Tíminn - 02.04.1980, Síða 7

Tíminn - 02.04.1980, Síða 7
Miövikudagur 2. april 1980 7 Fjölbreytni framhaldsmennt- unar komi fyrst - ékki siðast Jóni Á. Gissurarsyni og Kristjáni Bersa Ólafssyni svarað Seinni hluti Ég mun þá hverfa aö þeim atriðum i siðari grein Kristjáns Bersa Ólafssonar, er ég tel bera það með sér að nokkur munur sé i huga okkar, ef ekki á sjálfum grundvallarhugmyndum sam- ræmds framhaldsskóla, þá aö minnsta kosti á framkvæmd þeirra. Kristján Bersi ólafsson segist vera mér sammála i þvf að „vitaskuld þurfa fjölbrauta- skólar sem eiga aö spanna yfir mörg námssvið og mörg náms- ár að vera stórir og þvi stærri sem námsframboð þeirra er meira. Og vitaskuld þurfa þeir að hafa húsnæði við hæfi, tækja- búnað og sérmenntaða kennara, og námskrá til aö starfa eftir”. Þessi viðurkenning er ágæt svo langtsem hún nær, en hún snýst þvi miður upp i andhverfu sina þegar þvi er skömmu siðar lýst yfir ,,að sameiginlegir náms- þættir (séu) eðlilega flestir i upphafi náms en námsaðgrein- ingin eykst eftir þvl sem lengra liður á námið. Það þýðir að upp- haf framhaldsnáms á að geta farið fram tiltölulega viöa, en námslok, einkum á lengri brautum verða að takmarkast við fáa stóra skóla”. Með þessari skilgreiningu á samræmdum framhaldsskóla er verið að vikja frá uppruna- legum grundvallarhugmynd- um. Nemendur verða flestir á fyrsta og öðru ári framhalds- skólans, en fer fækkandi á þriðja ári og verða fæstir á fjórða ári. Það er að visu hæpið að tala um ár I þessu sambandi vegna áfangakerfisins sem skapar möguleika mismunandi námshraða. Hitt viröist auðsætt að hinn samræmdi framhalds- skóli sem býöur upp á eins árs námsbrautir og tveggja ára brautir sérstaklega ætlaðar at- vinnulifinu og samfélaginu hlýt- ur að hafa flesta og frábrigði- legasta áfanga i boði á fyrstu tveim námsárunum, en færist nær þvi á siðasta námsári að hafa „sameiginlega náms- þætti”. Breiddin og sundurgerð- in verður mest I upphafi þegar komið skal til móts við hin ólik- ustu áhugasvið og veita á nem- endum tækifæri að kynnast námi skipulögðu á gerólikum forsendum miöað við grunn- skólann með megináherslu á sameiginlegri bóknámsundir- stöðu. Sé þetta raunverulega sann- færing Kristjáns Bersa Ólafs- sonar skólameistara að hægt sé að halda námsforsendum grunnskólans áfram á fyrsta og jafnvel öðru ári framhaldsskól- ans er i reynd veriö að lengja grunnskólann á likan hátt og verið varaðlengja gagnfræöa- skólann á sinum tima með hin- um svoköiluðu framhaldsdeild- um. Ef þetta er besti kosturinn og sá ákjósanlegasti, þá er raunverulega ástæðulaust að vera að fá samþykkt frumvarp tillaga um framhaldsskóla sem byggir á gerólikum forsendum. Sé það tilgangurinn með náms- visi hinna þriggja fjölbrauta- skóla I Flensborg, Suðurnesjum og Akranesi að leggja til atlögu við umrætt frumvarp og koma i veg fyrir að það verði fram- kvæmt á þann eina hátt sem eðlilegur er og sjálfsagður, þá hefur ekki verið til einskis unn- ið. En litla þökk eiga þeir skipu- Guðmundur Sveinsson leggjendur skilið frá fólkinu i dreifbýli landsins sem á aö fá framhaldsdeildimar I sinn hlut, þegar framhaldsskólalögin gera ráð fyrir að þær skuli afnumdar. Ég þekki sjálfur af eigin raun hina hörðu baráttu sem háö hef- ur verið allt til þessa að tryggja jafnan rétt ungmenna I dreifbýli til sömu námsmöguleika og jafnaldrar þeirra i þéttbýlinu hafa. Þegar samræmdur fram- haldsskóli þéttbýlisins býður nemendum fram fjölbreytni verknáms og bóknáms strax i upphafi skólagöngu á nýju námsstigi á að velja örfáa bók- námsáfanga og enn færri verk- námsáfanga til handa æskunni i dreifbýlinu og fullyröa að meö þvisé jafnrétti og réttlæti komiö á. Þetta samsvarar þvi jafnrétti og réttlæti sem min eigin börn hlutu i dreifbýlinu, þegar þau fengu 67 skóladaga á ári móti 270 sem boðnir voru fram I þétt- býlinu. Ungmenni dreifbýlisins eru