Fréttablaðið - 16.05.2007, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 16.05.2007, Blaðsíða 38
Ljósmyndarinn Rebekka Guðleifsdóttir, sem er meðlimur í netsamfélaginu flickr.com, leitar réttar síns gagnvart bresku fyrirtæki sem hefur stolið af henni myndum. Þúsundir netverja hafa sýnt henni stuðning síðan á mánudag. Í janúar rakst kunningi ljósmynd- arans Rebekku Guðleifsdóttur á mynd eftir hana í vefverslun á eBay, þar sem fyrirtækið Only- Dreemin selur ljósmyndir prent- aðar á striga. Myndirnar höfðu verið teknar af síðu Rebekku á flickr.com sem notið hefur mik- illa vinsælda síðasta árið. Á síðasta ári greindi Fréttablað- ið frá vinsældum Rebekku á net- inu og samningi hennar við stór- fyrirtækið Toyota. „Ég fann átta af mínum mynd- um á síðunni. Það var verið að selja þær undir einhverju nafni sem var augljóslega ekki rétt,“ útskýrði Rebekka. Á eBay skila kaupendur umsögn um seljanda í hvert sinn sem þeir kaupa vöru, þar sem fram kemur hver varan er. Með því að skoða slíkar um- sagnir, sem ná sex mánuði aftur í tímann, komst Rebekka að því að myndir hennar höfðu verið seldar fyrir sem nemur ríflega 300.000 íslenskum krónum. „Ég komst að því að fyrir- tækið er líka með búð í Leicest- er í Englandi og eigin heimasíðu, sem myndirnar mínar voru líka á,“ sagði Rebekka. Lögfræðingur hennar hafði skriflegt samband við Only-Dreemin. „Þeir tóku myndirnar strax af síðunni en öns- uðu ekki óskum um að þeir myndu bæta mér þetta. Svo hættu þeir bara að svara,“ útskýrði Rebekka. Eftir tvo mánuði og engin svör var Rebekku tjáð að hún gæti lítið gert. Á mánudagsmorgun birti Rebekka harðorða bloggfærslu um stöðu mála á flickr-síðu sinni og viðbrögð- in létu ekki á sér standa. „Á sólar- hring var búið að skoða hana hundr- að þúsund sinnum,“ sagði Rebekka. 436 höfðu skrifað athugasemd við færsluna þegar þetta er skrifað og málið hafði ratað á forsíðu digg. com, sem er afar vinsæl í Bandaríkj- unum. Þar höfðu þúsundir lesið um raunir Rebekku. Umræðan virðist hafa haft ein- hver jákvæð áhrif. „Í dag liggur búðin þeirra niðri. Fólk hefur sent þeim mikið af tölvupósti og ég er búin að fá póst frá þeim og afsök- unarbeiðni,” sagði Rebekka, sem er afar þakklát fyrir stuðninginn. Afsökunarbeiðnin breytir því hins vegar ekki að hún vill fá skaðann bættan. Forsvarsmenn Only-Dreemin segj- ast hafa keypt efnið af öðru fyrir- tæki í þeirri trú að öll leyfi væru fyrir hendi. „Það breytir því ekki að það er lögbrot að selja stolið efni. Ef þú gerir þér grein fyrir því að þú hefur verið að selja stolið efni býðstu auðvitað til að bæta fyrir það,“ sagði Rebekka, sem tekur skýringu Only- Dreemin þó ekki trúanlega. „Það er allt of algengt að stór fyrirtæki kom- ist upp með að níðast á einstakling- um. Mér finnst það skipta miklu máli að þeir fái að vita að þetta er ekki í lagi,“ sagði Rebekka. Myndir Rebekku og umrædda færslu má skoða á slóðinni www. flickr.com/photos/rebba. Leikkonan Angelina Jolie syrgir móður sína, Marcheline Bertrand, enn þá afar mikið en hún lést úr krabba- meini í janúar. „Ég er ein af þessum manneskjum sem haga sér eins og allt sé í lagi og síðan allt í einu veit ég ekki hvers vegna ég græt þegar ég fæ mér morgunmat,“ sagði Jolie. „Móðir mín var besti vinur minn. Ég er virki- lega þakklát fyrir að hafa átt hana að. Hún var með krabbamein í sjö ár en hún lifði nógu lengi til að sjá mig og bróður minn verða frekar hamingjusöm. Maður fær það á tilfinninguna að hún hafi haldið sér gangandi þang- að til allt var í lagi hjá okkur.“ Ennþá afar sorgmædd

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.