Fréttablaðið - 16.05.2007, Blaðsíða 11
Sveitarstjórnin á Djúpavogi
kveðst ekki geta selt eyðijarðirnar Tunguhlíð
og Markúsarsel. Tilboð hafði borist en sveitar-
stjórnin opnaði það ekki þar sem hún telur
sveitarfélagið ekki hafa formlega heimild til að
selja þessar jarðir. Að sögn Björns Hafþórs
Guðmundssonar sveitarstjóra var ákveðið að
ríkið seldi sveitarfélaginu jarðirnar þegar
Geithellnahreppur sameinaðist Djúpavogi í
byrjun áttunda áratugarins. Svo virðist sem
láðst hafi að þinglýsa sölunni og landbúnaðar-
ráðuneytið vilji nú fullvissa sig um að rétt hafi
verið staðið að málum áður en það skrifar upp
á eignarhald Djúpavogshrepps.
Björn Hafþór segir afar mikilvægt fyrir
Djúpavogshrepp að eignarhald hreppsins á
jörðunum fáist staðfest. „Bærinn er í fjárhags-
kröggum og þarf á fjármunum að halda,“ segir
sveitarstjórinn, sem kveður hreppinn munu
auglýsa jarðirnar til sölu. Aðspurður segir
hann þar bæði rjúpnalönd og stangveiði.
Sveitarstjórnin hefur samið um sölu
jarðarinnar Stekkjarhjáleigu til eiganda
nærliggjandi jarðar. Athugasemdir hafa verið
gerðar við þau viðskipti þar sem þau fara fram
án þess að jörðin hafi verið auglýst. Björn
Hafþór segir það eiga sér þá skýringu að
viðkomandi kaupandi hafi þurft á Stekkjarhjá-
leigu að halda vegna uppbyggingar á ferða-
þjónustu á sinni jörð og það hafi þótt gagnlegt
fyrir hreppinn.
Verið er að skoða
hvaða tæknibúnaður henti best til
að færa safnkost RÚV yfir á
aðgengilegt form og hversu mikið
þurfi. „Þá verður kominn tækni-
legur kostnaðargrundvöllur,“
segir Páll Magnússon útvarps-
stjóri. Páll segir „unnið að þessu
af krafti og festu“ og niðurstöðu
að vænta á næstu vikum. Þá verði
haldið áfram með önnur atriði
áætlunarinnar.
Í nýjum lögum um RÚV stendur
að gera skuli áætlun um að setja
eldra efni á aðgengilegt form.
Stefnt var á að ljúka áætluninni
um þetta leyti árs.
Verið að skoða
tæknileg atriði
Ríkið og Reykjavíkur-
borg eru að semja um átak í
þjónustu við geðfatlaða. Um
tilraunaverk-
efni er að ræða
sem felst í því
að umrædd
þjónusta er
flutt frá ríkinu
til borgarinnar.
Velferðarráð
Reykjavíkur
segir þetta
verða stórátak
í uppbyggingu
búsetu og
þjónustu fyrir
um það vil áttatíu geðfatlaða
einstaklinga. „Hugmyndum um
að færa beri þjónustu við fólk
með geðraskanir út í samfélagið
– frá hefðbundnum sjúkrastofn-
unum – vex fylgi,“ segir félags-
málaráðuneytið og bætir við:
„Talið er að búseta í íbúðarkjarna
eða þjónustuíbúð með fjöl-
breyttri og sveigjanlegri
stoðþjónustu geti veitt stöðug-
leika og öryggi.“
Ný heimili fyrir
áttatíu geðsjúka
Benedikt XVI páfi
skellti skuldinni af vandkvæðum
Suður-Ameríku á marxisma og
óheftan kapítalisma er hann
messaði á sunnudag yfir biskup-
um úr allri álfunni, sem sóttu
fund páfa undir lok fimm daga
heimsóknar hans til Brasilíu.
Hvatti hann biskupana til að
„móta nýja kynslóð rómversk-
kaþólskra leiðtoga í stjórnmál-
um“ til að snúa vörn í sókn.
Milljónir manna í Suður-
Ameríkuríkjum hafa á undan-
förnum árum sagt sig úr kaþólsku
kirkjunni og gengið til liðs við
frjálsa mótmælendasöfnuði.
Páfi varaði líka við því að
getnaðarvarnir og fóstureyðingar
„ógnuðu framtíð þjóðanna“ í
heimshlutanum og hin sögulega
kaþólska sjálfsímynd hans ætti í
vök að verjast.
Skellir skuld á
marxisma og
kapítalisma