i framhaldsskólamálum komin á farkennslustigið og verða siðar að vinna upp van- ræksluna og skammsýnina í hinum stærri skólum þéttbýlis- ins, þar sem fjölbreytni náms- ins er veitt frá upphafi. I minum huga verður sam- ræmdur framhaldsskóli trauðla rekinn nema upphafsárgangur skólans sé sem næst 200 nem- endur. i öörum aldursárgangi veröa þá liklega 160 nemendur. I hinum þriðja 120 nemendur en sem næst 80 i hinum fjórða, eða um 40% nemenda er komu ljúka stúdentsprófi. Slikur skóli verð- ur með tæplega 600 nemendur alls. Fari nemendatalan mikið niður fyrir þessi mörk mun það skilyröislaust ganga út yfir verknámsbrautirnar eins og dæmin sanna þar sem slikar hugmyndir hafa verið uppi. önnur lausn hefur lika verið reynd, að skilja með öllu aö verknámsnemendur og bók- námsnemendur. Hún hefur heldur ekki þótt eftirsóknarverð svo mjög sem hún ber fornum lærdómsviðhorfum vitni. Ég tel að gera verði þá kröfu fyrir hönd dreifbýlisins að alls staðar riki hinn samræmdi framhaldsskóli á breiðum grunni fjölbreyttra námsfram- boða þar sem boöið er upp á hagnýtar eins- og tveggja ára námsbrautir ekki siöur en hinar lengri brautir sem allar enda með sama bóknámskjarna. Fjölbreytnin veröur að koma fyrst, ekki siðar eða siöast. Forðumst hina bitru reynslu Dana, sem eru nú með allt að 70% nemenda úr aldursárgöng- um i hreinu bóknámi mennta- skóla og neyöast þannig til þess að setja allt nám til atvinnurétt- inda á háskólastig eöa láta stúd- entana siðar fara i námsbrautir er þeir gátu tekið fjórum náms- árum fyrr. Það veröur islensku þjóðinni margfalt dýrara að halda nemendum hingaö og þangað um landiö i bóknámi, sem endar liklega hjá flestum 1 stúdentsprófi heldur en reisa fáa veí búna aog vandaða sam- ræmda framhaldsskóla, þar sem fyrirhendi er „húsnæöi við hæfi, tækjabúnaður og sér- menntaðir kennarar”, er geta beint þeim inn á hin mörgu áhugasviö er Islenskt þjóðfélag og atvinnulif þarfnast. Stúdentspróf og háskólanám má ekki verða eini tilgangur samræmds framhaldsskóla. Æska landsins er framsækin og raunsæ. En hún gerir hiklaust þær kröfur að framhaldsskólar landsins risi undir nafni en verði ekki gerðir aö biðstööum, þar sem dýrmætum tima er eytt. Æska dreifbýlisins sætti sig ekki við farskólana. HUn mun heldur ekki sætta sig við að val hennar á námsbrautum sé gert aö markleysu, þar sem allir eru settir i sömu námsáfanga meö þeirri skýringu aö þeir kunni einhverntima og einhvers stað- ar að nýtast. Grímnir nýtt rit Örnefnastofnunar um nafnfræði Út er komið timaritið Grimnir, rit um nafnfræði, fyrsta hefti. Otgefandi er örnefnastofnun Þjóðminjasafns og ritstjóri forstöðumaöur hennar, prófessor Þórhallur Vilmundarson. Svo sem segir i titli fjallar Grimnir um nafnfræði, og hefur upphafsheftið að geyma nokkrar ritgerðir eftir Þórhall Vilmundarson um örnefni, til- drög og merkingu, auk rit- fregna. Siöari hluti heftisins er fyrsti hluti Safns til tslenskrar ör- nefnabókar, sem próf. Þórhallur hefur tekið saman. Er þar vikið að allmörgum ein- stökum örnefnum, uppruni þeirra skýrður og tengsl viö önnur örnefni, en dæmi studd fjölmörgum uppdráttum og landslagsmyndum til skýr- ingar. Er ekki að efa að ýmis skýringardæmi próf. Þórhalls munu vekja athygli og áhuga, en þess er að minnast að hann margfyllti stærstu fyrirlestra- sali landsins á sinni tiö meö fyrirlestrum sinum um upptök islenskra örnefna, hina svo nefndu „náttúrunafnakenn- ingu” sem hann mótaði. 