. Eftir þaö spilaði suöur 3 grönd,
sem unnust slétt.
með morgunkaffinu
• i tL
czU='C-i