Fréttablaðið - 16.05.2007, Page 21

Fréttablaðið - 16.05.2007, Page 21
Hjónin Þorgrímur Kristjánsson og Þuríður Þórðardóttir reka hótel í Ölpunum. „Hótelið kallast Skihotel Speier- eck og er í litlu fjallaþorpi, Sankt Michael, 100 km suður af Salzburg. Við erum á Alpahryggnum í sól- ríkasta hluta Austurríkis,“ útskýr- ir annar eigendanna, Þorgrímur Kristjánsson, hress í símann og bætir við að náttúrufegurðin sé engu lík, þar sem fjöllin gnæfi beggja megin við hótelið og allt sé í blóma á sumrin. Að sögn Þorgríms er hótelið átján herbergja og í svokölluð- um rustik-stíl, sem er gamaldags Alpastíll og einkennist af mikl- um tréútskurði. Hann segir hótel- ið búið öllum helstu nútímaþæg- indum, þar á meðal saunu, lík- amsræktarherbergi og ljósabekk og stórum veitingasal með útsýni suður yfir fjöllin, sem eru sum allt að 2.500 metra há. „Hótelgestirnir þurfa síðan ekki að hafa áhyggjur af því að leið- ast,“ segir Þorgrímur. „Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Hér eru frábærar gönguleiðir og hægt að leigja sér fjallahjól. Fólk getur alltaf haft viðkomu í veitingaskálum, sem eru allt um kring, og fengið sér hressingu. Hér fást heimagerðar gúllassúp- ur, ostar, pylsur og speck, sem er vindþurkkað svína- og nautakjöt. Þá er hægt að fara í útreiðatúra, river-rafting, fjallaklifur og golf. Svo er sjóskíða- og seglbrettaleiga í hálftíma akstursfjarlægð. Svæð- ið breytist síðan í skíðaparadís á veturna.“ Þorgrímur segir að ef um stóra hópa sé að ræða, tuttugu manns og fleiri, þá sé heljarinnar veislu slegið upp meðan á dvölinni stend- ur. „Við bjóðum upp á heilt grillað svín, sem er borið fram á bretti skreytt stjörnuljósum. Eftir mat heldur austurrísk tír- ólahljómsveit uppi fjörinu. Allt er gert til að gestunum líði sem best.“ Falin perla í Ölpunum Mörkinni 6, Símí 588-5518 Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 10-16 DREKINN WUSHU FÉLAG REYKJAVÍK Skeifunni 3j · Sími 553 8282 www.heilsudrekinn.is Kennari: Meistari Zhang einkatímar og hópatímar Tau lo Tai jí Skráning er hafin Skráning á sumarnámskeið Hraðlestrarskólans er hafin á www.h.is og í síma 586-9400 Hvað segja nemendur okkar um námskeiðið: Frábært, markvisst, hnitmiðað, æviábyrgð, nytsamlegt, krefjandi, skemmtilegt, mjög gott, skipulagning, einbeiting, jákvæðni, mikil aðstoð, góður kennari, spennandi, árangursríkt, hvetjandi, góð þjónusta. Náðu forskoti með okkur í sumar! “Snilldarnámskeið..kom skemmtilega á óvart hversu miklum hraða ég náði.” Guðbjörg Jónsdóttir, 40 ára Framhaldsskólakennari. “Loksins sé ég fram á það að geta klárað lesbækur fyrir próf” Elín Björk Jónsdóttir, 15 ára nemi. “Ég sexfaldaði lestrarhraða minn á 3 vikum! Frábært!” Guðjón Bergmann, 34 ára rithöfundur, f yrirlesari og jógakennari. “Ykkur að þakka mun ég rúlla upp samræmdu prófunum.” Jökull Torfason, 15 ára nemi. “Þetta mun nýtast mér alla ævi.” Jóhanna Helga, 15 ára grunnskólanemi. “...á eftir að spara mér hellings tíma af námsbókalestri.” Ragna Björk Ólafsdóttir, 17 ára nemi og golfari.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.