Fréttablaðið - 16.05.2007, Page 12

Fréttablaðið - 16.05.2007, Page 12
 Sautján ára unglings- piltur gekk inn á lögreglustöð í Tókýó í Japan í gær með afskorið höfuð móður sinnar og játaði að hafa myrt hana. Því næst vísaði hann lögreglumönn- um heim til sín á lík móður sinnar og sagði hvernig hann hefði hálshöggvið hana að kvöldi 47. afmælisdags hennar meðan hún svaf. Pilturinn sagði það skipta sig engu hvern hann myrti. Japanar hafa löngum hreykt sér af öryggi á götum úti og lágri tíðni ofbeldisglæpa en nokkur óhugnanleg morðmál undanfarið hafa grafið undan þeirri ímynd. um Tókýóborg. Unglingur háls- hjó móður sína Gervihjarta var í fyrsta skipti grætt í sjúkling hér á landi nýlega. Gervihjartaþeginn er 64 ára karlmaður. Rannsóknir sýndu að ígræðsla á hjálparhjarta væri hans eina von um bata og áframhaldandi líf. tíu læknar og hjúkrunarfólk voru í tíu tíma að ígræðslunni og tókst hún prýði- lega. Sjúklingnum er haldið sofandi á gjörgæsludeild eftir aðgerðina. „Það stóð á endum að hjarta sjúk- lingsins hætti allri starfsemi um það leyti sem aðgerðin var gerð. Hjálp- arhjartað dælir nú í stað vinstri hluta hjartans en fram að þessu hefur hægri hluti hjartans ekki tekið við sér eins og vonast var til,“ segir Bjarni Torfa- son, yfirlæknir hjarta- og lungna- skurðdeildar LSH. Birna Sigurðardóttir, eiginkona Þorbjörns Árnasonar sem lést eftir hjartaþræðingu í nóvember 2003, stofnaði minningarsjóð tækja- og hjartaþræðinga LSH sem gekkst fyrir söfnuninni Í hjartastað. Þessi sjóður gaf síðan spítalanum á annan tug milljóna króna fyrir gervihjartanu. Hjartað er það fyrsta sem grætt er í Íslending og það hér á landi og kostaði það um fjórtán milljónir. Meðal annars þurfti að senda þrjá lækna og einn hjarta- og lungna- vélasérfræðing utan til að læra að græða gervihjarta í menn. Gervihjartaþeginn hefur nú litla pumpu í stað hjarta inni í sér. Gervihjartað sér um að dæla blóði úr biluðum vinstri slegli yfir í ósæðina og þannig út um líkam- ann. Það dælir með jöfnum þrýst- ingi en ekki á taktvissan púls- erandi hátt eins og hjartavöðvinn. Fyrir vikið eru þeir sem eru með gervihjarta ekki með púls eins og aðrir. Rannsóknir bendi til að til- tölulega jafn þrýstingur gervi- hjartans hafi ekki neikvæð áhrif á æðar eða líffæri. Gervihjartaþeg- inn mun vera með batterí innan- klæða sem þarf að hlaða á hverjum degi. Bjarni reiknar með að fimm til sex aðgerðir af þessu tagi verði gerðar á ári til að byrja með. Ein aðgerð verði gerð til að brúa bilið fram að hjartaígræðslu, ein á sjúklingi þar sem hjartað mun ná sér við þá hvíld sem gervihjartað veitir þannig að hægt verði að taka það út eftir nokkra mánuði eða ár. Þrjár til fjórar aðgerðir verði svo gerðar á sjúklingum sem fái var- anlega lausn með gervihjartanu. Hafin er söfnun fyrir hjarta- og gervilunga fyrir börn. Fyrsta gervihjartaígræðslan Sjúklingi sem fékk gervihjarta á dögunum, fyrstur Íslendinga, er haldið sofandi. Aðgerðin gekk vel og reiknað er með að fimm til sex aðgerðir af þessu tagi verði gerðar hérlendis á ári.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.