Tíminn - 02.04.1980, Qupperneq 5
Mi&vikudagur 2. aprfl 1980
5
LSiLl ilíí"
Unglingaheimili rikisins skilar góðum árangri
Framhalds aðstoð mest aðkallandi
JSS — „Svo viröist sem nokk-
urrar fáfræöi gæti stundum hjá
fólki varöandi þaö starf sem hér
er unniö. Viö viljum umfram
allt vinna fyrir opnum tjöldum,
fyrst og fremst til aö sýna fram
á aö hér er ekki rekiö fangelsi.
Þetta heimili er ekki til aö
brjóta einstaklinginn niöur,
heldur tii þess aö bæta hann”.
A þessa leið fórust Kristjáni
Sigurðssyni forstöðumanni
Unglingaheimilis rfkisins i
Kópavogi orð, i upphafi blaöa-
mannafundar, sem haldinn var »
á dögunum til að kynna starf-
semi heimilisins. Kvaðst
Kristján vilja leggja á það rika
áherslu, aö það sem væri einna
mest aðkallandi nú, væri fram-
haldsaðstoð viö þá unglinga,
sem ættu i erfiðleikum vegna
slæmra félagslegra eða
heimilisaðstæöna. Hætta væri á
að sú vinna sem unnin væri á
heimilinu, ónýttist að einhverju
leyti, ef unglingarnir nytu ekki
stuönings þegar þeir færu frá
heimilinu. Þess vegna yrði að
gera betur og koma á fót ein-
hvers konar heimili fyrir þá
sem þyrftu þess með.
Sagði Kristján, aö sú aðstoð
yrði ekki kostnaðarsöm miðað
við það sem ynnist með
hverjum einstakling, sem hægt
væri aö hjálpa til að verða sjálf-
stæður og ábyrgur þjóðfélags-
þegn.
1 greinargerð sem starfsfólk
Unglingaheimilisins hefur tekiö
saman um starfsemi þess og
ýmsa þætti varöandi hana, segir
um þetta atriöi: ,,Sú aðstoð,
sem hið opinbera byður þessum
unglingum, er mjög af skornum
skammti og er i raun takmörk-
uð við Unglingaheimili rfkisins
og þá möguleika sem þaö ræöur
yfir þ.e.a.s. skólaheimilið að
Breiðuvik áður fyrr og nú með-
ferðarheimiliö Smáratún i
Fljótshlið”.
Segir enn fremur aö
Smáratúnsheimilið hafi verið
starfrækt um 9 mánaða skeið og
hafi hvert sæti verið fullskipað.
Að auki hafi borist 9 fyrirspum-
ir um vistunarmöguleika eða
beinar vistunarbeiðnir sem ekki
hafi verið unnt að sinna. Gefi
aukinn fjöldi tilvisana til
Unglingaheimilisins og Smára-
túns visbendingu um sivaxandi
þörf á frekari aðstoð við ungl-
inga á aldrinum 12-18 ára.
A fundinum kom fram, aö
heimilið er ætlað unglingum á
aldrinum 12-16 ára. Hefur
aidurssamsetning haldist nokk-
uð svipuö þann tlma sem heim-
iliö hefur veriö starfrækt. Þó
Kristján Sigurösson forstööumaöur i gó&um félagsskap
Timamyndir Róbert
hefur nokkuð borið á þvi aö
unglingar eldri en 16 ára hafi
verið I vist þar vegna eigin óska
um aöstoð.
í greinargerð starfsfólks um
framhaldsaðstoð segir aö dvöl á
Unglingaheimilinu nægi i
mörgum tilfellum ekki til aö
leysa vandamál viðkomandi
unglings til fullnustu. Tilþess að>
þeir geti yfirleitt náð fótfestu I
lifinu, verði að koma til lang-
varandi öryggi og aöhald. Cr
þessari þörf veröi einna best
bætt með einskonar fjölskyldu-
heimili, þar sem fullorðnir
byggju I sambýli viö unglinga.
Þá segir að þörfin fyrir sllkt
eftirmeöferðarheimili hafi verið
hrópandi allt frá stofnun
Unglingaheimilisins, en hingaö
til hafi hvorki gengið né rekið
með framkvæmdir. Nú liggja
hins vegar fyrir beinar skipu-
lags- og fjárhagstillögur og sé
eftirleikurinn háöur skilningi
fjárveitingavaldsins. Þvl má
bæta við, aö á fundinum kom
fram, aö ekki er gert ráð fyrir
sliku heimili á fjárlögum. Þar
er veitt 116 milljónum króna til
Unglingaheimilisins, svo og
göngudeildar, sem fyrirhugaö
er að koma á fót. Myndi slík
deild veröa starfrækt i tengslum
við heimilið, og þar verður unnt
aðbjóða unglingum og aöstand-
endum þeirra sérfræðilega að-
stoð til að leysa úr vandamálum
sinum án þess að til vistunar
komi. Þá myndi göngudeildin
geta sinnt eftirmeðferð I þeim
tilvikum, þegar unglingur snýr
aftur 1 foreldrahús að lokinni
vistun á Unglingaheimilinu.