1 aðfaraoröum ritsins segir m.a.: „I riti þvi sem hér hefur göngu sina og örnefnastofnun Þjóðminjasafns gefur út er ætlunin að birta einkum niður- stöður nafnfræðirannsókna sem unnið hefur verið að á vegum stofnunarinnar, svo og frá- sagnir af starfsemi hennar. Þórhallur Vilmundarsson. Stefnt er aö þvi að ritið geti I framtiðinni komið út árlega, en ekki er á þessu stigi unnt að lofa reglulegri útkomu þess.” Ritið Grimnir er I hanahægu broti, 143 bls., með fjölda- mörgum myndum og skýringarteikningum svo sem fyrr sagði. Þaö er prentað I Prentsmiðjunni Odda hf. Þeir,sem hug hafa á að gerast áskrifendur að Grimni, geta snúið sér til örnefnastofnunar Þjóðminjasafns, Suðurgötu 41, Reykjavik, simi 21329, og fengiö ritiö á áskriftarverði. Ritiö veröur sent gegn póstkröfu út um land. Evrópa og eftirstríðsárin Andreas Hillgruber: Europa in der Weltpoli- tik der Nachkriegzeit 1945 1963. Grundriss der Geschichte, Band 18. R. Oldenbourg Verlag, Munchen, 1979. 184 bls. Fyrir skömmu siðan var hér i þættinum fjallað um 17. bindi ritraðarinnar Grundriss der Geschichte, sem gefið erút af Oldenbourg forlaginu i Munchen. Atjánda bindi hefur nú borist og er efni þess Evrópa og afstaða Evrópurikja i heims- pólitikinni á árunum 1945-1963. 1 inngangsorðum segir höfundur að þetta efni sé að þvi leyti sér- stætt I ritröðinni, að yfirlits kaflinn sé lengri og aö sumu leyti ýtarlegri en I öðrum bind- um en byggi hins vegar á tak- markaðri rannsókn. Astæðan er sú, að frumheimildir eru enn ekki aögengilegar sagnfræðing- um nema aö litlu leyti, auk þess sem svo skammt er liðið siðan ýmsir þeir atburðir, sem um er fjallað, áttu sér stað, að enn verður ekki séö fyrir endann á þeim slóða er þeir draga. I inngangi segir höfundur einnig, að hann hafi leitast við að byggja frásögnina þannig upp, að lesandinn fengi glögga heildarsýn yfir sögu Evrópu á þessu skeiði. Hann hefur frá- sögn sina með þvi aö lýsa ýms- um helstu grundvallareinkenn- um og tilhneigingum, sem áber- andi eru i sögu Evrópu á um- ræddu timabili. Siöan kemur kafli um Evrópu viö lok siðari heimsstyrjaldarinnar og er hon- um skipt I fjóra hluta. Sá fyrsti fjallar um niðurstööur á Af bókum Grundrift derGeschichte AndreasHiUgruber Europainder Weltpolitikder Nachkriegszeit 19454963 styrjaldarráöstefnum banda- manna. Þá er lýsing á stöðu mála á valdasvæði Sovétrikj- anna, og siöan á þvi svæði er bandamenn réðu. Loks er kafli um Þýskaland undir stjórn her- námsliðanna fjögurra. Þessu næst er ýtarlegur kafli um skiptingu Evrópu i austur og vestur á árunum 1945-1949., og tveir greinargóðir kaflar um Evrópu á dögum kalda striðs- ins. Loks er rætt um þá þróun mála sem leiddi til minnkandi spennu og batnandi sambúðar stórveldanna á árunum 1961- 1963. 1 öðrum hluta bókarinnar er lýst tilgangi og helstu vanda- málum rannsóknarinnar. Þess- um hluta er skipt i þrjá kafla og fjallar sá fyrsti um þær heimild- ir, sem fræöimönnum eru til- tækar og reynir höfundur aö meta gildi þeirra. Hann segir, að það hafi óneitanlega staöið sagnfræðirannsóknum fyrir þrifum, hve li'tið sé enn tiltækt af skjallegum heimildum um sögu Evrópu eftir 1945. Viö vit- um hvað hafi gerst á þessu skeiði en I fáum tilfellum getum viö með nokkurri vissu sagt hvers vegna. Höfundur ræðir nokkuð um helstu heimildasöfn um sögu þessa timabils og greinir frá helstu stofnunum i evrópskri samtimasögu. 1 kaflalok tekur hann til umfjöllunar skjöl frá striðsráðstefnum leiðtoga bandamanna. Þessu næst er kafli sem nefn- ist: „Frá samtlmaannálum til sagnfræðirannsókna”. Þar ræð- ir höfundur um það, sem kalla má annála samtimasög- unnar, timarit, handbækur, o.s.frv. og siðan þá erfiðleika sem þurfi að yfirstiga áöur en hægt sé að hefja fræöilega rann- sókn á sögu siöustu áratuga. Siöari kafli annars hluta fjallar um þær miklu mótsagnir sem svo mjög einkenna sögu sam- timans. Ýtarleg og flokkuð heimildaskrá Þriðji hluti bókarinnar er ná- kvæm og ýtarleg heimildaskrá og er hún flokkuð eftir efnisþátt- um. Þar er getið heildarsafna, endurminninga, ævisagna, ein- efnisrita og ritgeröa, og svo mætti áfram telja. Sérstakur hluti eru skrár um rit, sem varða sögu hvers lands fyrir sig. 1 bókarlok eru birtar töflur Framhald á bls 19

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.