Fréttablaðið - 16.05.2007, Blaðsíða 10
Verum með
fallegar tær
í sumar!
ll
í
NÝTT
Bylting í meðferð
á fótsveppi …
– sveppasýkingarlyfið
sem einungis
þarf að bera á
einu sinni!
FÆST ÁN LYFSEÐILS
Lamisil Once 1% húðlausn inniheldur 10 mg af terbínafíni (sem hýdróklóríð). Lamisil Once er einskammta meðferð við fótsvepp (tinea pedis). Ekki má nota
Lamisil Once ef til staðar er ofnæmi fyrir terbínafíni eða einhverju öðru innihaldsefni lyfsins. Lamisil Once er eingöngu ætlað til útvortis notkunar. Lyfið er
eingöngu ætlað til húð-meðferðar á fótum. Lamisil Once á ekki að nota á meðgöngu nema brýna nauðsyn beri til. Konur með barn á brjósti eiga ekki að nota
Lamisil Once. Börn og unglingar undir 18 ára aldri eiga ekki að nota lyfið þar sem reynslu skortir af slíkri notkun. Lyfið á einungis að bera á einu sinni. Best er að
bera Lamisil Once á húðina eftir sturtu eða bað. Lyfið verður að bera á báða fætur, jafnvel þótt einkenni sjáist einungis á öðrum fæti. Þetta tryggir algjöra
eyðingu sveppsins. Hann getur leynst víðar á fótum þótt ekki sjáist nein merki um hann. Lamisil Once er mild lausn og ertir sjaldnast húðina. Geymið þar sem
börn hvorki ná til né sjá. Lesið vandlega leiðbeiningarnar sem fylgja hverri pakkningu. Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan,
Kirkjulundi 17, 210 Garðabæ.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Lögreglan í Portúgal
hóf í gær formlega rannsókn á
breskum manni, Robert Murat,
sem grunaður er um aðild að
hvarfi hinnar fjögurra ára Madel-
eine McCann, sem var rænt af hót-
elherbergi 3. maí síðastliðinn. Lög-
reglan þurfti þó að sleppa Murat
úr haldi síðar um daginn vegna
skorts á sönnunargögnum.
Formleg rannsókn á grunuðum
einstaklingi er fyrsta skrefið í að
leggja fram ákæru á hendur
honum, samkvæmt portúgölskum
lögum sem ætlað er að vernda
stjórnarskrárbundin réttindi borg-
ara.
Ásamt Murat voru tvö vitni sem
tengjast honum, þýsk kona og
portúgalskur maður, yfirheyrð í
gær.
Murat, sem á portúgalska móður
og breskan föður, býr ásamt móður
sinni í hundrað metra fjarlægð frá
hótelinu þaðan sem Madeleine var
rænt. Lögregla rannsakaði í gær
hús hans og lagði meðal annars
hald á tölvur og síma.
Portúgalskir fjölmiðlar greindu
frá því í gær hvernig Murat, sem
er túlkur, hefði blandað geði við
fjölmiðlamenn fyrir utan hótelið í
kjölfar hvarfs Madeleine og boðið
þeim aðstoð sína. Ein blaðakona
tjáði bresku fréttastöðinni Sky
News að hún hefði bent lögregl-
unni á að fylgjast með Murat
vegna grunsamlegar hegðunar.
Madeleine var rænt þar sem
hún svaf á hótelherbergi fjöl-
skyldunnar ásamt tveimur syst-
kinum sínum, tveggja ára göml-
um, meðan foreldrar þeirra
snæddu kvöldverð á nálægum
veitingastað milli þess sem þau
gættu að börnunum.
Rúmar 326 milljónir hafa safn-
ast í sjóð sem ætlað er að veita úr
gegn vísbendingum frá fólki um
Maddie. Meðal þeirra sem hafa
lagt til fé í sjóðinn eru J.K. Row-
ling, Richard Branson, David
Beckham og Eggert Magnússon.
Foreldrar Madeleine segjast
ekki ætla að snúa aftur til Bret-
lands fyrr en dóttir þeirra komi í
leitirnar.
Sleppt vegna
skorts á sönn-
unargögnum
Portúgalska lögreglan grunar Breta um aðild að
hvarfi Madeleine McCann. Vegna skorts á sönnunar-
gögnum var þó ekki unnt að hafa hann í haldi.
Samskip hafa verið
dæmd til að greiða ekkju sjó-
manns 1,8 milljónir, auk vaxta frá
1997 og dráttarvaxta, vegna miss-
is framfæranda. Maður hennar
fórst þegar skipið Dísarfell sökk í
mars árið 1997. Talið var að skip-
stjóri á skipinu hefði sýnt af sér
saknæmt gáleysi með því að senda
ekki strax út neyðarkall þegar
skipið lenti í háska.
Skaðinn varð með þeim hætti að
skipið fékk á sig mikinn halla á
bakborða og sjór komst inn í lest-
ar þess. Ljóst þykir að ástandi
skipsins hafi verið ábótavant, en
það er ekki talið saknæmt.
Ljóst þykir þó að skipstjórinn
hafi verið vakinn klukkan tvö og
hann hafi fyrirskipað að reynt
yrði að dæla vatni úr lestum skips-
ins, en þeim tilraunum hætt klukk-
an fjögur þar sem þær báru engan
árangur. Óútskýrt þykir hvers
vegna neyðarkall var ekki gefið út
fyrr en klukkan 4.52. Tveir skip-
verjar af tólf létust. Samskip voru
talin bera ábyrgð á tjóni konunnar
á grundvelli húsbóndaábyrgðar.