Sem fyrr sagði hefur verið
samþykkt fjárveiting til
væntanlegrar göngudeildar og
nemur hún 15 milljónum króna.
Er gert ráð fyrir 5 milljónum I
rekstrarkostnað og 2 milljónum
til að koma húsnæðinu í viðun-
andihorf. Töldu forsvarsmenn á
fundinum, að þessi upphæð
nægði hvergi nærri til að stofna
slika deild og fjármagna
rekstur hennar I upphafi.
Þá var lögð áhersla á rlka
þörf fyrir minni meðferðar-
heimili. I greinargerö starfs-
fólksins um þann þátt starfsem-
innar segir að ein vænlegust úr-
lausn á vandamálum unglinga
sé langtimavistun á fjölskyldu-
heimili með sérþjálfaö starfs-
fólk, sem fasta ábúendur, og þá
gjarnan I tengslum við eigin at-
vinnurekstur svo sem búskap.
Megi benda á Smáratúnsheimil-
ið I þessu sambandi og þyki sýnt
að þaöan meei búast við miöe
góðum árangri. Liggi ljóst fyrir
aðmjög mikil þörf sé fyrir fleiri
sllk.
í lok greinargerðarinnar
segir:”
Við gerum okkur fyllilega
ljóst að við erum hér að gera
kröfur um úrbætur eftir aö
skaðinn er skeður og að almenn-
um félagsaðstæðum unglinga er
mjög ábótavant. Við sem starfs-
menn Unglingaheimilisins
höfum hins vegar kosið að tak-
marka okkur við þá hlið málsins
sem að okkur snýr, en vonum
ennfremur aö aðrir áhugahópar
um málefni unglinga taki
hanskann upp og stuðh að við-
tækari umræðu.
Loks má geta þess, aö
Erlendur Baldursson afbrota-
fræöingur hefur gert rannsókn á
og reynt að meta starfsemi
Unglingaheimilisins eftir fyrstu
5 starfsárin. Niðurstöður hans
erulstuttumáli þær, aö um 73%
af unglingum, sem hafi fengið
aöstoð farnist eölilega, þegar
athugunin er gerð. 13% eigi
greinilega enn I erfiðleikum.
Mun þetta vera besti árangur á
Norðurlöndum miðaö viö sömu
forsendur, aö þvl er fram kom á
fundinum.
Nokkrir unglinganna, sem nií dvelja á heimilinu. Veggskreytinguna hafa krakkarnir gert sjálf.
Sigurður Karlsson
hlaut styrk
Veitt var úr Leiklistarsjóöi styrkinn aðþessu sinni að upphæð
Brynjólfs Jóhannessonar i sjö- kr. 700.000.-
unda sinn á aðalfundi Félags is-
lenskra leikara 25. febr. s.l. Formaður sjóðsstjórnar er
Sigurður Karlsson, leikari. hlaut Valur Glslason
Samband isl. trygg-
ingarf élaga þakkar
fyrir Umferðarviku
Samband isl. tryggingarfélaga
hefur sent frá áér þakkarbréf til
Slysavarnafélags tslands fyrir að
efna til umferðarviku dagana
23-29. mars.
Sérstök athygli er vakin á hinni
miklu tjónatiðni hérlendis I um-
ferðarslysum, en aö sjálfsögðu
hefur hún áhrif á iðgjöld i vá-
tryggingum ökutækja. Nauösyn-
legt er að auka umferöarfræðslu
og gera sér grein fyrir helstu
tjónavörnum. Meöal annars má
benda á að notkun bilbelta er jafn
nauðsynleg í þéttbýli eins og i
dreifbýli, en almenn notkun
þeirra fæst ekki, fyrr en þau
verða gerð aö skyldu. Jafnframt
er lögð áhersla á að fylgt sé
hraðatakmörkunum og um-
feröarlög almennt virt.
Gerist áskrifendur!
FOÐUR fiðrið sem bœndur treysta
Kúafóður — Sauðfjárfóður
Hænsnafóður — Ungafóður
Svinafóður — Hestafóður
Fóöursalt
MJÓLKURFÉLAG
REYKJAVÍKUR
LAUGARVEGI 164. REYKJAVíK
SÍMl 11125
Galvaniseraðar plötur
Margar
stærðir og
gerðir
BLIKKVER
SEUFOSSI
Skeljabrekka 4 - 200 Kópavogur - Simar: 44040 -44100 Hrismyri2A Selfoss Simi 99-2040